Fréttablaðið - 27.03.2003, Page 45
Hrósið 26 27. mars 2003 FIMMTUDAGUR
RÍKISBORGARI Þór Saari, hagfræð-
ingur hjá Lánasýslu ríkisins, hef-
ur tekið þá ákvörðun að afsala sér
bandarískum ríkisborgararétti:
„Ég heiti Saari vegna þess að
faðir minn var fæddur í Finnlandi
en bjó í Bandaríkjunum. Hann var
yfirmaður hjá bandarískum flug-
félögum á Keflavíkurflugvelli og
þá kynntist hann móður minni,“
segir Þór um eftirnafn sitt og
bandaríska ríkisborgararéttinn
sem hann vill nú losna við. „Ég bjó
í Bandaríkjunum fram til sex ára
aldurs þegar foreldrar mínir
skildu og þá flutti ég til Íslands
ásamt móður minni og systur.“
Þór tók gamla landsprófið og
lagðist síðan í heimssiglingar á
fraktskipum og telst til að hann
hafi heimsótt 60 þjóðlönd. Að því
loknu fór hann aftur til Bandaríkj-
anna til náms og var þar í tíu ár ef
frá er talið eitt sumar þegar hann
kenndi ensku í Barcelona.
„Núna nýt ég þess mest að
ferðast um Ísland og þá sérstak-
lega um hálendið. Þegar maður
hefur ferðast um heiminn í 20 ár
finnst manni nóg komið og þá vill
maður vera heima,“ segir Þór
Saari, sem er kvæntur Sólveigu
Jóhannesdóttur hjúkrunarfræð-
ingi og saman eiga þau þriggja
ára dóttur. ■
ÞÓR SAARI
Eftir að hafa ferðast í 20 ár um heiminn
vill hann nú vera heima.
Persónan
■ Þór Saari hagfræðingur hefur ósk-
að eftir því að fá að afsala sér banda-
rískum ríkisborgararétti. Hefur hann
lagt erindi þessa efnis fram í banda-
ríska sendiráðinu við Laufásveg.
FJÖLMIÐLAR Það fer ekki á milli
mála. Samkvæmt niðurstöðum
síðustu áhorfskönnunar Gallups
er Vala Matt með langvinsælasta
þáttinn á Skjá einum og skýtur
bæði heimsþekktum framhalds-
myndaflokkum og Silfri Egils ref
fyrir rass. Nýjungagirnin á Skjá
einum bitnar ekki á Völu, sem
verið hefur lengur í íslensku sjón-
varpi en flestir aðrir – og alltaf
brosandi.
„Ég veit ekki hvað veldur
þessu en ég reyni alltaf að vera í
núinu og gera eingöngu það sem
mér finnst skemmtilegt. Ætli það
sé ekki það sem hrífur fólk með,“
segir Vala, sem er höfundur þátt-
arins Innlit-útlit frá a til ö. Klipp-
ir, lýsir og stjórnar öllu saman.
Enda vön manneskja.
Því hefur verið haldið fram að
vinsældir þáttar Völu Matt helgist
af því að hún sé í raun að full-
nægja gægjuþörf fólks með því að
fara heim til fólks og sýna hvað
býr að baki luktum dyrum og
gluggatjöldum. Því neitar Vala
sjálf: „Ég vil ekki nota orðið gægj-
ast því það hefur neikvæða merk-
ingu. Við erum að líta inn til fólks
og forvitnast um hvernig mis-
munandi karakterar búa til sitt
umhverfi – búa sér til hreiður. En
það besta er að af viðbrögðum
áhorfenda ræð ég að margir fá
þarna hugmyndir um hvernig þeir
sjálfir geta búið til sín hreiður og
það er gott,“ segir Vala, sem er
ekki á förum úr sjónvarpinu og
ætlar að halda heimsóknum sín-
um til fólks á skjánum áfram á
meðan einhver vill horfa: „Ég hef
aldrei áður verið svona lengi með
einn sjónvarpsþátt og það er bara
af því ég hef svo gaman af þessu.
Ef mér fer að leiðast þá sný ég
mér að einhverju öðru,“ segir
galdrakonan í sjónvarpinu – enn á
toppnum eftir öll þessi ár.
eir@frettabladid.is
Imbakassinn
Fær Jón Kristjánsson heilbrigð-is- og tryggingaráðherra fyrir
að hækka grunnlífeyri ungra ör-
yrkja um helming. Svo ekki sé
minnst á hvernig hann hjó á Þjórs-
árverahnútinn. Það mætti að
ósekju fela Jóni fleiri verkefni á
vegum ríkisstjórnarinnar.
Fréttiraf fólki VALA MATTEnn á toppnum eftir öll
þessi ár.
Galdrakonan í sjónvarpinu
Vala Matt er með vinsælasta sjónvarpsþáttinn á Skjá einum og skýtur
Silfri Egils ref fyrir rass. Hún hefur verið lengur í sjónvarpi en flestir
aðrir og er ekkert á förum. Segir starfsgleðina skipta öllu.
60 landa maður
Nokkrir frambjóðendur í Suð-urkjördæmi funduðu í Sand-
gerði á dögunum og
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráð-
herra lét sig vita-
skuld ekki vanta.
Hann var á léttu
nótunum eins og
hans er von og vísa
og reytti meðal ann-
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Gömlu grínjaxlarnir í Spaug-stofunni halda úti langvin-
sælasta sjónvarpsþætti landsins
samkvæmt nýrri áhorfskönnun
IMG Gallup en þátturinn mældist
með 68,6% áhorf. Fyrrum Kast-
ljósshetjan Gísli Marteinn Bald-
ursson má einnig vel við una en
hann hitar upp fyrir Spaugstof-
una á laugardagskvöldum og
mælist með 56,6% uppsafnað
áhorf. Fréttir Sjónvarpsins
mældust með 43% en gamlir fé-
lagar Gísla í Kastljósinu standa
honum talsvert að baki með
29,6% áhorf. Jón Ólafsson er á
góðri siglingu með þátt sinn Af
fingrum fram í 36,7% og glæpa-
jaxlinn vinsæli Tony Soprano er
svo öllu aftar á merinni með
27,2%. ■
ars af sér brandara um íhalds-
semi og þvergirðingshátt Vinstri
grænna og uppskar talsverðan
hlátur. Oddviti VG í kjördæminu,
sagnfræðingurinn Kolbeinn Ótt-
arsson Proppé, fékk að lokum
nóg af uppistandi ráðherrans og
kastaði fram þessari vísu til að
lækka í honum rostann.
Ráðherrann er raupgjarn mjög,
röddu hefur enda væna.
Hann dreymir um að leggj’á lög
sem losa hann við Vinstri græna.
Fréttiraf fólki
ÚPS!