Fréttablaðið - 27.03.2003, Page 42
FIMMTUDAGUR 27. mars 2003
VERÐMYNDUN Sigurður Bernhöft óp-
erusöngvari hefur lagt fyrir sig
bjórinnflutning og náð þeim ár-
angri að bjóða upp á ódýrasta bjór-
inn í Ríkinu. Sá heitir Faxe, er
danskur og helsti keppinautur
Tuborg og Carlsberg í Danmörku.
Sigurður býður bjór sinn á 159
krónur stykkið í hálfs lítra dós í
verslunum ÁTVR á meðan aðrir
kosta um og yfir 200 krónur. Sig-
urður er stoltur af þessum árangri
sínum en svíður jafn mikið að fá
ekki að koma skilaboðum þar að
lútandi til viðskiptavina sina:
„Þegar fólk kemur inn í Ríkið
veit það í raun og veru ekki hvar er
hægt að gera bestu kaupin í bjórn-
um. Að vísu eru þarna verðmerk-
ingar en það þarf að leita að þeim.
Ef ástandið ætti að vera eðlilegt og
neytendum í hag ætti bjórinn minn
að vera á tilboðspalli eins og sultu-
krukkur í Bónus,“ segir hann.
Bjór söngvarans í Ríkinu kostar
í raun og veru ekki nema 36,99
krónur þó hann sé seldur á 159
krónur. Allt annað eru gjöld og
munar þar mest um áfengisgjald,
sem er 68,97 af hverri dós. Þá er
virðisaukaskatturinn 31,28 krónur,
álagning ÁTVR 14,69 krónur og
skilagjald 7,23 krónur. Að öllu sam-
anlögðu: Bjórdósin kostar 37 krón-
ur en gjöldin sem lögð eru á dósina
eru 122 krónur. ■
EYVINDUR ERLENDSSON Í BRUSSEL
Það er ekkert líklegra en að í þessari gler-
höll búi bæði draugar og tröll.
Tvær heimildarmyndir
í sjónvarpi:
Draugar,
tröll og
einelti
SJÓNVARP Heimildarmyndir hafa
verið á dagskrá ríkissjónvarps að
undanförnu í meiri mæli en áður.
Má þar nefna myndir um Lalla
Johns, Hlemm, Vigdísi Finnboga-
dóttur og nú síðast tælensku kon-
urnar Pam og Noi. Næstkomandi
sunnudagskvöld verður frumsýnd
í ríkissjónvarpinu enn ein íslensk
heimildarmynd, sem ber heitið
Herför til Brussel. Segir þar frá
vikulangri för nokkurra íslenskra
og erlendra félagsmanna í
Drauga- og tröllaskoðunarfélagi
Evrópu, sem fóru á fund Evrópu-
sambandsins í Brussel haustið
2001.
Í sendinefndinni voru bændur,
prófessorar og allt þar á milli,
jafnvel mórar og skottur og er Ey-
vindur Erlendsson umsjónarmað-
ur myndarinnar.
Sjónvarpið lætur ekki þar við
sitja því í kvöld verður á dagskrá
þáttur um einelti, sem talsvert
hefur verið í umræðunni að und-
anförnu. Hann ber nafnið „Einelti
– helvíti á jörð“ og verður sýndur
klukkan 20.10. Að sögn aðstand-
enda þáttarins er markmiðið að
varpa ljósi á einelti. Talað er við
þekkta sem óþekkta Íslendinga
sem tengjast einelti á einn eða
annan hátt. Höfundar eru Krist-
björn H. Björnsson og Sigurður
Hólm Gunnarsson. ■
RAFMAGNSLAUST
Texasbúinn og rithöfundurinn Mimi Swartz
ræðir um bók sína „Power Failure“ sem
kom út í gær en í bókinni rekur hún sögu
Enron-hneykslisins í samstarfi við upp-
ljóstrarann Sherron Watkins.
23
BJÓRVERÐIÐ
Viðisaukaskattur 31,28 kr.
Álagning ÁTVR 14,69 kr.
Skilagjald 7,29 kr.
Áfengisgjald 68,97 kr.
Heildsöluverð 36,99 kr.
Býður upp á ódýrasta bjórinn – en enginn veit af því:
Bjórinn kostar 37 krónur
– annað eru gjöld
JANE SEYMOUR
Þessi fornfræga leikkona og Bondgella
stillir sér upp fyrir ljósmyndara þegar hún
mætti á nýja söngskemmtun Celine Dion í
Las Vegas á þriðjudaginn. Skemmtunin
heitir „A New Day“ eða „Nýr dagur“.