Fréttablaðið - 21.03.2003, Blaðsíða 6
MIKIL PÓLITÍSK MISTÖK „Hern-
aðaraðgerðirnar verða ekki rétt-
lættar,“ sagði Vladimír Pútín
Rússlandsforseti og kallaði árás-
irnar mikil pólitísk mistök.
HARMAR
ÁRÁSIRNAR
„Frakkland
harmar þess-
ar aðgerðir,
sem eru hafn-
ar án sam-
þykkis Sam-
einuðu þjóð-
anna,“ sagði
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti. „Við vonum að aðgerðirnar
verði skammvinnar, mannfall
eins lítið og mögulegt er og að
þær hafi ekki hörmulegar afleið-
ingar fyrir almenning.“
VIÐBÚIÐ „Stríðið í Írak er raun-
veruleiki sem við áttum von á,“
sagði Glora Macapagal Arroyo,
forseti Filippseyja, sem styðja
innrás í Írak.
SÝNDU EKKI SAMSTARFSVILJA
Junichiro Koizumi, forsætisráð-
herra Japans, ítrekaði stuðning
við innrásina. Hún væri nauðsyn-
leg þar sem Írakar hefðu hvorki
verið hreinskilnir né sýnt sam-
starfsvilja við afvopnun.
ENGIN RÉTTLÆTING „Það gæti
verið að Írakar feli gjöreyðingar-
vopn. En það réttlætir ekki að
Bandaríkjamenn og bandamenn
þeirra fari sínu fram,“ sagði
Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar. Hann sagði árásirnar
óréttlætanlegar án samþykktar
Sameinuðu þjóðanna.
TRYGGJA FRIÐ OG FRELSI „Stund-
um er stríð nauðsynlegt til að
tryggja frelsi og frið,“ sagði And-
ers Fogh Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, sem vill
veita innrásarherjum lið með því
að senda herskip á vettvang.
ÓÁSÆTTANLEGT Tarja Halonen
Finnlandsforseti gagnrýndi árás-
ir Bandaríkjamanna. Hún sagði
árásir án samþykktar Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna óvið-
unandi.
AF HINU ILLA „Stríð er alltaf af
hinu illa. Við getum aðeins vonað
að það verði stutt,“ sagði Kjell
Magne Bondevik, forsætisráð-
herra Noregs.
6 21. mars 2003 FÖSTUDAGUR
■ Innrás í Írak/
Utanríkismálanefnd
■ Innrás í Írak/
viðbrögð leiðtoga
Síðustu dagar
lagersölunnar
að Vatnagörðum 14
Dömu- • Herra- • Barnafatnaður
Þekkt vörumerki – frábært verð
Opið: Föstudag kl. 12-18 og laugardag kl. 10-16
VERÐDÆMI:
buxur 1.000 kr. • herraskyrtur 1.000 kr. • pils 1.000 kr.
bolir 800 kr. • jakkar 2.000 kr. • peysur 1.000 kr.
kápur frá 3.000 kr.
Fundað
síðdegis
ÍRAK Utanríkismálanefnd Alþing-
is fundar síðdegis vegna árásar-
innar á Írak. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra segist ekki
telja að nefndin hafi verið
hundsuð.
Stjórnarandstaðan gagnrýndi
ríkisstjórnina harkalega í fyrra-
dag fyrir að hafa tekið einhliða
ákvörðun um stuðning við árás
Bandaríkjamanna og Breta á
Írak. Óskaði hún tafarlaust eftir
fundi í utanríkismálanefnd, sem
hún sagði að hefði verið hundsuð
í málinu.
„Þessi afstaða Íslands er í
fullu samræmi við það sem ég
hef sagt á Alþingi,“ segir Halldór.
„Enn fremur er þetta í fullu sam-
ræmi við þau samtöl sem ég hef
átt við utanríkismálanefnd.“ ■
Rauði kross-
inn safnar fé
SÖFNUN Rauði kross Íslands sendi
frá sér í dag fréttatilkynningu þar
sem hann fer fram á á stuðning al-
mennings við hjálparstarfið í
Írak. Fram kom í Fréttablaðinu í
gær að Rauði krossinn mun á
næstu dögum skrifa ríkisstjórn-
inni bréf og fara fram á stuðning
opinberra aðila vegna stríðs-
ástandsins í Írak. Í tilkynningunni
segir:
„Hægt er að hringja í söfnun-
arsímann 907 2020 og leggja þan-
nig fram 1.000 krónur af sím-
reikningi eða fara inn á vef fé-
lagsins www.redcross.is og setja
framlagið á greiðslukort. Alþjóða
Rauði krossinn hefur í dag skorað
á stríðsaðila að virða mannúðar-
lög í hvívetna.“ ■
MÓTMÆLI, AP Árásum Bandaríkja-
manna á Írak var mótmælt víða
um heim í gær. Rúmlega hundrað
þúsund manns komu saman í Aþ-
enu, höfuðborg Grikklands, til að
mótmæla og kölluðu slagorð eins
og „Nei við stríði“ og „Bandarísku
morðingjar“. Um 50.000 manns
mótmæltu stríðinu í Berlín og efnt
var til mótmæla í fleiri borgum
Þýskalands.
Þrátt fyrir að ítölsk stjórnvöld
hafi lýst stuðningi við innrás í Írak
er þorri ítalsks almennings and-
vígur innrás. 20.000 manns mót-
mæltu í Tórínó og 45.000 í Mílanó.
Í höfuðborginni Róm kom lögregla
í veg fyrir að mótmælendur
kæmust að bandaríska sendiráð-
inu. Til átaka kom milli lögreglu og
mótmælenda í Kaíró. ■
Stjórnvöld fordæmd
fyrir að styðja innrás
Fjölmenn mótmæli á Lækjartorgi. Meðal þeirra sem tóku til máls
voru fulltrúar stjórnarandstöðunnar.
MÓTMÆLI „Mín skoðun á Bush
Bandaríkjaforseta? Það eru eigin-
lega ekki til nógu niðrandi orð.
Hann er dæmi um mestu lágkúru og
afturhaldssemi sem komið hefur í
Hvíta húsið og er þá langt til jafn-
að,“ segir Þorvaldur Þorvaldsson,
einn forsvarsmanna hreyfingarinn-
ar Átak gegn stríði sem stóð fyrir
miklum útifundi á Lækjartorgi í
gær. Erfitt er að áætla fjöldann en
ljóst má vera að þeir sem mættu
skiptu hundruðum.
Veður setti sitt mark á fundinn
en reyndar stóð til að hann ein-
kenndist af stuttum ræðum og varð
sú raunin. Meðal þeirra sem töluðu
voru fulltrúar stjórnarandstöðunn-
ar: Ögmundur Jónasson, Vinstri
grænum, Margrét Sverrisdóttir fyr-
ir Frjálslynda og Þórunn Svein-
bjarnardóttir fyrir Samfylkingu.
Öll voru þau eindregið þeirrar skoð-
unnar að stjórnvöld væru á afar
hálum ís með afstöðu sinni og eftir-
látssemi við stefnu Bandaríkja-
manna. Þorvaldur, sem var fundar-
stjóri, velkist ekki í vafa um að mót-
mæli hafi áhrif og nefnir sem dæmi
Víetnamstríðið. Hann er einnig
sannfærður um að afstaða stjórn-
valda brjóti gersamlega í bága við
vilja þjóðarinnar. „Fyrir um mánuði
birtist skoðanakönnun í Mogganum
þar sem sagði að um 64 prósent
væru mikið á móti stríðsrekstrinum
og önnur 19,7 prósent væru frekar á
móti. Ég held að andstaðan hafi auk-
ist síðan þá, ekki síst í ljós þess að
ákvörðun um árásina var ekki tekin
í Öryggisráðinu heldur af einstök-
um ríkjum.“ ■
MÓTMÆLI FYRIR UTAN STJÓRNARRÁÐIÐ
Um 20 nemar úr Listaháskóla Íslands mótmæltu stuðningi Íslands við stríðið í Írak með
táknrænum hætti. Þeir bjuggu sig í búning fórnarlamba stríðsátaka.
■ Innrás í Írak/mótmæli
■ Innrás í Írak/mótmæli
ÍRAK, AP Tæpum tveimur klukku-
stundum eftir að fresturinn sem
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti gaf Saddam Hussein Íraks-
forseta til að fara í útlegð rann út
var fyrstu bandarísku flugskeyt-
unum skotið á úthverfi Bagdad.
Nokkrum klukkustundum áður en
fresturinn rann út voru gerðar
loftárásir á tíu skotmörk í suður-
hluta Íraks.
Bandaríska leyniþjónustan til-
kynnti Bush að hún teldi sig hafa
upplýsingar um staðsetningu
nokkurra helstu leiðtoga Íraks.
Flugskeytunum var beint að þeim.
Írakar sögðu einn óbreyttan borg-
ara hafa látið lífið og nokkra
slasast. Rússneskir sjónvarps-
menn sögðu tíu hafa látist. Bush
hét því að „afvopna Írak, frelsa
þjóðina og vernda heiminn fyrir
mikilli ógn“.
„Við lofum ykkur að Írak, for-
ysta þess og þjóðin munu snúast
gegn hinum illu innrásarherjum.
Með guðs vilja bíða þeir ósigur,“
sagði Saddam Hussein í sjón-
varpsávarpi skömmu síðar.
Nokkru síðar skutu Írakar fjórum
flugskeytum að Kúvæt. Ekkert
tjón varð af þeim árásum. ■
■ Innrás í Írak/
hjálparstarf
TRÉ EKKI RUNNA
Þýskir mótmælendur léku sér með nafn
Bandaríkjaforseta. „Við þörfnumst trjáa,
ekki runna.“ Bush þýðir runni.
Hundruð þúsunda
mótmæltu stríði
SPRENGJUR LENDA Á BAGDAD
Blossarnir á myndinni sýna hvar flugskeyti
Bandaríkjamanna lentu í flugskeyta- og
loftárásum á Bagdad.
■ Innrás í Írak/sprengjuárásir
Árás hófst að morgni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI