Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 25
27. mars 2003Fermingablaðið
FERMINGARGJAFIR
Gullsmiðja Hansínu Jens
Laugaveg 20b, v/ Klapparstíg, sími 551 8448
Ég fékk ágætt Yamaha-hljóm-borð, ansi stórt og mikið,“
segir Ómar Örn Hauksson, annar
umsjónarmanna Popp og kók á
SkjáEinum, aðspurður um eftir-
minnilegustu fermingargjöfina.
„Ég hafði sýnt áhuga á að eignast
hljómborð fyrir jólin áður en ég
fermdist og fékk þá lítið Casio-
hljómborð. Því sýndi ég slíkan
áhuga að foreldrar og skyldmenni
slógu saman í þetta stóra fyrir
fermingardaginn.“
Ómar Örn hefur þó aldrei
kunnað á hljóðfæri og hljómborð-
ið varð ekki til þess að hann lærði
það. „Með litla hljómborðinu
fylgdu kubbar með lögum sem
kenndu manni lagið. Þannig lærði
ég tvö, þrjú lög eins og Georgia
on My Mind og fleiri skemmtileg.
Stóra hljómborðinu fylgdu hins
vegar engir leiðarvísar, svo ég
komst aldrei upp á lagið með að
spila neitt á það. Áhuginn dvínaði
þar af leiðandi á tveimur vikum.“
Nú á dóttir kunningja Ómars
hljóðfærið. „Ég gaf henni það
fyrir tveimur árum og hún nýtir
það, sem er fínt,“ segir Ómar
Örn. ■
Það hefur verið gagnrýnt aðvið notum orðið ferming í
þessu samhengi, en það er orð
sem hefur nokkrar merkingar og
ein af þeim er að styðja og styrk-
ja. Það er nú eiginlega það sem
borgaraleg ferming gengur út
á,“ segir Jóhann Björnsson heim-
spekingur, sem sér um undirbún-
ing Siðmenntar fyrir borgara-
lega fermingu. „Þetta er leið-
sögn, þar sem við viljum styðja
okkar æskufólk út í lífið.“
Jóhann segir krakkana sækja
undirbúningsnámskeið þar sem
ýmislegt er tekið fyrir sem kem-
ur þeim að góðum notum í lífinu.
„Ég hef stundum sagt við krakk-
ana að ég sé ekki beint að kenna
þeim svo mikið, frekar að efla
með þeim svona umhugsunar-
virkni, að þau læri að hugsa á
gagnrýninn hátt. Undirliggjandi
er svo auðvitað að þau leitist við
að verða góðar manneskjur.
Jóhann segir sumt af náms-
efninu breytilegt frá ári til árs
því reynt sé að taka mið af því
sem er að gerast í samfélaginu
hverju sinni.
„Í ár ræddum við til dæmis
hvað felst í því að taka erfiða
ákvörðun. Þau fengu nokkur
dæmi þar sem þau þurftu að
velja milli erfiðra kosta. Þá er
mikið lagt upp úr að kenna
mannleg samskipti, ekki síst
milli unglinga og fullorðinna.
Ágreiningsefnin eru skoðuð og í
sameiningu finnum við út
hvernig best er að leysa vanda-
málin.“
Jóhann segir að krakkarnir
ræði vímuefni, forvarnir, sam-
skipti kynjanna, einelti og for-
dóma. „Við höfum lagt mikla
áherslu á að ræða fordóma og
það að vera öðruvísi. Til okkar
koma krakkar af ýmsu þjóðerni
og úr mörgum trúfélögum. Það
er því mikilvægt að krakkarnir
skilji að fólk getur haft mismun-
andi skoðanir en samt verið vin-
ir. Námskeiðið endar svo með há-
tíðlegri athöfn í Háskólabíói sem
er sniðin líkt og útskrift úr
skóla,“ segir Jóhann.
Foreldrar barnanna skipu-
leggja athöfnina og stjórna henni
með hjálp Siðmenntar. Börnin
sjálf eru í aðalhlutverkinu, flutt
eru ávörp, ljóð og sögur og spilað
á hljóðfæri. Að lokum fá þau
skrautritað skjal til staðfesting-
ar því að þau hafi lokið ferming-
arnámskeiðinu. ■
Engir leiðarvísar
með hljómborðinu
– Ómar Örn Hauksson gafst upp á
spilamennskunni eftir tvær vikur
Eftirminnilegast
úr fermingunni
ÓMAR ÖRN HAUKSSON
Fermingargjöfin varð ekki til þess að hann
lærði á hljóðfæri. Hann hefur nú gefið
gripinn þangað sem hann nýtist betur.
Það er í lagi að
vera „öðruvísi“
90 börn ætla að fermast borgaralega í ár. Undirbúningurinn
felst meðal annars í því að temja sér sjálfstæða hugsun.
Hvað er
borgaraleg ferming?
JÓHANN BJÖRNSSON HEIMSPEKINGUR
Jóhann segir áherslu Siðmenntar í fermingarundirbúningnum vera heilbrigð og farsæl viðhorf ungmenna til lífsins.
M
YN
D
/R
Ó
B
ER
T
M
YN
D
/T
H
O
R
ST
EN