Fréttablaðið - 27.03.2003, Page 7

Fréttablaðið - 27.03.2003, Page 7
8 27. mars 2003 FIMMTUDAGUR LONDON, AP Stríðsglæpir kunna að hafa verið drýgðir á báða bóga af þeim sem berjast í Írak, að sögn Amnesty International. „Sérhver árás á óbreytta borg- ara er stríðsglæpur,“ sagði Claudio Cordone, helsti forvígis- maður samtakanna í alþjóðarétti. „Þeir sem reyna að eyða muninum á hermönnum og óbreyttum borg- urum grafa undan grundvallar- sjónarmiðum mannúðarlaga.“ Amnesty segir að Bandaríkja- menn hafi gert sig seka um stríðs- glæp þegar þeir skutu flugskeyt- um á helstu sjónvarpsstöð Íraka. „Þetta er borgaralegt skotmark og því verndað af alþjóðalögum um mannúðarmál,“ sagði Cord- one. Hann sagði að ekki væri hægt að ráðast á sjónvarpsstöð einfaldlega vegna þess að hún væri notuð í áróðursskyni. Helstu stríðsglæpir Íraka sem Amnesty nefnir er að koma her- sveitum sínum og hernaðarmann- virkjum fyrir í nágrenni við óbreytta borgara. Þá fordæmdu samtökin Íraka fyrir að skjóta viljandi á eigin borgara í borginni Basra í suðurhluta Íraks. ■ ■ Innrás í Írak/ Kofi Annan ■ Innrás í Írak/ Mannúðarstarf Borgaraleg skotmörk verða fyrir árásum: Stríðsglæpir á báða bóga BAGDAD, AP Mannskæðasta einstaka atvikið sem hefur kostað óbreytta borgara lífið frá því átök hófust í Írak átti sér stað í Bagdad í gær. Þá létu fjórtán einstaklingar lífið þeg- ar tvo bandarísk flugskeyti sprungu í íbúðahverfi í Bagdad að sögn íraskra stjórnvalda. 30 manns að auki særðust í sprengingunum. Sprengingarnar skildu eftir sig mikla eyðileggingu. Byggingar brunnu, vatn flæddi yfir göturnar þegar vatnsleiðslur sprungu, götu- ljós féllu og bílar og tré þeyttust til. Flugskeytin lentu í þéttbýlu hverfi Bagdad þar sem er að finna mörg íbúðarhús auk nokkurra veitinga- staða og bifreiðaverkstæða. Meðal þeirra skotmarka sem bandaríski herinn skaut að voru sjónvarpsstöðin í Bagdad, fjar- skiptamiðstöðvar og upplýsinga- ráðuneytið. Talsmenn bandaríska hersins sögðust ekki geta staðfest að bandarísk flugskeyti hefðu sprungið í íbúðahverfinu. „Við gerum allt sem í okkar valdi stend- ur til að vera nákvæmir í árásum okkar.“ ■ Fjórtán óbreyttir borgarar féllu og 30 særðust: Flugskeyti sprungu í íbúðahverfi MIKIL EYÐILEGGING Mannfjöldi lagði leið sína að staðnum þar sem flugskeytin sprungu. Mikil reiði greip um sig. Matvæli flutt til Írak UMM QASR, AP Flutningar eru hafn- ir á vatni og matvælum til Íraks. Þetta er upphafið að mikilli mann- úðaraðstoð sem George W. Bush Bandaríkjaforseti hafði lofað. Fyrstu flutningalestirnar voru minni í sniðum en stefnt hafði verið að. Sjö stórir flutningabílar komu með birgðir frá Kúvæt til hafnarborgarinnar Umm Qasr. Stefnt hafði verið að því að 30 flutningabílar tækju þátt í fyrstu flutningunum. Ekki tókst að hlaða þá vegna óveðurs, að sögn for- stöðumanns stofnunarinnar sem sér um flutningana. ■ HÚSARÚSTIR Í BAGDAD Slökkviliðsmenn huga að því sem eftir stendur af húsi í Bagdad sem varð fyrir sprengjum. Bandaríkjamenn vörpuðu sprengjum á sjón- varpsstöð í Bagdad í fyrrinótt. Auknar áhyggjur SÞ, AP „Ég hef sífellt meiri áhyggj- ur af mannfalli meðal óbreyttra borgara í þessum átökum,“ sagði Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna. „Ég vil minna alla ófrið- araðila á að þeir ættu að virða al- þjóðleg mannréttindalög og grípa til allra nauðsynlegra ráða til að vernda borgara. Þeir eru ábyrgir fyrir velferð almennings á svæð- inu.“ Annan minntist sérstaklega á fréttir af því að óbreyttir borgar- ar hefðu látið lífið þegar flug- skeyti Bandaríkjamanna hefðu sprungið í íbúðahverfi. Á fundi með Condoleezza Rice, öryggis- ráðgjafa Bandaríkjaforseta, minnti hann á að Bandaríkin bæru lagalega skyldu til að aðstoða borgara sem biðu tjón vegna stríðsins. ■ AP /M YN D AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.