Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.03.2003, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 21.03.2003, Qupperneq 22
Yfirbragð Óskarsverðlaunahátíð-arinnar í ár verður dapurlegra en áður til þess að votta bandarísk- um hermönnum í Írak virðingu. Minna verður um glys og glamúr auk þess sem kroppasýningunni á rauða teppinu var aflýst. Umsjón- armenn hátíðarinnar segja hana vera skynsamlegri í ár en áður. Hefðin með upphitun á rauða tepp- inu er tíu ára gömul og er þetta í fyrsta skiptið sem henni er aflýst. Bandaríkjastjórn hefur bannaðtónlistarmanninum Ry Cooder að vinna meira með tónlistarhópn- um Buena Vista Social Club sem kemur frá Kúbu. Ástæðuna segja þeir að Kúba sé óvinur landsins og eigi því að vera lokað kommúnista- ríki. Cooder var sektaður um 100 þúsund dollara (tæpar 8 milljónir kr.) fyrir að hafa starfað með þeim fram að þessu. Cooder óttast að þetta marki endalok samstarfs síns við Buena Vista-hópinn. Síðasta útgáfa þeirra var önnur sólóplata söngv- arans Ibrahim Ferrer sem kom út á dögunum. Framleiðendur Sopranos-þáttannahafa náð samningum við James Gandolfini, aðalleikara þáttanna. Þættirnir höfðu verið í uppnámi rétt áður en framleiðsla á fimmtu seríunni átti að hefjast þar sem leikarinn krafðist launahækkunar. Nú ert allt orðið klappað og klárt og hefst framleiðsla nýju seríunn- ar fyrstu vikuna í apríl. Framtíð kvikmyndarinnar umSúpermann er enn og aftur komin í vafa eftir að leikstjórinn Bret Ratner sagði af sér á mið- vikudag. Leikarinn Josh Hartnett hafði verið orðaður við hlutverkið en hætti við þar sem hann vildi ekki skuldbinda sig til að gera þrjár myndir. Ekki hefur enn tek- ist að ráða leikara í aðalhlutverk- ið. Leikstjórinn segir það eina af ástæðunum fyrir uppsögn sinni hversu erfiðlega gangi að finna leikara í hlutverk hetjunnar. Leikarinn Tobey Maguire hefurákveðið að hrista af sér bak- verkinn og snúa aftur í hlutverki Kóngulóarmannsins í næstu tveim- ur framhaldsmyndum um ofur- hetjuna. Á þriðjudag komst það í fréttirnar að hann gæti hugsanlega ekki sinnt skyldum sínum vegna bakverkja en í gær gaf leikarinn út fréttatilkynningu þar sem hann fullvissaði aðdáendur sína um að hann myndi ekki bregðast þeim. Búist því við Maguire sem Pétri Parker í sumarsmellinum á næsta ári. 22 21. mars 2003 FÖSTUDAGUR LORD OF THE RINGS b.i. 12 kl. 4 LÚXUSSPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.20 DAREDEVIL b.i.16 kl. 3.40, 8 og 10.20 THE RING kl. 8 og 10.10 b.i. 16 ára SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6 TWO WEEKS NOTICE 6, 8 og 10.10 TRAPPED kl. 5.50, 8, 10.10 GULLPLÁNETAN kl. 4 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 Sýnd í lúxus kl. 8 og 10.20 kl. 5.30CATCH ME IF YOU CAN kl. 5.50, 8 og 10.15LILJA 4-EVER Sýnd kl. 5.45 og 10.20 kl. 6, 8 og 10NÓI ALBINÓI kl. 8 og 10.108 FEMMES MAN WITHOUT A PAST kl. 8 NORRÆNIR BÍÓDAGAR Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 8 og 10.30 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i 12 ára THUNDERPANTS kl. 4 og 6 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN Sýnd kl. 6 og 9 CHICAGO bi. 12 ára kl. 5.45 og 8 TÓNLIST Stelpustrákurinn Brian Molko og sænski risinn Stefan Ols- dal kynntust fyrst lítillega í skóla í Lúxemborg. Þeir urðu þó ekki fé- lagar fyrr en leiðir þeirra rákust aftur saman í London árið 1994. Tónlistaráhugi þeirra beggja var mestur á tilraunagítarsveitum á borð við Sonic Youth og lá það því beinast við að stofna hljómsveit. Trommuleikarinn Robert Schultz- berg bættist fljótlega í hópinn. Upphaflega hét sveitin Ashtray Heart en því var fljótlega skipt út fyrir Placebo. Nafnið þýðir „gervi- lyf“, sem oftast eru sykurtöflur sem sjúklingum er gefið í von um að sálræn áhrif lyfjaveitingarinnar færi þeim bata. Sveitin fangaði athygli breskra fjölmiðla árið 1995 á hátíðinni In the City sem haldin er árlega í Bretlandi. Á þessari sömu hátíð braust íslenska sveitin Bellatrix upp á yfirborðið. Báðar sveitirnar fengu plötusamning í kjölfarið. Fyrsta plata Placebo, sem bar nafn sveitarinnar, kom út ári seinna og þótti vel yfir meðallagi. Lagið „Nancy Boy“ komst lengst og Brian Molko og félagar rétt komu munni sínum upp undir yfir- borð meginstraumsins. Það var ekki fyrr en á annarri plötunni, hinni frábæru „Without You I’m Nothing“, tveimur árum síðar sem Placebo náði að brjótast upp, þökk sé David Bowie. Gamla goðið stóð sig að því einn morgun- inn fyrir framan baðherbergis- spegilinn að syngja bakraddir við titillag plötunnar og fannst lagið betra fyrir vikið. Hann tók því upp símtólið og bauð fram þjónustu sína ef piltarnir hefðu áhuga á því að gefa lagið út á smáskífu. Breið- skífan varð mun heilsteyptara verk en fyrri platan og telst nú þegar til klassískra rokkplatna tí- unda áratugarins. Þriðja platan, „Black Market Music“, sem kom út árið 2000 var svo vonbrigði. Hún átti góða spretti en sveitin steig engin fram- faraskref og smáskífurnar voru óáhugaverðar. Fyrir nýju breiðskífuna, „Sleep- ing With Ghosts“, breytti sveitin um vinnuaðferðir. Liðsmenn komu allir sér upp heimahljóðverum, tóku upp grunna og léku sér svo með lögin eftir á, hver í sínu horni. Öllum hugmyndunum var svo rað- að saman af Jim Abbiss, sem þekktastur er fyrir vinnu sína með The Music, Unkle og Dj Shadow. Útkoman er stærsta framfara- skref sveitarinnar til þessa. biggi@frettabladid.is ■ TÓNLISTFréttiraf fólki Tvær síðustu myndir SvíansLukas Moodysson, „Fucking Åmal“ og „Tillsammans“, voru hreint út sagt frábærar bíómyndir og með fullri virðingu fyrir alvar- legu innihaldi „Lilya 4-Ever“ þá stendur hún þeim nokkuð að baki. Þetta er engu að síður áhrifarík mynd um vonleysi stúlku frá fyrr- um Sovétríkjunum sem hrekst út í vændi og endar í klónum á sam- viskulausum náungum sem selja líkama hennar í Svíþjóð. Aumingja Lilya á aldrei séns en þar sem móðir hennar, besta vin- kona og frænka eru allar nöðrur í hæsta klassa er fall hennar strax sett í eitthvert undarlega rökrétt orsakasamhengi þannig að fall hennar verður nánast sjálfsagt. Það þarf þó enginn að efast um það að raunveruleiki fjölda stúlkna er í raun miklu harkalegri en sá sem Moodysson bregður upp hér og sjálfsagt búa ekki alltaf jafn mikil svik og hörmungar að baki því að þær leiðist út í að selja sig eins og raunin er hjá Lilyu. „Lilya 4-Ever“ ristir samt djúpt og er áhugavert innlegg í vænd- isumræðuna en það er fyrst og fremst þrusugóðum leik Oksana Akinshina í hlutverki Lilyu að þakka. Þessi sakleysislega og glað- lega stúlka heillar frá upphafi og það er átakanlegt að fylgjast með fábrotinni veröld hennar og öllum draumum um betra líf verða að engu. Þórarinn Þórarinsson Umfjöllunkvikmynd Hjá vondu fólki LILYA 4-EVER Leikstjóri: Lukas Moodysson Gervilyfið byrjar að virka Rokkhljómsveitin Placebo er á tímamótum. Á mánudag kemur út fjórða breiðskífan, „Sleeping With Ghosts“, og tekur sveitin stærsta stökk sitt hvað varðar breytingu á útsetningum og hljómi. Leikarahjónin Michael Douglasog Catherine Zeta-Jones borg- uðu um 1,4 milljónir króna fyrir auglýsingu til þess að hrósa söng- konunni Celine Dion. Í auglýsing- unni stóð: „Celine, við getum ekki beðið eftir að sjá sýninguna þína. Catherine og Michael.“ Dion er við það að opna sýningu í Ceaesar’s Palace í Las Vegas sem mun stan- da yfir í þrjú ár. Daginn áður hafði Douglas látið birta auglýsingu í dagblaði þar sem hann óskaði eig- inkonu sinni innilega til hamingju með Óskarsverðlaunatilnefning- una. Kjól er leikkonan Angelina Jolieætlaði sér að klæðast á Ósk- arsverðlaunahátíðinni var stolið úr bíl breska fatahönnuðarins Scott Hensall. Fatahönnuðurinn segist hafa gert mikla leit í ruslagámunum í kring í þeirri veiku von að þjófurinn hefði losað sig við hann. Þjófarnir skáru gat á þak bílsins og hirtu allt lausadót úr honum. PLACEBO Placebo hefur í heild selt yfir þrjár milljónir platna á heimsvísu og á orðið stóran og traustan hóp aðdá- enda. Á mánudag kemur út fjórða breiðskífan, „Sleeping With Ghosts“. Fulningainnihurðir Stærðir 81,5 x 203 cm 91,5 x 203 cm Spónasalan ehf Smiðjuvegur 40, 200Kópavogur, e-mail: sponn@islandia.is Sími: 567 5550 Fax: 567 5554 Amerískar fulninga-og franskar innihurðir Rauð eik Kirsuber og hlynur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.