Fréttablaðið - 29.01.2003, Qupperneq 21
21MIÐVIKUDAGUR 29. janúar 2003
The Academy of Colour and Style er alþjóðlegur
skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal
annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill.
Eftir nám fá nemendur alþjóðlegt diplóma í
útlitsráðgjöf(fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og
spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og
atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll
kennslugögn með náminu.
Skjöldur, tískuráðgjafi
Ég hélt að ég vissi svo
mikið um tísku og allt sem
því fylgir, en annað kom
í ljós þegar ég hóf námið
í skólanum. Námið
opnaði fyrir mér aðra sýn inn í tískuheiminn og
það var svo gaman að sjá hvað það eru til mörg
ráð til að breyta líkamanum. Einnig var það þetta
nám sem gerði mig hæfann til að vera þáttar-
stjórnandi tískuþáttar í sjónvarpi.
Tinna, markaðsstjóri
Í því strarfi sem ég gegni
í dag þarf ég að hafa
mikla þekkingu á förðun
og litgreiningu til þess að
koma réttum skilaboðum
til míns markhóps. Þetta er mjög lifandi og
skemmtilegt nám sem veitir mér mikla
framtíðarmöguleika bæði í starfi og til frekari
náms á þessu sviði.
Eygló, Verslunareigandi
Námið hefur nýst mér
einstaklega vel í
verslunarrekstrinum.
Allur skilningur á fatastíl,
litgreiningu og
fatasamsetningu hefur gert það að verkum að
mín innkaup verða hnitmiðaðri og minni hætta
á röngu vali á fatnaði í mína verslun einnig fá
viðskiptavinir mínir faglegri þjónustu í vali á
fatnaði.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101.
Anna F. Gunnarsdóttir
INNRITUN ER HAFIN
A L Þ J Ó Ð L E G T N Á M Í Ú T L I T S R Á Ð G J Ö F
The Academy of
Colour and Style
&Anna & út l i t iðl i i
KÓNGAFÓLK Breska drottningin
mætti til kirkju á sunnudaginn
var en það var fyrsta opinbera at-
höfnin sem hún tekur þátt í frá
því hún gekkst undir aðgerð á
hné.
Drottningin fór frekar hægt
yfir og þurfti að styðja sig við staf
þegar hún mætti í messu í Kirkju
Maríu Magðalenu. Hún veifaði
viðstöddum áður en hún gekk inn.
Drottningin klæddist hefð-
bundum klæðnaði en ekki buxum
eins og þegar hún yfirgaf spítal-
ann þar sem hún gekkst undir að-
gerðina. ■
Breska drottningin:
Komin
á fætur
MÆTTI Í MESSU
Elísabet drottning mætti í hefðbundnum
klæðnaði þegar hún kom til kirkju á
sunnudag.
Einn klár
á hæstu
tinda
heims!!!!
Nissan Patrol
Elegance 03/01
Blár/tvílitur s.sk.
ek. 40 þ. km,
44“ fullbreyttur.
Sjón er
sögu ríkari.
Til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur
Bíldshöfða 10 • 110 Reykjavík • S. 587-8888
LJÓÐSKÁLD Athugun á áhrifum ást-
sælasta ljóðskálds Skota, Robert
Burns, hefur leitt í ljós að hann er
enn meiri þjóðargersemi en áður
var talið, en hann færir skoska
þjóðarbúinu ríflega 157 milljónir
punda á ári. Rúm tvö hundruð ár
eru liðin frá því að Burns féll frá,
slyppur og snauður, en frægð hans
skilar enn miklum arði. Þannig
hafa efnahagsspekingar komist að
því að Burns skilar Skotlandi um
150 milljónum punda í gegnum
ferðamenn á hverju ári. Þar fyrir
utan selst ýmis varningur tengdur
skáldinu fyrir um 5.5 milljónir ár
hvert og þann 25. janúar á hverju
ári eykst viskísala í landinu um
2% en þá drekka Skotar fyrir
270.000 pund á svokölluðu Burns-
kvöldi, auk þess sem 1,2 milljón-
um er eytt í blóðmör og aðra skos-
ka matseld á þessum degi sem er
tileinkaður skáldinu. ■
Robert Burns:
Drjúg tekjulind
ROBERT BURNS
Þetta ástsæla
skáld Skota lést í
sárri fátækt fyrir
rúmlega 200
árum en frægð
þess færir skoska
þjóðarbúinu um
157 miljónir á
hverju ári.
LISTAKONUR ATHUGIÐ!
LEIGJANDI/LEIGJENDUR ÓSKAST
Bókaforlagið Salka á Skólavörðustíg 4
vill samnýta rými sitt (u.þ.b. 40 m2) með
listakonu/konum sem vilja vinna í opnu galleríi.
Áhugasamar vinsamlegast hafi samband
í síma 552 1122, eða í tölvupóst,
hildur@salkaforlag.is og kristin@salkaforlag.is
Salka – forlag með sál