Fréttablaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 31. mars 2003 Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogur Sími 535 3500 • Fax 535 3509 haraldur@kraftvelar.is www.kraftvelar.is Þjónustudeild Ly f t a r a d e k k Hafðu samband og láttu okkur leysa málið EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN meiddist á nára í leiknum gegn Skotum. „Ég rann til inni í víta- teignum og fann verk í náranum og stífnaði upp eftir það. Vonandi er þetta ekki alvarlegt,“ sagði Eiður eftir leikinn. Chelsea, lið Eiðs Smára, á í harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð og má ekki við því að missa Eið í meiðsli. RIVALDO Rivaldo, til hægri, ræðir við landa sinn Ronaldo. Rivaldo, sem er þrítugur, segist vilja enda feril sinn á Englandi og þá helst með Liverpool. Rivaldo: Vill leika með Liverpool FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn Rivaldo, sem leikur með AC Mil- an, segist hafa áhuga á að leika á Englandi og þá helst með Liver- pool. „Ef ég mætti velja mér næsta lið til að leika með yrði það Liverpool,“ sagði Rivaldo í viðtali við blaðið News of the World. „Það yrði mér mikill heiður að klæðast rauðu treyjunni þeirra og það yrði draumur fyrir mig að leika við hliðina á Michael Owen. Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, segist hins vegar ekki vilja fá Rivaldo í sínar raðir. Hann segir of mikla áhættu vera fólgna í slíkum félagaskiptum. „Ekki misskilja mig. Rivaldo er frábær leikmaður en vinnubrögð mín ganga ekki út á að semja við stórstjörnu eins hann.“ ■ FÓTBOLTI Fjölmargir leikir voru háð- ir í undankeppni EM á laugardag. Meðal annars unnu Danir óvæntan stórsigur á Rúmenum í 2. riðli með fimm mörkum gegn tveimur á heimavelli Rúmena. Danir náðu þar með efsta sæti riðilsins með 7 stig, jafnmörg og Norðmenn. Ruud van Nistelrooy, leikmaður Manchester United, skoraði mark Hollendinga, sem gerðu jafntefli við Tékkland, 1:1. Jan Koller, leik- maður Dortmund, skoraði fyrir Tékkland. Michael Owen og David Beckham tryggðu Englendingum sigur á Liechtenstein, 2:0, og Thi- erry Henry og Zinedine Zidane skoruðu tvö mörk hvor þegar Frakkar unnu Möltu 6:0. ■ Undankeppni EM: Danir burstuðu Rúmena ROMMEDAHL Dennis Rommedahl skorar fimmta mark Dana gegn Rúmenum.  15.00 Stöð 2 Ensku mörkin. Mörkin úr enska boltanum sýnd.  16.30 Sýn NBA. Sýnt frá leik í NBA-deildinni í körfubolta.  16.35 Sjónvarpið Helgarsportið. Svipmyndir frá íþrótt- um helgarinnar.  19.00 Sýn Western World Soccer Show. Heimsfótbolti Western World.  19.15 DHL-höllin KR tekur á móti Keflavík í úrslita- keppni 1. deildar kvenna í körfu- bolta.  20.00 Sýn Toppleikir. Sýnt frá leik Arsenal og Chelsea.  22.00 Sýn Gillette-sportpakkinn. Íþróttir víðs vegar að úr heiminum.  22.30 Sýn Sportið með Olís. Fjallað er um hel- stu íþróttaviðburði heima og erlend- is.  22.50 Skjár 1 Mótor. Þáttur um mótorsport.  23.40 Sjónvarpið Landsleikur í fótbolta. Sýndir verða valdir kaflar úr leik Þjóðverja og Lit- háa sem fram fór á laugardag.  1.20 Ensku mörkin. Mörkin úr enska boltanum sýnd. hvað?hvar?hvenær? 28 29 30 31 1 2 3 MARS Mánudagur FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur beðið aðild- arþjóðir sínar um að tilnefna besta leikmann þjóðar sinnar undanfar- inna 50 ára, sem vígður verður í frægðarhöll sambandsins. Tilefnið er 50 ára afmæli UEFA. 52 Evrópuþjóðir eru með- limir í sambandinu og fá þær að ráða hvernig þær standa að val- inu. Síðar á þessu ári verður einnig komið upp heimasíðu þar sem almenningur getur valið 50 uppáhaldsleikmenn sína frá hvaða landi sem er. ■ STAÐAN Í 5. RIÐLI Lið L S Skotland 3 7 Þýskaland 3 7 Litháen 4 4 Ísland 3 3 Færeyjar 3 1 ■ Fótbolti ■ Fótbolti Möguleikar Íslands á að komast áfram eru orðnir litlir eftir tapið gegn Skotum. Skotar og Þjóð- verjar berjast um efsta sætið. 50 ára afmæli UEFA: Heiðurshöll knattspyrnu- manna ZIDANE Zidane er einn besti fótboltamaður Evrópu og öruggur um að komast í heiðurshöll knattspyrnumanna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.