Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 10

Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 10
FIMMTUDAGUR 27. mars 2003 VELFERÐARKERFIÐ Eitt hundað og ell- efu fjölskyldur voru afgreiddar með matargjöfum í síðustu viku hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavík- ur. Ásgerður Flosadóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, segir marga hafa þurft frá að hverfa. „Ástandið er búið að vera slæmt síðan í september árið 2001. Fjöldinn er í takt við tölur um auk- ið atvinnuleysi. Við erum örugg- lega með þeim fyrstu sem greina vandann þegar illa árar hjá fólki.“ Ásgerður segist búast við að sjá aukinn fjölda fólks leita sér aðstoð- ar á þessu ári. „Þegar á heildina er litið tel ég íslenska velferðarkerfið vera ágætt en það eru ákveðnir hópar sem ekki njóta þess. Um er að ræða tekjulága, einstæðar mæður og ör- yrkja sem ungir hafa farið á bætur. Þá má ekki gleyma öldruðum sem einungis búa við greiðslur úr tryggingakerfinu,“ segir Ásgerður. ÁSGERÐUR FLOSADÓTTIR „Ríkið býður upp á þetta vonleysi. En vert er að geta þess sem gott er og lýsi ég ánægju minni yfir ákvörðun stjórnvalda að bæta kjör öryrkja.“ Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur: Ríkið býður upp á vonleysi FRAMKVÆMDIR „Miklar fram- kvæmdir hefjast hér í næstu viku, Hafnargatan, sem er aðal- verslunargata bæjarnis, verður tekin í gegn og henni gefin and- litslyfting. Það er búið að bíða eftir þessu í mörg ár,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Fasteignaeigendum við Hafn- argötu voru kynntar þessar framkvæmdir á mánudag og lík- lega verður skrifað undir samn- inga á morgun. Breytingar verða í stíl við Skólavörðustíg- inn í Reykjavík þar sem hellur verða lagðar á götuna. Reykjanesbær: Hafnargata fær andlitslyftingu REYKJANESBÆR Framkvæmdir framundan.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.