Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 4
4 27. mars 2003 FIMMTUDAGUR
SAMA MARKMIÐ, SAMA RÉTT-
LÆTING Lögmaður fimm íraskra
útlaga segir að sömu rök og rétt-
læti innrás Bandaríkjanna og
bandamanna þeirra í Írak rétt-
læti innrás útlaganna í íraska
sendiráðið í Berlín. Útlagarnir
héldu nokkrum gíslum í sendi-
ráðinu í nokkra klukkutíma áður
en þeir gáfust upp.
FRAMSAL SENDIHERRA Bosnísk-
ir saksóknarar freista þess að fá
fyrrum sendiherra landsins hjá
Sameinuðu þjóðunum framseld-
an frá Bandaríkjunum. Hann er
ásakaður um að stela andvirði
nærri 200 milljóna króna úr op-
inberum sjóðum meðan hann
gegndi embætti. Þjófnaðurinn
leiddi meðal annars til þess að
sendiráðið gat ekki greitt leigu
og símareikninga.
FJÖLGAR Í EVRÓPURÁÐINU
Serbíu og Svartfjallalandi hefur
verið boðin aðild að Evrópuráð-
inu. Allt útlit er fyrir að þetta
lausbeislaða ríkjasamband, sem
byggir á grunni Júgóslavíu,
verði 45. aðildarríki Evrópuráðs-
ins.
Byggðarannsóknir:
Lán felld niður
BYGGÐAÞRÓUN Byggðarannsóknar-
stofnun leggur til að Akureyri,
Ísafjörður og Egilsstaðir verði
þrír miðpunktar í eflingu byggða-
kjarna á landsbyggðinni.
Auðveldara aðgengi að námi,
lægri flutningskostnaður, bættar
samgöngur og betri fjarskipti eru
lykilatriðin í nýrri skýrslu. Stofn-
unin telur fjárfestingar eiga að
miðast við það að stækka áhrifa-
svæði byggðakjarnanna. Lögð er
til þátttaka opinberra aðila í ný-
sköpunarstarfsemi og að felld séu
niður námslán þeirra sem búa úti
á landi. ■
■ Evrópa
FJÖLHÆF DÝR
Flogið var með höfrungana Makai og
Tacoma í herþyrlum til Umm Qasr.
Höfrungar
leita að
sprengjum
ÍRAK Bandaríkjamenn og Bretar
hafa gripið til þess ráðs að flytja
tvo sérþjálfaða höfrunga til
Persaflóa til að aðstoða hermenn
við að finna tundurdufl í innsigl-
ingunni að hafnarborginni Umm
Qasr.
Höfrungunum, sem heita
Makai og Tacoma, hefur verið
kennt að snerta ekki tundurduflin
og eru þeir því í óverulegri hættu,
að sögn Renuart. Aðalógnin stafar
aftur á móti af öðrum höfrungum
á svæðinu sem gætu reynt að reka
þessa óboðnu gesti burt.
Bandaríski sjóherinn uppgötv-
aði gagnsemi sjávarspendýra í
hernaðarlegum tilgangi snemma
á sjöunda áratugnum og voru
höfrungar meðal annars notaðir
sem leitardýr í Víetnamstríðinu á
áttunda áratugnum. ■
STJÓRNMÁL „Mér ber að taka þá af-
stöðu sem ég tel að þjóni best ut-
anríkispólitískum hagsmunum
þessa lands. Það er mitt starf,“
sagði Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra á opnum fundi í Há-
skóla Íslands í gær, frammi fyrir
troðfullum sal háskólamanna og
annarra sem flestir virtust fullir
efasemda um stuðning Íslands og
spurðu beinskeyttra spurninga.
„Það er ljóst að við Íslendingar
erum í hópi 45 þjóða sem styðja
tafarlausa afvopnun Saddams
Husseins,“ sagði Halldór. „Við
skulum vona að það takist vel og
það taki ekki langan tíma. Ég tel
að sú afstaða sem ég hef tekið fyr-
ir hönd Íslands sé okkur fyrir
bestu. Sagan mun leiða í ljós hvort
ég hef rétt fyrir mér.“
Halldór lagði áherslu á að Ís-
lendingar væru ekki þátttakendur
í átökunum í Írak, þó svo að ríkis-
stjórnin styddi innrásina pólitískt.
Hann sagði þá afstöðu vera í sam-
ræmi við sögu íslenskrar utanrík-
isstefnu. „Fyrir okkur skipta Atl-
antshafstengslin gríðarlega miklu
máli,“ sagði Halldór. „Við höfum
alltaf átt nánari samskipti við
Breta, Bandaríkjamenn, Hollend-
inga og Dani en Frakka og Þjóð-
verja.“ Hann sagði það æskilegra
að sátt myndaðist í alþjóðasamfé-
laginu um aðgerðir af þessu tagi.
Hann hafi hins vegar ekki hafa
haft trú á því að slíkt samkomulag
myndi nást í þessu máli, úr því
sem komið var, og átök hafi verið
óumflýjanleg.
Halldóri varð tíðrætt um eðli
ógnarstjórnar Saddams Husseins
og talaði um dráp hans á almenn-
um borgurum í Írak á undanförn-
um árum og nauðsyn þess að
stöðva þau. Stríðið væri því háð að
stórum hluta til í mannúðarskyni,
svipað og í Kosovo árið 1999. Hall-
dór hafnaði því þó ekki aðspurður
að innrásin væri gerð út af öðrum
hagsmunum, eins og t.d. olíu.
„Mið-Austurlönd skipta miklu
máli,“ sagði Halldór. „Olían sem
þaðan kemur drífur áfram efna-
hagskerfi alls heimsins, ekki bara
Bandaríkjanna. Það skiptir því
auðvitað miklu máli fyrir alla að
það ríki almennur stöðugleiki í
Mið-Austurlöndum.“ Halldór
lagði áherslu á að farið yrði af
fullri einurð í það verkefni að
stríði loknu að koma á sjálfstæðu
ríki Palestínu, sem hann kvað
lykilatriði fyrir frið og stöðug-
leika. Jafnframt sagðist hann
þeirrar skoðunar að uppbyggingu
í Írak að stríði loknu yrði stjórnað
af Sameinuðu þjóðunum.
gs@frettabladid.is
DREIFING „Það er mikið ánægjuefni
að íbúar Reykjanesbæjar, sem er
fimmti stærsti bærinn á landinu,
skuli bætast í þann hóp sem fær
Fréttablaðið inn í hús,“ segir Árni
Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ. Frá og með deginum í dag
verður Fréttablaðinu dreift dag-
lega í öll hús í þéttbýli á Suður-
nesjum.
Árni segist vonast til að Frétta-
blaðið fjalli meira um málefni
sem tengjast Suðurnesjum. Hann
segir blaðið hafa verið nokkuð lið-
tækt í þeim efnum þó alltaf megi
gera betur.
Sigurður Jónsson, sveitarstjóri
í Gerðahreppi, tekur í sama
streng: „Það er mjög gott mál að
dagleg dreifing sé hafin á Frétta-
blaðinu hér á Suðurnesjum. Sjálf-
ur sæki ég alltaf blaðið út á bens-
ínstöð, en það verður gott að geta
sparað sér sporin.“ ■
Akureyri:
Inn í mánuð
DÓMSMÁL Tveir menn, liðlega tví-
tugir, voru dæmdir fyrir Héraðs-
dómi Norðurlands eystra til 30
daga fangelsisvistar fyrir inn-
brot og brot gegn fíkniefnalög-
gjöfinni, en á öðrum þeirra fund-
ust 0,40 grömm af amfetamíni.
Sá var jafnframt dæmdur til
að greiða 40 þúsund króna sekt til
ríkissjóðs auk þess sem þeim var
gert að greiða málskostnað. Það
var í ágúst 2002 að þeir brutust í
félagi inn í verslunina Litla Hús-
ið að Strandgötu 13 á Akureyri og
stálu þaðan 10.000 krónum.
Þeir játuðu brot sín skýlaust
og þótti ekki ástæða til annars en
að skilorðsbinda fangelsis-
dóminn. ■
ÁRNI SIGFÚSSON
Bæjarstjórinn fagnar því að Frétta-
blaðinu verði framvegis dreift á
hvert heimili á Suðurnesjum.
Reykjanesbær:
Bæjarstjóri ánægður
að fá Fréttablaðið
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA
Varðist fimlega frammi fyrir troðfullum sal í Háskóla Íslands í gær. Sagði átökin í Írak hafa
verið orðin óumflýjanleg og að ríkisstjórnin styddi innrásina pólitískt. Íslendingar væru
hins vegar ekki þátttakendur í stríðinu.
Ráðherra
gagnrýndur
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra varði
stefnu ríkisstjórnarinnar í Íraksmálinu á
opnum fundi í Háskóla Íslands í gær.
■ Innrás í Írak/
Tundurdufl
Bíður þú spennt(ur) eftir landsleik
Íslendinga og Skota á laugardaginn?
Spurning dagsins í dag:
Hvenær lýkur stríðinu í Írak?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
36%
32%
32%
Hvaða leik?
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is