Fréttablaðið - 27.03.2003, Page 34

Fréttablaðið - 27.03.2003, Page 34
FIMMTUDAGUR 27. mars 2003 15 Knattspyrnan í Rio de Janeiro: Slagsmál, brottrekstrar og 78 fríspörk FÓTBOLTI Vasco da Gama varð meistari Rio de Janeiro-héraðs á sunnudag eftir 2-1 sigur á Flu- minense. Leo Lima og Souza skoruðu fyrir Vasco en Ademil- son fyrir Fluminense. Vasco vann einnig fyrri leik félaganna 2-1. Einum leikmanni úr hvoru liði var vísað af velli og Antonio Lopes, þjálfari Vasco da Gama, var rekinn af vettvangi eftir hópslagsmál. Fríspörkin urðu 78. Lopes, sem mætti til leiks í happafötunum sínum, gulri skyr- tu sem táknar árangur og hvítum buxum sem tákna frið, henti bolt- anum í Alex Oliveira, leikmann Fluminense, sem lá meiddur á vellinum. Á augabragði leystist leikurinn upp í slagsmál sem leikmenn og forráðamenn félag- anna, lögreglumenn, fréttamenn og ýmsir aðrir tóku þátt í. Lopes, sem var tækniþjálfari brasilísku heimsmeistaranna í fyrra, gekk vasklega fram í slagsmálunum, hvattur af forseta félagsins, Eurico Miranda. Þrátt fyrir ofbeldið í leiknum fögnuðu leikmenn Vasco da Gama titlinum með borða sem á stóð: „Jesús, þessi sigur er fyrir þig“. ■ ROMARIO CR Vasco da Gama frá Rio de Janeiro er eitt fremsta knattspyrnufélag Brasilíu. Félagið var stofnað árið 1898 en heimavöllur þess heitir Sao Januario. Romário de Souza Faria er einn þekktasti leikmaður félagsins en hann lék með Vasco da Gama árin 1985 til 1988 og 2000 til 2002. Meistaradeild 2004: Ræðst í Þýskalandi FÓTBOLTI Úrslitaleikur Meistara- deildar Evrópu verður háður á AufSchalke leikvanginum í Gel- senkirchen í Þýskalandi á næsta ári. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti um ákvörðunina í gær. Úrslitaleikur deildarinnar var síðast leikinn í Þýskalandi árið 1997 þegar Borussia Dortmund vann Juventus með 3 mörkum gegn einu á Ólympíuleikvanginum í München. Einnig hefur verið ákveðið að úr- slitaleikur Evrópukeppni bikarhafa verði háður á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg. Úrslitaleikir keppninn- ar voru einnig spilaðir á Ullevi árin 1983 og 1990. ■ AÐMÍRÁLLINN David Robinson, eða Aðmírállinn eins og hann er kallaður, í baráttu við Tim Thomas, leikmann Bucks. Robinson skoraði 10 stig í leiknum. David Robinson: Kvaddur með virktum KÖRFUBOLTI David Robinson, leik- maður San Antonio Spurs, var kvaddur með virktum eftir sigur- leik liðsins gegn Milwaukee Bucks, 107:94, í NBA-deildinni í körfubolta í fyrrakvöld. Robinson leggur skóna á hill- una eftir þessa leiktíð og var leik- urinn tileinkaður honum. „Aðdá- endur San Antonio, þið eruð frá- bærir, ég elska ykkur alla,“ sagði Robinson eftir leikinn. Robinson hefur leikið með Spurs allan sinn feril, eða í 13 ár. Hann varð m.a. meistari með lið- inu árið 1999. ■ AP/M YN D Jean Tigana: Hættir hjá Fulham FÓTBOLTI Samningur Jean Tigana, knattspyrnustjóra Fulham, verð- ur ekki endurnýjaður að lokinni þessari leiktíð. Þetta kom fram í bréfi sem Mo- hamed Al Fayed, eigandi liðsins, sendi Frakkanum. Þar segist Fayed aldrei hafa efast um hæfni Tigana sem stjóra en vegna von- brigða undanfarinna tveggja tímabila hafi hann neyðst til að taka þessa ákvörðun. Tigana kom til Fulham í júlí árið 2000 og kom félaginu upp í úrvalsdeild á sinni fyrstu leiktíð. Erfiðlega hefur hins vegar gengið undanfarið og er liðið nú í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.