Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 30

Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 30
27. mars 2003 Fermingablaðið 17 Kannski er til smuga sem passar þér Ljósmyndastofan Mynd sími: 565 4207 www.ljosmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 554 3020 Þessir grænmetisréttir sóma sér vel á ferm- ingarborðinu hvort sem boðið er upp á kaffi og kökur eða mat. Botn: 4 dl spelt eða heilhveiti 3- 4 tsk. lyftiduft (vínsteinslyftiduft frá YGG- DRASIL) 1/2 - 1 tsk. salt ca 2 dl ab-mjólk eða sojajógúrt og/eða volgt vatn ● Mjöli, lyftidufti og salti er blandað sam- an í skál, ab-mjókin hrærð út í. Ef deigið er of blautt er smá mjöli bætt út í, ef það er of þurrt er meiri vökva bætt út í - það á að vera líkt og eyrnasnepill við- komu. Deigið er síðan flatt út, sett í smurt form og forbakað við ca. 200˚C í 5 mín. Fylling: 150 g sólþurrkaðir tómatar, úr krukku 150 g þistilhjörtu, úr krukku 150 g möndlur eða hnetur, þurrristaðar í ofni í ca. 5 mín við 200˚c 150 g rifinn soja-mosarella ostur 150 g tófú, hellið vatninu af og létt kreistið það með eldhúspappír smá salt og cayennepipar 1 hnefi ferskt grænt krydd - hvað finnst þér best? t.d. kóríander - basil - graslaukur - timian - fáfnisgras - sítrónumelissa ● Allt sett í matvinnsluvélina nema soja- osturinn og maukað vel. Sojaostinum er blandað saman við fyllinguna, sem er sett í forbakaða bökubotninn. Bakað við 200˚C í ca. 10 mín. eða þar til þær eru orðnar gylltar á yfirborðinu. Skreytt með fersku grænu kryddi. Tómat- og mósarellafylling 2 msk. sinnep 6-8 tómatar í frekar þunnum sneiðum 3 mosarellaostar, t.d. þessi íslenski, í frekar þunnum sneiðum 1 dl ólífuolía 1 búnt ferskt basil 1 hvítlauksrif smá sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar ● Smyrjið forbakaða bökubotninn með sinnepi. Raðið tómatsneiðum og mósarellasneiðum til skiptis og þekið allan botninn. Setjið í blandara eða matvinnslu- vél olíu, basil og hvítlauk og hellið yfir bök- una. Kryddið með smá sjávarsalti og ný- möluðum svörtum pipar. Bakið við ca 200˚C í 10 mín. Kartöflubaka smá ólífuolía 1 púrrulaukur 1 rauðlaukur 1/2 tsk. múskat 1/2 tsk. karrý smá sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar 5 meðalstórar soðnar kartöflur – afhýddar ca 50 g rifinn jurtamosarellaostur ferskt kóríander nokkrar sneiðar af ferskum parmesan 25 g furuhnetur – þurrristaðar ● Hitið ólífuolíuna á pönnu og mýkið púrruna og rauðlaukinn þar á í ca. 10 mín. eða þar til þetta verður gyllt og flott. Krydd- ið með múskati, karrýi, smá sjávarsalti og nýmöluðum pipar. Skerið kartöflurnar í sneiðar, t.d. í eggjaskera, og raðið þeim í forbakaðan bökubotninn og stráið mosa- rellaostinum yfir. Hellið laukmaukinu yfir og bakið við 200˚C í ca 10 mín. Stráið ferskum kóríander og sneiðum af ferskum parmesanosti yfir ásamt furuhnetum. Flestir sem haldaf e r m i n g a r v e i s l u senda út boðskort til ætt- ingja og vina. Boðskort geta verið margvísleg, en skemmtilegast er að þau séu ögn persónuleg. Svanhildur Óskarsdóttir, móðir fermingarbarns- ins Óskars Kjartansson- ar, er ein þeirra sem bjuggu til persónulegt boðskort. „Þetta er svona eins og lítil bók með mynd af Óskari á forsíðunni. Inni í bókinni er svo boðskortið og gömul gullkorn frá því að Óskar var lítill,“ segir Svanhildur. „Ég hef safnað saman skemmtilegum tilsvörum frá því hann byrjaði að tala og á nóg til að gera boðskort fram eftir ævi fyrir hann, til dæmis fyrir útskriftir og gift- ingu,“ segir hún hlæjandi. Svanhildur er svo heppin að vinna hjá fyrirtæki sem heitir Samskipti, sem er með ljósritun- ar- og prentþjónustu. „Þeir hjálp- uðu mér með kortið. En aðalatrið- ið er að fá skemmtilegar hug- myndir og gera þetta persónu- legt,“ segir hún. ■ Grænt og góm- sætt í ferminguna Sólveig Eiríksdóttir á Grænum kosti ráðleggur grænmetisbökur með mismunandi fyllingum. SOLLA Á GRÆNUM KOSTI Er þekkt fyrir upskriftir að girnilegum og hollum grænmetisréttum. GRÆNMETISBAKA Góð og holl og þar að auki falleg á fermingarborðinu. Persónuleg boðskort skemmtilegust – og auðveld að búa til BOÐSKORTIÐ HANS ÓSKARS Óskar er hæstánægður með kortið og full- ur tilhlökkunar fyrir fermingardaginn. M YN D /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.