Fréttablaðið - 21.03.2003, Síða 1

Fréttablaðið - 21.03.2003, Síða 1
HANDBOLTI Leikið gegn Þjóðverjum bls. 18 Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 21. mars 2003 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 18 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD KIRKJA Friðarstund verður í hádeg- inu í Neskirkju. Þar flytja Martin Frewer fiðluleik- ari, Dean Ferrell bassaleikari og Steingrímur Þór- hallsson organisti nokkrar af Rósakranssónöt- um Biber. Séra Örn Bárður Jóns- sonflytur ritningarorð og leiðir bænagjörð fyrir saklausum fórnar- lömbum stríðsins í Írak. Friðarstund í Neskirkju SEÐLABANKINN Ársfundur Seðlabanka Íslands verður haldinn í dag. Nýjar hagtölur benda til þess að sam- dráttur í hagkerfinu sé meiri en áður var búist við. Vangaveltur eru því uppi um það hvort bankinn muni tilkynna um vaxtalækkun í kjölfar fundarins. Væntingar um vexti KÖRFUBOLTI Baráttan heldur áfram í úrslitakeppninni í körfubolta kvenna. Í kvöld klukkan 19.15 mæt- ast Njarðvíkingar og Keflvíkingar í Njarðvík. Keflavík sigraði í fyrstu viðureign félaganna. Nágrannaslagur FYRIRLESTUR Vilborg Jóhannsdóttir flytur erindi um þróun mælikvarða á árangur í félagslegri þjónustu við fólk með fötlun. Fyrirlesturinn verður haldinn klukkan 12 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og er öllum opinn. Árangur félagsþjónustu JAFNRÉTTI Tvíræðar auglýsingar FÖSTUDAGUR 68. tölublað – 3. árgangur bls. 30 SJÓNVARP Staðgengill stjörnu bls. 12 bls. 28 AFMÆLI Að mestu í rúminu bls. 8 INNRÁS Í ÍRAK Myndar flótta- menn STJÓRNVÖLD Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra segir afar óheppi- legt að stuðningur Íslands við inn- rásina í Írak skuli fyrst hafa verið gerður opinber þegar Bandaríkja- stjórn birti lista yfir þau lönd sem fylgja þeim að málum. „Mér finnst Bandaríkjamenn hafa oftúlkað þennan lista,“ segir Halldór. „Lönd koma inn á hann við mismunandi aðstæður. Það liggur ljóst fyrir að við erum að lofa því að þeir fái að nota Keflavíkurflugvöll og okkar loft- helgi. Þá höfum við lofað því að vera með öðrum þjóðum í upp- byggingu í Írak. Við teljum mikil- vægt að afvopna Saddam Hussein og þar sem ekki náðist samstaða í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna teljum við rétt að gera það á grundvelli ályktunar 1441.“ Bandaríkjastjórn beitti íslensk stjórnvöld ekki þrýstingi í málinu að sögn Halldórs og gaf þar með lítið fyrir gagnrýni Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, um meint samráð ís- lenskra stjórnvalda við sendiráð Bandaríkjanna. Halldór segir eðli- legt að sendiráðið hafi haft sam- band við utanríkisráðuneytið. Það sé ekki hægt að túlka sem samráð. Enn fremur segir hann að það sé ekki nein togstreita á milli forsæt- is- og utanríkisráðuneytis í þessu máli öllu saman. James Irvin Gadsden, sendi- herra Bandaríkjanna, tekur orð Halldórs. Hann segir að banda- rískir sendiherrar í mörgum öðr- um löndum hafi rætt við ríkis- stjórnir þeirra landa og óskað eft- ir stuðningi. Þegar sendiherrann var spurður að því hvort banda- ríska ríkisstjórnin hefði mistúlkað stuðning íslensku ríkisstjórnar- innar sagðist hann ekki geta svar- að því þar sem honum hefði ekki borist nein athugasemd frá ís- lensku ríkisstjórninni varðandi þetta atriði. Gadsden segir að þau lönd sem séu á umræddum lista séu fyrst og fremst þau lönd sem hafi lýst póli- tískum stuðningi við mikilvægi þess að afvopna Íraka. Nákvæm- ari afstaða landanna til afvopnun- arferlisins hafi ekki verið útlistuð sérstaklega. Ekki náðist í forsætisráðherra. trausti@frettabladid.is sjá bls. 2, 6 og 8 Bandaríkin oftúlka stuðning Íslands Utanríkisráðherra segir íslensku ríkisstjórnina ekki hafa verið beitta þrýstingi af Bandaríkjamönnum. Sendiherra Bandaríkjanna getur ekki svarað því hvort stuðningur Íslands hafi verið mistúlkaður. ÞETTA HELST Bæjarstjórnarmeirihlutinn íVestmannaeyjum er að springa. Þreifingar eru hafnar milli Vestmannaeyjalista og Framsóknarflokks um nýjan meirihluta. bls. 2 Kárahnjúkavirkjun er ofáhættusöm að mati fyrrver- andi forstjóra Norrænu eldfjalla- miðstöðvarinnar. Hann segir ekk- ert tillit tekið til hugsanlegs hlaups í Jökulsá á Brú. bls. 4 Neytendasamtökin geraathugasemdir við merkingar og þyngd brauðs og bakkelsis í verslunum. Niðurstaða könnunar veldur vonbrigðum. bls. 4 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 24% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á föstudögum? 66% 71% „Mér finnst Bandaríkja- menn hafa oftúlkað þennan lista. FJÖLDI FÓLKS KOM SAMAN Á LÆKJARTORGI TIL AÐ MÓTMÆLA INNRÁS Friðarhreyfingar stóðu fyrir mótmælum gegn innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Nálægt 2.000 manns tóku þátt í mótmælunum. Bandaríkjamenn og Bretar komnir inn í Írak: Innrás hafin af fullum krafti ÍRAK Bandarískar og breskar her- sveitir réðust inn í Írak í kjölfar mikillar stórskotahríðar á her- sveitir Íraka í suðurhluta lands- ins. Á sama tíma voru gerðar miklar loftárásir á höfuðborgina Bagdad. Fram eftir degi kom til minni- háttar átaka bandarískra og íraskra hermanna. Seinni part dags hófst mikil stórskotahríð á stöðvar íraskra hermanna. Í kjöl- farið réðust bandarískar og breskar hersveitir yfir landa- mærin. Breskt landgöngulið mun einnig hafa ráðist á íraskt land- svæði af sjó. Óstaðfestar fréttir bárust af því að ein helsta haf- narborg landsins, Umm Qasr, hefði verið hertekin. Bandarískir herforingjar sögðu að þrjár olíulindir Íraka væru í logum. Þær fréttir höfðu heldur ekki fengist staðfestar. Sjónarvottar í Bagdad sögðu loftvarnaskothríð líkjast því sem fyrir augu bar við loftárásirnar á Bagdad í Flóastríðinu fyrir tólf árum. Loftvarnaskothríðin væri þó minni nú en þá. Viss hverfi borgarinnar voru í ljósum logum að sögn fréttamanna sem staddir eru í Írak. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI REYKJAVÍK Suðvestan 13-18 m/s og skýjað. Kólnandi veður. VEÐRIÐ Í DAG + + + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 13-18 Skúrir 4 Akureyri 10-15 Léttskýjað 5 Egilsstaðir 10-15 Léttskýjað 5 Vestmannaeyjar 10-15 Skúrir 2 ➜ ➜ ➜ ➜

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.