Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 31
27. mars 2003Fermingablaðið18
Blóm og skreytingar setja há-tíðlegan svip á fermingardag-
inn og eru skemmtilegur hluti
undirbúningsins. Áslaug Hlíf
Jensdóttir, blómaskreytingakona
og eigandi blómaverslunarinnar
Allt í blóma, segir foreldra og
fermingarbörn auðveldlega geta
séð um skreytingarnar sjálf.
„Einfaldleikinn er allsráðandi og
hægt að fá tilbúnar skrautlengjur
á borðin og á kertin. Enn fremur
er hægt að klippa lengjurnar til
eftir hentugleika, til dæmis sem
skraut í hár.
Fiðrildi alls kon-
ar njóta líka
mikilla vinsælda
og passa nánast
hvar sem er.“
Áslaug Hlíf
segir að hægt sé
að skreyta hvít-
dekkuð borð með einföldum, lituðum renning-
um sem gefa fallega heildarmynd.
„Einfaldleikinn er líkja ríkjandi í
kertavali, falleg stór kerti með
krossi sem er gerður úr vír, perl-
um eða skrautlengjum eru vin-
sælust.
Glervasar, flotkerti og skraut-
steinar eru fallegir í vatn og hægt
að fá liti í vatnið í öllum tónum.
Þar er til dæmis lime-liturinn
skemmtilegur og hentar báðum
kynjum,“ segir Áslaug Hlíf. ■
Einfaldleikinn alls-
ráðandi í skreytingum
– litaðir renningar og stór kerti með krossi
STÓR
LÁTLAUS KERTI
Kerti með krossi, til
dæmis úr vír, perlum
eða skrautlengjum,
eru vinsælust.
STÍLHREINT
Flotkerti og skrautsteinar í vatni eru
falleg borðskreyting.
SKREYTTIR GLERVASAR OG GLÖS
Hægt að útfæra á ýmsa vegu og taka
sig vel út á hvítdekkuðu borði.
Fermingarveislur á Íslandi eruoft heldur þunglamaleg sam-
kvæmi þar sem fólk, sem þekkist
jafnvel lítið, kemur saman, borð-
ar, drekkur kaffið sitt og fer. Eft-
ir alla vinnuna og undirbúninginn
er það synd og skömm ef veislan
er ekki vel heppnuð og skemmti-
leg.
Frændur vorir Danir leggja
mikið upp úr skemmtilegum
veislum og gera þá fermingar-
börnum jafn hátt undir höfði og
brúðhjónum og afmælisbörnum.
Brúðkaupsveislur á Íslandi eru
gjarnan vel skipulagðar og all-
skyns uppákomur til skemmtunar.
Það er ekkert sem segir að hið
sama eigi ekki að gilda um ferm-
ingarveislur. Ræður, leikir og
tónlist ættu að skipa veglegan
sess í fermingarveislunni og
gestirnir mega gjarnan vera
virkari. Skipuleggið því endi-
lega veisluna vel í samráði við
fermingarbarnið og nánustu fjöl-
skyldu og vini, hristið saman
gestina og hafið gaman af öllu
saman. ■
Gerum fermingar-
veisluna skemmtilega
– nokkur góð ráð fyrir veisluhaldara
1. Fáið einhvern nákominn fermingar-
barninu til að vera veislustjóri.
2. Fáið einhvern til að halda ræðu eða
ávarpa barnið.
3. Athugið hvort einhver í fjölskyldu- eða
vinahópnum spilar á hljóðfæri (t.d. harm-
onikku eða gítar). Biðjið viðkomandi að
taka hljóðfærið með og spila undir fjölda-
söng.
4. Prentið út söngtexta og setjið við hvern
disk.
5. Ef einhver hagmæltur er nákominn
fermingarbarninu er sniðugt að fá
hann/hana til að semja hátíðarvísur.
6. Athugið hvort einhver í fjölskyldunni
lumar á skemmtilegum leikjum eða uppá-
komum. Fáið veislustjórann til að stjórna
gamninu.
7. Kannski eru börn í samkvæminu sem
er sitthvað til lista lagt. Fáið þau til að
syngja eitt lag eða spila á hljóðfærið sem
þau eru að læra á.
SKEMMILTEGHEIT Í BLAND VIÐ MAT OG KÖKUR
Fermingarveislur, ólíkt brúðkaupsveislum og stórafmælum á Íslandi, eru oft óskipulagðar.
Hvort sem veislan er haldin í heimahúsi eða sal er alltaf pláss fyrir skemmtilegar uppákomur.
Ef bjóða á upp á kaffi og kökurí fermingarveislunni er snið-
ugt að byrja strax í janúar að
huga að bakstri. Veljið tertur
sem auðvelt er að setja í frysti og
þær sem ekki þarf að skreyta
mikið. Veljið fimm sortir og bak-
ið eina tertu hverja helgi og skel-
lið í frysti. Sniðugra er að hafa
tegundirnar færri en fleiri og
hafa frekar tvær kökur af hverri
tegund.
Sniðug t