Fréttablaðið - 21.03.2003, Blaðsíða 30
Athygli vakti þegar fréttistað eldri borgarar hefðu
læst kokkinn í Glæsibæ úti
með því að skipta um skrár á
eign sinni þar. Ólafur Ólafsson,
fyrrum landlæknir og foringi
eldri borgara, vildi lítið tjá sig
um stríðið við kokkinn nema
hvað að samstarfi við hann
væri lokið. Jónas Þór Guð-
mundsson, lögmaður Félags
eldri borgara, hefur nú flett
ofan af þessu dularfulla máli.
Segir hann að einkahlutafélag
sem var með eldhúsaðstöðu á
leigu í Glæsibæ hafi verið tek-
ið til gjaldþrotaskipta og því
hefði þótt við hæfi, í samráði
við skiptastjóra, að skipta um
læsingar í húsnæðinu svo
starfsmenn hins gjaldþrota
fyrirtækis gætu ekki farið um
að vild í húsinu eins og málum
var komið. ■
Hrósið 30 21. mars 2003 FÖSTUDAGUR
Heillandi hugsjónir
Sigrún Árnadóttir, framkvæmda-stjóri Rauða kross Íslands, hefur
verið önnum kafin undanfarna
daga við að undirbúa ásamt sam-
starfsfólki hjálparstarf í kjölfar
árásar Bandaríkjanna og Breta á
Írak. Hún segir að að mörgu sé að
hyggja en nú þegar hafi einn maður
farið utan á þeirra vegum.
„Okkar hlutverk felst fyrst og
fremst í að koma stríðshrjáðum til
hjálpar. Mjög líklegt er að hjúkrun-
arfræðingur sé á leið utan og sendi-
fulltrúi er í Amman,“ segir Sigrún.
Alþjóðaráð Rauða krossins hef-
ur verið í Írak allt frá því stríðinu
við Íran lauk og hefur meðal annars
unnið að uppbyggingu á heilsu-
gæslu- og vatnsveitukerfinu og
komið stríðsföngum til aðstoðar.
Sigrún segir það mjög mikilvægt að
halda ákveðnu hlutleysi og góðum
tengslum við deiluaðila. „Þannig
getum við sinnt því sem okkur er
ætlað á átakatímum, hvort sem um
er að ræða særða eða óbreytta
borgara.“
Sigrún segir að hlutverk Rauða
krossins sé fyrst og fremst að koma
til móts við brýnustu þarfir stríð-
hrjáðra, svo sem að hindra út-
breiðslu sjúkdóma, styrkja heil-
brigðisstarfið og stuðla að því að
Genfarsáttmálinn sé virtur. „Við
vinnum náið með hinum Norður-
landaþjóðunum. Okkar framlag
felst í að senda fólk og peninga og
við ætlum að leita til deilda félags-
ins um allt land, ríkisstjórnarinnar
og íslensku þjóðarinnar í því sam-
bandi og væntum þess að okkur
verði tekið vel,“ segir Sigrún.
Sigrún er frá Eskifirði og hefur
verið framkvæmdastjóri Rauða
kross Íslands síðan 1993. Hún segir
starfið annasamt en fjölbreytt og
skemmtilegt. „Því fylgja talsverð
ferðalög bæði innan lands og utan
og í einni slíkri ferð kynntist ég
sambýlismanni mínum, Michael
Schulz, sem starfað hefur fyrir
þýska Rauða krossinn. Við búum
saman í Kópavogi en dóttir mín,
sem er 24 ára, er farin að heiman.
„Ég á ekki von á að ég fari á átaka-
svæðin á næstunni en verði fremur
hér heima og sinni störfum mínum
á skrifstofunni. Mér finnast svo
heillandi þær hugsjónir sem Rauði
krossinn vinnur eftir að það eru
forréttindi að fá að vinna að fram-
gangi þeirra,“ segir Sigrún Árna-
dóttir. ■
SIGRÚN ÁRNADÓTTIR, FORSTÖÐU-
MAÐUR RAUÐA KROSSINS
Hjálparstarf kostar mikið fé en það er
dropi í hafið sé miðað við hvað fer í sjálf-
an stríðsreksturinn.
Persónan
■ Sigrún Árnadóttir, forstöðumaður
Rauða Kross Íslands, er önnum kafin
við að skipuleggja hjálparstarf í Írak.
■ Leiðrétting
SJÓNVARP Þetta er mikið pláss að
fylla og vandfyllt,“ segir Kristján
Kristjánsson Kastljósmaður um
brotthvarf Evu Maríu Jónsdóttur
úr þættinum en hún er á leið í
barneignarfrí. Ákveðið hefur ver-
ið að Svanhildur Hólm Valsdóttir,
stigavörður í Gettu betur með
meiru, komi í stað Evu Maríu.
„Svanhildur Hólm ætti að koma til
starfa skömmu eftir kosningar en
þá fer Eva María í fríið. Hún tek-
ur sér ársleyfi og snýr vonandi
aftur eftir það,“ segir Kristján
Kristjánsson.
Eva María hefur verið burðar-
ásinn í Kastljósi Ríkissjónvarps-
ins og átt sinn þátt í að gera þátt-
inn að einu vinsælasta sjónvarps-
efni síðari ára hér á landi. Áhorf-
endur hafa kunnað að meta sjald-
gæfa útgeislun hennar á skjánum
og samstarfsmenn líkja henni
stundum við náttúruafl. Svanhild-
ur Hólm ræðst því ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur þegar
hún sest í stól Evu Maríu innan
skamms og hún veit það:
„Ég veit hins vegar ekki hvort
þetta er eitthvað til að kvíða fyrir.
Kýs frekar að líta á þetta sem
hverja aðra vinnu en þetta er ör-
ugglega ekki það auðveldasta sem
ég hef gert,“ segir Svanhildur
Hólm og gerir sér fyllilega grein
fyrir að hún er ekki að ráðast á
garðinn þar sem hann er lægstur.
„Strákarnir í Kastljósinu eru klár-
ir og halda vonandi í höndina á
mér,“ segir hún.
Svanhildur er reyndar á leið í
lögfræðipróf nokkrum dögum áður
en hún tekur við starfinu í Kastljós-
inu og segist ekki stefna að frekari
frama í fjölmiðlum. Hún ætlar að
verða lögfræðingur og starfa sem
slíkur. Svanhildur er í sambúð með
Sigurgeir Heiðari Sigurgeirssyni,
sem starfar hjá Landssímanum:
„Við eigum einn sex ára strák.
Hann heitir Valur Hólm, svona
næstum því skírður í höfuðið á
mér,“ segir Svanhildur Hólm.
eir@frettabladid.is
Guð minn góður! Frá 25.
hæð? Náum við að bera
kennsl á viðkomandi?
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Já, stjóri! Þetta er
blaðra með vatni!
Staðgengill stórstjörnu
Svanhildur Hólm leysir Evu Maríu af í Kastljósinu. Eva
María í árs frí vegna barneigna. Svanhildur kvíðir engu og
ætlar að reyna að fylla skarðið. Söknuður hjá Kristjáni.
SVANHILDUR HÓLM
Fer beint úr lögfræði-
prófi í Kastljósið.
...fær Haukur Logi Karlsson,
formaður Félags ungra fram-
sóknarmanna í Reykjavík, fyrir
að þora að standa að samþykkt
gegn stríðsrekstrinum í Írak og
vera þar með á öndverðum meiði
við formann flokksins svona rétt
fyrir kosningar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Fréttiraf fólki
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra er ekki stríðinn.
ÞETTA ERU ÍSLENSK
STJÓRNVÖLD AÐ SAMÞYKKJA
Í OKKAR NAFNI
Í Persaflóastríðinu 1991 skutu bandarískir og
breskir hermenn meira en 300 tonnum af geisla-
virkum fallbyssukúlum á Írak. Í kjölfarið marg-
faldaðist sá fjöldi barna sem fæddust vansköpuð
og/eða með banvæna sjúkdóma.
ÞETTA ERU AFLEIÐINGAR STRÍÐS!
MÆTUM Á MÓTMÆLI!
Barn bandarísks hermanns sem
barðist í Flóabardaganum ´91
Íraskt barn með vatnshöfuð
og vanskapaðan heila
EVA MARÍA
Sjaldgæf útgeisl-
un í sjónvarpi.