Fréttablaðið - 21.03.2003, Blaðsíða 4
4 21. mars 2003 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 79.74 0.16%
Sterlingspund 124.78 0.55%
Dönsk króna 11.4 0.09%
Evra 84.74 0.09%
Gengisvístala krónu 123,42 0,26%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 340
Velta 6.562 m
ICEX-15 1.397 0,53%
Mestu viðskipti
Vátryggingafélag Ís. hf. 2.837.053.002
Pharmaco hf. 138.116.000
Kaupþing banki hf. 125.998.150
Mesta hækkun
Vátryggingafélag Íslands hf. 8,16%
Búnaðarbanki Íslands hf. 2,83%
Skýrr hf. 1,69%
Mesta lækkun
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. -2,82%
Marel hf. -1,93%
Össur hf. -1,06%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8244,6 -0,3%
Nasdaq*: 1391,6 -0,4%
FTSE: 3765,7 0,0%
DAX: 2599,0 -0,6%
Nikkei: 8002,7 1,7%
S&P*: 871,0 -0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Kjörkassinn
OF LÉTT
Skyndikönnun Neytendasamtakanna leiddi
í ljós að merkingum er ábótavant hjá bak-
aríum, auk þess sem varan er of oft léttari
en uppgefin þyngd.
Neytendasamtökin
kanna bakarí:
Vigtun
brauða í
köku
NEYTENDAMÁL Neytendasamtökin
gera verulegar athugasemdir við
þyngd brauðs og kaka frá bakarí-
um. Merkingum er einnig ábóta-
vant. Samtökin segja niðurstöðu
könnunar sinnar mikil vonbrigði.
Af 173 vörutegundum voru 25
léttari en uppgefin þyngd. Þar að
auki voru 56 sýni ekki merkt með
þyngd. Neytendasamtökin gera
því athugasemdir við tæplega
helming vörutegundanna.
Samtökin lýsa vonbrigðum sín-
um með þessa niðurstöðu. Það
eina sem Neytendasamtökin fari
fram á sé að matvara eins og
brauð og kökur standist vigt og sé
merkt samkvæmt þeim reglum
sem gilda.
Það fyrirtæki sem stóð sig
verst í könnun Neytendasamtak-
anna er Kexsmiðjan. Þrjár af fjór-
um vörutegundum í könnuninni
reyndust léttari en uppgefin
þyngd. Önnur fyrirtæki sem sam-
tökin nefna vegna lélegrar út-
komu eru Ragnarsbakarí, Breið-
holtsbakarí og Myllan. ■
VIRKJANIR „Það virðist ekkert tillit
tekið til þess að það geta komið
hlaup úr Jökulsá á Brú sem eiga
sér óljós upptök. Eldvirkni undir
Brúarjökli virðist hafa átt sér stað
og ítrekað valdið gífurlegum
hlaupum,“ segir Guðmundur Sig-
valdason, fyrrverandi forstjóri
Norrænu eldfjallamiðstöðvarinn-
ar, um fyrirhugað Hálslón vegna
Kárahnjúkavirkjunar og þann
skort sem hann telur vera á rann-
sóknum vegna hættumats.
Sporður Brúarjökuls er á milli
20 og 30 kílómetra breiður og talið
að við framhlaup gæti farið allt að
8 kílómetrum út í Hálslón eða um
fimm kílómetra að jafnaði. Þykkt
jökulsins þarna er um 150 metrar,
sem þýðir að við framhlaup gætu
há ísfjöll fallið fram í lónið með
tilheyrandi flóðbylgjum og jaka-
burðurinn gæti ógnað stíflunni.
Um 40 ár eru síðan jökullinn gekk
síðast fram en talið er að hann
hlaupi fram tvisvar á öld.
Vísindamenn hafa varað við
því að eldsumbrot kunni að valda
tjóni á fyrirhuguðum mannvirkj-
um við Kárahnjúkavirkjun. Grím-
ur Björnsson, jarðeðlisfræðingur
hjá Orkustofnun, hefur varað ein-
dregið við því að af þessu kunni
að verða mesta manngerða ham-
farahlaup í Íslandssögunni. Meðal
þess sem Grímur nefndi var að
ekki hafi verið gerðar nægar
rannsóknir á virkni sprunga á
svæðinu. Það gæti því orðið á
ábyrgð Alþingis Íslendinga ef
hamfarahlaup yrði við það að
Kárahnjúkastíflan myndi bresta.
Guðmundur Sigvaldason hefur
uppi sömu viðvaranir en hann tel-
ur að rannsaka hefði þurft bæði
sprungusvæðið og eldvirkni undir
Brúarjökli. Þá tekur hann undir
með Grími hvað það varðar að
ekki sé tekið tillit til aursöfnunar
í Lóninu. ■
MENNTAMÁL Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra hafnaði því
alfarið á opnum fundi talsmanna
flokkanna í Háskóla Íslands að Ís-
lendingar væru aftarlega á mer-
inni þegar kæmi að fjárframlög-
um til menntunar á háskólastigi.
Fundurinn var haldinn að frum-
kvæði Háskóla Íslands og um-
ræðuefnið var stefna flokkanna
gagnvart skólanum. Máli sínu til
stuðnings sagði ráðherra að fjár-
framlög til háskóla og rannsókna
hefðu aukist um 80% hér á landi
síðan 1998 og að heildarframlög
til vísindarannsókna væru með
þeim hæstu sem gerðust í veröld-
inni sem hlutfall af ríkisútgjöld-
um. Aukið fjárhagslegt svigrúm
fyrirtækja, í kjölfar skattalækk-
ana, sagði Tómas einnig hafa skil-
að sér í auknum framlögum til há-
skólans, þar sem fyrirtæki sæju
hag sinn í því að nota hið aukna
svigrúm til þess að fjárfesta í
þekkingu og menntun.
Vantar skýrari menntastefnu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
sagðist ekki geta tekið undir mál-
flutning menntamálaráðherra og
sagði tvo til þrjá milljarða vanta
upp á til þess að fjárframlög til
háskólamenntunar yrðu sambæri-
leg við það sem gerðist á Norður-
löndum. Nefndi hún máli sínu til
stuðnings tölur frá OECD. Hún
sagði jafnframt að tölur sýndu að
menntunarstig þjóðarinnar væri
ekki nógu hátt. Hún sagði sterk
rök hníga að því að hærra mennt-
unarstig skilaði sér í auknum hag-
vexti og meiri jöfnuði í lífskjör-
um. Því ættu Íslendingar óhikað
að leggja meira fé til þessa mála-
flokks. Ingibjörg auglýsti eftir
stefnumörkun, til langs tíma, um
það hvað almannavaldið ætlaðist
fyrir í menntakerfinu, um það
hvaða kröfur væri eðlilegt að gera
og að hvaða markmiðum ætti að
stefna.
Háskólinn verði óháður
og opinn
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
kona Vinstri grænna, lagði
áherslu á það að faglegt sjálfstæði
Háskóla Íslands yrði verndað og
að skólinn yrði ekki markaðs-
öflunum að bráð. Hún sagði mikil-
vægt að Háskólinn ræki öflug
menntasetur um land allt sem lytu
stjórn höfuðstöðvanna í Reykja-
vík og að ríkið fjármagnaði skól-
ann með metnaðarfyllri hætti en
nú er, þar sem skyldurnar sem
sætu á herðum hans sem opins
þjóðskóla væru miklar og mikil-
vægar.
Í máli Jónínu Bjartmarz, Fram-
sóknarflokki, sem og annarra
fundarmanna, kom fram að nauð-
synlegt væri að setja meiri pen-
inga í háskólamenntun, þar sem
fjölgun nemenda á háskólastigi
hefði verið langt umfram áætlanir
og fjárþörf hefði því aukist af
þeim sökum. Hún sagði eðlilegt að
það yrði kannað hvort ekki mætti
auka samstarf skóla á háskólastigi
um menntun í fámennari og óarð-
bærari kennslugreinum, til þess
að skapa hagkvæmari einingar.
Hún fagnaði aukinni samkeppni á
háskólastigi.
Margrét Sverrisdóttir, Frjáls-
lynda flokknum, kvaðst hlynnt
markaðslausnum á háskólastigi en
sagði þó mikilvægt að standa vörð
um Háskóla Íslands sem öflugan
ríkisrekinn skóla, þar sem mark-
aðsöflin réðu ekki ferðinni og að-
gangur væri jafn. Hún lagði áher-
slu á gildi fjarnáms, sem hún
sagði sérstaklega mikilvægt fyrir
konur í barnsburðarleyfi og lands-
byggðarfólk.
gs@frettabladid.is
DEILA „Það kemur til greina að
bærinn taki yfir rekstur leikskól-
ans,“ segir Magnús Baldursson,
fræðslustjóri Hafnarfjarðar-
bæjar, um það ástand sem komið
er upp í leikskólanum Tjarnarási í
Áslandi í Hafnarfirði. Skólinn er
rekinn af Íslensku menntasam-
tökunum undir stjórn Sunitu
Ghandi. Vegna samstarfsörðug-
leika við hana hafa leikskólastjór-
ar sagt upp störfum frá og með 1.
júní og talsverður uggur er í
starfsfólki, segir Magnús, sem og
foreldrum, sem fóru formlega
fram á það á dögunum að bærinn
taki yfir rekstur skólans.
Fræðsluráð átti fund með
Sunitu Ghandi í gær. Ákveðið var
að beina þeim tilmælum til stjórn-
ar Íslensku menntasamtakanna,
áður en lengra er haldið, að
stjórnin komi með tillögur til
lausnar á þessari stöðu. Ætlunin
er að ræða þær tillögur á fræðslu-
nefndarfundi í næstu viku og taka
ákvörðun um það í kjölfarið hvort
rétt sé að bærinn taki yfir rekst-
urinn. Magnús segir ljóst að það
verði að hafa hraðann á til þess að
leysa málið, því skólinn verði án
leikskólastjóra frá og með 1. júní
ef ekkert verður að gert.
„Þetta var fundur sem var búið
að boða áður en málið kom upp, en
eitt af því sem við ræddum við
Sonitu var uppsögn leikskóla-
stjóra. Við lýstum áhyggjum okk-
ar yfir því máli og fórum fram á
það að framkvæmdastjórinn bæri
það til stjórnar og skilaði umsögn
um það hvernig hún hygðist leysa
þessi mál. Það er boðaður fundur í
fræðsluráði á miðvikudag í næstu
viku. Við bíðum eftir því hvað
stjórnin segir fram að því.“ ■
Leita morðingja:
Þúsund
handteknir
BELGRAD, AP Um þúsund manns
hafa verið handteknir vegna
morðsins á Zoran Djindjic,
forsætisráðherra Serbíu. Þrátt
fyrir það hefur enginn af þeim
sem eru grunaðir um að vera
höfuðpaurar samsærismanna
verið handteknir.
Fjöldi fyrrum samstarfs-
manna og fylgismanna Slobodans
Milosevic, fyrrum forseta
Júgóslavíu, hefur verið handtek-
inn. Serbneskur embættismaður
sagði að búast mætti við fleiri
handtökum á næstu dögum. ■
KÁRAHNJÚKASVÆÐIÐ
Umdeilt er hve mikil áhætta er vegna
náttúruhamfara.
Fyrrverandi forstjóri Norrænu eldfjallastöðvarinnar:
Kárahnjúkaframkvæmd
er allt of áhættusöm
LEIKSKÓLINN Í ÁSLANDI
Verður án leikskólastjóra frá og með 1.
júní ef ekkert verður að gert.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar fundaði með Sunitu Gandhi:
Uggur í starfsfólki
HÁSKÓLAFUNDUR
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna ræddu málefni Háskóla Íslands á opnum fundi í gær.
Framlög til háskóla með
þeim hæstu í heimi
Tómas Ingi Olrich sagði á opnum fundi í Háskóla Íslands framlög til háskóla á Íslandi með þeim
hæstu í heimi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir auglýsir eftir skýrari framtíðarsýn í menntamálum.
Óttastu afleiðingar innrásarinnar
í Írak?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að mótmæla innrás í Írak?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
3,9%
27,7%Nei
68,4%
Veit ekki
Já