Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 38

Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 38
19FIMMTUDAGUR 27. mars 2003 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 BLUE CRASH kl. 7 THUNDERPANTS kl. 4 og 5 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 4 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30 b.i. 12 ára FRIDA b.i. 12 kl. 5.30 og 8 THE HOURS b.i. 12 5.40, 8 og 10.20 PUNCH DRUNK b.i. 12 kl. 10.10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 12 ára Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára Þú átt meira skilið. Þess vegna færðu nú meiri Volkswagen. Komdu og fáðu þér nýjan Golf, Golf Variant, Golf Variant 4Motion* eða Bora með ótrúlega glæsilegum aukahlutapakka sem fylgir með í kaupunum. Komdu strax og nældu þér í meiri VW! Volkswagen HEKLA • Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • www.hekla.is • hekla@hekla.is * 4Motion er sítengt aldrif með rafeindastýringu fyrir aukið veggrip. Golf Variant 4 Motion frá 36.488 kr. á mánuði í 3 ár. Golf Variant kostar frá 1.940 þús. Innifalið í rekstrarleigu: 20.000 km. akstur á ári, smurþjónusta og þjónustuskoðanir. Rekstrarleiga er háð gengi gjaldmiðla og getur því breyst án fyrirvara. Í fyrra vann MR með fjórum stig- um eftir að MS hafði haft forystu fram yfir miðja keppni. Mest komst liðið fimm stigum yfir spurningaliðsvaltarann MR, sem hífði upp um sig buxurnar í restina. Þar á undan hafði MS ekki komist í úrslit í meira en tíu ár. Úlfur Einarsson á harma að hefna þar sem hann var í tapliði MS í fyrra. Félagi hans Ásbjörn Jónas- son var líka í liðinu og allir liðs- menn MR eru þeir sömu. Eini nýlið- inn í úrslitakeppninni á morgun verður því Hjördís Alda Hreiðars- dóttir, sem er í fyrsta bekk MS. Úlf- ur segir pressu vera á liði MS. „Ég myndi samt halda að það væri meiri pressa á MR,“ segir hann. „Það er örugglega svolítið erfitt að hafa tíu ára sigur á bakinu. Ég ætla að vinna. Ég er ekki í þessu til að tapa. MR-ingar hljóta að tapa einhvern tímann, það hlýtur að fara að styttast í það. Það eru að minns- ta kosti ekki minni líkur á því núna en í fyrra.“ Úlfur segir MS-liðið vera reynslunni ríkara eftir ævintýrið í fyrra. Í ár var því byrjað að æfa í október og hefur liðið haldið til streitu tveimur æfingum í viku. Þeim hefur þó ekki verið fjölgað þrátt fyrir að liðið sé komið í úrslit. „Það er alveg óþarfi að gera ein- hverjar aukaráðstafanir þó að við séum komin í úrslit. Þetta hefur gengið ágætlega hingað til.“ Hjá MR skall hurð nærri hælum í fyrra og var þá níu ára sigur- ganga skólans næstum rofin. Er pressan meiri vegna þessa, eins og Úlfur heldur? „Pressa? Nei, nei, við höfum bara gaman að þessu,“ segir Oddur Ástráðsson sallarólegur. „Við erum bara sprækir og höfum fulla trú á okkur. Við ætlum að gera okkar besta og teljum að það muni duga. Þau komust í úrslit á móti okkur, og hljóta því að vera verðugustu and- stæðingarnir. Það er bara fínt að hafa þessa sigurhefð á bakinu. Þetta er gríðarlegur reynslubanki sem við sækjum mikið í.“ Ólíkt MS hefur æfingum fjölgað hjá liði MR því lengra sem liðið hefur á keppnina. „Þetta er bara geðsýki. Við æfum daglega og lengi. Við byrjuðum að æfa einu sinni í viku fyrir jól. Við erum bún- ir að búa okkur andlega undir tap. Við tökum því bara eins og menn. Við ætlum bara að gera eins vel og við getum. Vera sjálfum okkur og okkar skóla til sóma,“ segir Oddur að lokum. Keppnin fer fram í Vetrargarði Smáralindar á morgun og hefst bein útsending Sjónvarpsins kl. 20.10. biggi@frettabladid.is LIÐ MS Lið MS er skipað tveimur sem lentu í öðru sæti í fyrra auk eins nýnema. Þau eru: Úlfur Einarsson, Höskuldur Daníelsson liðsstjóri og Ásbjörn Jónasson. Í fyrra rétt marði MR sigur á andstæðingum sínum úr MS í úrslitakeppni „Gettu Betur“. Á morgun er komið að annarri úrslitaviðureign stórskotaliðanna. ■ SJÓNVARP LIÐ MR Sigurlið MR frá því í fyrra er mætt aftur til leiks. Þeir eru: Oddur Ástráðsson, Snæbjörn Guðmundsson, Helgi Hrafn Guðmundsson liðsstjóri og Atli Freyr Steinþórsson. MR gegn MS, taka tvö! FRÉTTAB LAÐ IÐ /TH O R STEN FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.