Fréttablaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 4
4 31. mars 2003 MÁNUDAGUR Hvernig gengur karlaliði KR í fótbolta næsta sumar? Spurning dagsins: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að ÁTVR verði lögð nið- ur? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 39,9% 4%Bikarmeistarar 13,8% Vinna ekkert Íslandsmeistarar 42,3%Vinna tvöfalt Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Kjartan Gunnarsson telur ekki óæskilegt að formaður sé lengi við völd: Vonar að Davíð hætti ekki í bráð STJÓRNMÁL „Því miður er það þan- nig að hvorki hann né aðrir góð- ir menn eru eilífir. Ég geri ráð fyrir því að hann eigi eftir að hætta einhvern tímann, en ég vona að það verði ekki fyrr en eftir mjög langan tíma og hann eigi eftir að leiða bæði flokkinn og þjóðina í mörg ár til viðbót- ar,“ segir Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, aðspurður um það hvort hann sjái fyrir sér að Dav- íð Oddsson láti af formennsku í Sjálfstæðisflokknum einhvern tímann á komandi árum. „Sjálfstæðisflokkurinn á auð- vitað ekki neina kröfu á því að Davíð helgi honum líf sitt allt,“ segir hann. „Hann er búinn að vera forystumaður í Sjálfstæðis- flokknum síðan 1982, þegar hann varð borgarstjóri í Reykjavík, og síðan samfellt í fremstu röð, annað hvort sem borgarstjóri eða formaður flokksins, þannig að hann er búinn að skila miklu og glæsilegu dagsverki fyrir Sjálfstæðisflokkinn. En það er margt sem hann á eftir að gera og margt sem flokkurinn á eftir að gera með honum. Við hlökk- um til þess.“ Kjartan segist ekki telja óæskilegt að formaðurinn sitji lengi á formannsstóli. „Nei, ég tel það síður en svo óæskilegt,“ segir hann. „Það eina sem skipt- ir máli á þeim vettvangi er það hvort menn ráða við það starf sem þeir taka að sér og hvort þeir skila árangri í því. Og það hefur náttúrlega enginn íslensk- ur stjórnmálamaður fyrr eða síðar skilað jafn miklum árangri og Davíð Oddsson í starfi sínu sem formaður og leiðtogi í Sjálf- stæðisflokknum.“ ■ Gefur stærri loforð en áður Davíð Oddsson forsætisráðherra segir Sjálfstæðisflokkinn leggja í kosn- ingabaráttuna með stærri loforð en oft áður. Flokkurinn mun leggja höfuðáherslu á skattamál. STJÓRNMÁL „Jú, það er rétt. Við leggjum í kosningabaráttuna með óvenju stór loforð,“ segir Davíð Oddsson, forsætisráðherra og ný- endurkjörinn formaður Sjálfstæð- isflokksins að afloknum lands- fundi. „Ég hef yfirleitt verið fremur spar á loforð. Við lítum hins vegar svo á að það séu ákveð- in skil núna. Nú eru allar líkur til þess að menn geti staðið við slík loforð. Þess vegna eru þau gefin.“ Stærstu tíðindi landsfundarins voru án efa yfirlýsingar Davíðs í setningarræðu þess efnis að Sjálf- stæðisflokkurinn muni meðal annars lækka tekjuskatt um 4% og virðisaukaskatt á matvæli og aðrar vörur um helming, verði hann áfram í ríkisstjórn. Saman- lagt nema skattalækkunartillögur Sjálfstæðisflokksins ríflega 20 milljörðum króna. Þessar tillögur, segir Davíð, verða settar í önd- vegi í komandi kosningabaráttu flokksins. „Menn hefðu ekki getað gefið slíkar yfirlýsingar fyrir tveimur eða þremur árum,“ segir Davíð. „Þá var ekki vitað að hagvöxtur- inn gæti orðið þetta mikill. Þar að auki hefur okkur tekist að greiða niður skuldir. Bara það eitt hefur sparað okkur sex milljarða á ári, sem er 24 milljarðar á kjörtíma- bilinu.“ Davíð hlaut bestu kosningu sem nokkur formaður flokksins hefur hlotið fyrr eða síðar í sögu hans, eða 98% atkvæða. Þau ummæli hafa verið höfð eftir honum í fjöl- miðlum að hann hyggist hætta eft- ir næsta kjörtímabil. Aðspurður segir hann að orð sín hafi verið lít- illega oftúlkuð, og allt geti gerst í þessum efnum. Hann telur ekki sérstaklega aðkallandi að endur- nýja í forystu flokksins. „Ólafur Thors var formaður í 27 ár,“ segir hann. „Ég á ennþá langt í land með að ná því. Varaformaðurinn hefur einungis setið í nokkur ár. Við erum allir ungir menn. En þetta er auðvitað allt saman afstætt. Ég er búinn að vera lengi í stjórnmálum, þótt ég sé ekki gamall.“ Hann segist vilja einbeita sér meira að skrifum, ef hann hætti í stjórnmálum. „Ég myndi gera meira af því en ég hef gert, já,“ segir Davíð. gs@frettabladid.is KJARTAN GUNNARSSON Vonar að Davíð eigi eftir að leiða þjóðina og flokkinn í mörg ár til viðbótar. DAVÍÐ ODDSSON Þakkaði landsfundamönnum góða kosningu í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins. ÁRNI MATHIESEN Sáttur við endanlega landsfundarályktun um sjávarútvegsmál. Sjávarútvegstillaga: Samþykkt gegn vilja ráðherra STJÓRNMÁL „Ég greiddi atkvæði á móti þessu í nefndinni. Hins veg- ar voru deilurnar um sjávarút- vegsmál í nefndinni minni en oft hefur verið, sem sést best á því að þetta var aðalmálið,“ segir Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra aðspurður um nokkur átök sem urðu um sjávarútvegsmál, sér- staklega eina tillögu í þeim mála- flokki, á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins. Fulltrúar Vestfirðinga settu fram tillögur í sjávarútvegsnefnd á laugardag um línuívilnanir til handa dreifðari byggðum. Tillag- an var felld með naumindum í nefndinni, þar á meðal með at- kvæði sjávarútvegsráðherra. Fylgismenn hennar gáfust hins vegar ekki upp við svo búið, held- ur lögðu hana fram á þinginu sjálfu. Þar var hún samþykkt. Þar með er tillagan um línuívilnanir komin inn í lokaályktun flokksins um sjávarútvegsmál, gegn vilja sjávarútvegsráðherrans. Hann kveðst þó sáttur við ályktunina. „Það þarf alltaf að gera málamiðl- anir á svona stórum fundi. Fylgis- menn tillögunnar um línuívilnan- irnar rökstuddu mál sitt mjög vel, meðal annars með því að benda á að þetta væri betri leið en byggða- kvótaleiðin.“ ■ TINNA TRAUSTADÓTTIR Náði góðri kosningu í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins ásamt fimm öðrum konum. Kosning í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins: Stórsigur kvenna STJÓRNMÁL „Þetta var geysilega góður árangur hjá konunum. Við vorum sjö í framboði og sex náðu inn. Fimm konur eru í sex efstu sætunum,“ segir Tinna Traustadóttir, sem náði ásamt fimm öðrum sjálfstæðiskonum góðri kosningu í miðstjórn flokksins á landsfundinum í gær. „Það voru ellefu sæti í boði. Þetta er gríðarlega góður árang- ur. Frábær kosning.“ Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar í Ísafjarðarbæ, varð efst í kjörinu. Tinna varð í öðru sæti, en hún hefur meðal annars starfað þó nokkuð innan Sambands ungra sjálfstæðis- manna og er þar ritari. „Ég held að þetta hafi farið svona fyrst og fremst vegna þess að það voru gríðarlega fínar og hæfileikarík- ar konur í framboði,“ segir Tinna. „Það var líka mikill vilji fyrir því að fá fleiri konur inn í miðstjórn.“ Aðspurð vill hún þó ekki segja að miðstjórnin hafi verið karlaveldi hingað til. „Ég vil ekki segja það,“ segir hún. „En það var ekki vanþörf á því að fá fleiri konur þarna inn.“ ■ Endurnýjun bílaflotans stendur fyrir dyrum: Partasalar að drukkna í bílhræjum BÍLAR Bílapartasalar vita ekki sitt rjúkandi ráð. Gamlir bílar hrann- ast inn á geymslusvæði þeirra og nú er ekki rúm fyrir fleiri: „Það er allt of mikið af bílum í landinu og við höfum ekki lengur pláss,“ segir Hjálmar Hlöðvers- son í Bílakringlunni á Höfða- bakka. Undir orð hans taka aðrir bílapartasalar sem muna vart aðra eins tíð. Eigendur eldri bíla eru í vanda því þeir hvorki seljast né komast til bílapartasalanna. Ástæðan er einföld: Landsmenn eru að endurnýja bílaflotann: „Nýskráningar á bílum það sem af er ársins eru um níu þús- und á móti sjö þúsund allt árið í fyrra,“ segir Ingólfur Bender hjá greiningardeild Íslandsbanka. „Á næsta ári spáum við því að ný- skráningar verði um ellefu þús- und og svo hátt í fjórtán þúsund árið 2004,“ segir hann. Spá greiningardeildar Ís- landsbanka byggir að mestu á kaupmáttaraukningu sem þegar er orðin og svo endurnýjunar- þörf bílaflotans. Bílasala síðustu tvö árin hefur verið mjög slök eftir mikla sölu árið 1999 þegar um fimmtán þúsund nýir bílar voru skráðir: „Bifreiðasala er góður mælikvarði á væntingar fólks um betri tíð,“ segir Ingólf- ur Bender. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HRÚGA AF BÍLUM Bílapartasalar taka ekki við meiru. Nýir bílar streyma til landsins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.