Fréttablaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 10
10 31. mars 2003 MÁNUDAGUR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Bi
llu
nd
Bi
llu
nd
DANMÖRK
Beint leiguflug
me› ICELANDAIR
29
.
m
aí
-
4.
s
ep
t.
21
.6
52
21
.6
52
V
er
›
fr
á
kr.
á mann
m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn,
2ja-11 ára, ferðist saman.
Innifalið er flug
og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman,
24.950 kr á mann.
Takmarkað sætaframboð
BANKAR „Ég er tiltölulega jákvæð
gagnvart því að þessi fyrirtæki
sameinist,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra
um hugsanlega sameiningu Bún-
aðarbanka og Kaupþings og við-
ræður þeirra á milli. „Þessi fyrir-
tæki eru ekki í sams konar
bankastarfsemi þannig að þetta
ætti ekki að leiða til fákeppni.
Það er mikilvægt að hagræða á
þessum markaði. Við höfum
alltaf reiknað með því að sala rík-
isins í bönkunum myndi leiða til
einhverrar sameiningar. Það
virðist vera að sýna sig í þessu.“
Valgerður segir sameiningu
einnig jákvæða með tilliti til
markmiða um aukna samkeppni
á íslenskum fjármálamarkaði,
sem hún telur hafa skort. Að
sögn Valgerðar koma þessi tíð-
indi henni ekki beinlínis á óvart.
„Ég reiknaði með því að eitthvað
myndi gerast,“ segir Valgerður.
„En ég vissi ekki af þessu fyrr en
nú í vikunni.“ Hún segist ekki
hafa séð fyrir sér að einhverjir
af viðskiptabönkunum þremur
myndu fremur sameinast, eins
og til dæmis Íslandsbanki og
Búnaðarbanki. „Ég hef nú
ákveðna reynslu í því að reyna
að sameina viðskiptabanka,“ seg-
ir Valgerður. „Það kom sú niður-
staða frá samkeppnisyfirvöldum
á sínum tíma, þegar reynt var að
sameina Landsbanka og Búnað-
arbanka, að það samræmdist
ekki samkeppnislögum. Ég veit
ekki til þess að það hafi mikið
breyst síðan þá.“ ■
HEILBRIGÐISMÁL Verð á lyfjum til
sjúklinga hér á landi hefur hækk-
að um 26,7% á síðustu tveimur
árum. Jafnframt kostaði það
44,2% meira fyrir sjúklinga að
leita til sérfræðilækna í febrúar á
þessu ári en það kostaði í febrúar
2001.
Þetta kemur fram í tölum um
vísitölu neysluverðs frá Hagstofu
Íslands. Á þessu tveggja ára tíma-
bili hefur vísitala neysluverðs í
heild hækkað um 10,6%. Það verð
sem sjúklingar þurfa að greiða
fyrir lyf og sérfræðingaþjónustu
hefur því hækkað umtalsvert
meira en vörur og þjónusta al-
mennt í landinu á síðustu tveimur
árum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun ríkisins stefnir
í að útgjöld stofnunarinnar vegna
lyfja verði 6 milljarðar króna á
þessu ári. Útgjöld Trygginga-
stofnunar vegna lyfja voru 5
milljarðar og 441 milljón árið
2002 og hafa hækkað jafnt og þétt
á undanförnum árum. Ef gert er
ráð fyrir að sjúklingar greiði há-
marksverð fyrir lyf án nokkurra
afslátta frá apótekum, og að hlut-
ur Tryggingastofnunar í lyfja-
kostnaði verði í kringum 63%, og
sjúklinga 37%, má gera ráð fyrir
heildarlyfjaútgjöld þjóðarinnar á
þessu ári nemi um níu og hálfum
milljarði.
Það vekur athygli að lyfjaverð
hefur hækkað þrátt fyrir að sam-
keppni hafi verið komið á á lyfja-
markaði, sem var gert 1996, og að
krónan hafi styrkst á liðnum miss-
erum. Lyfjainnkaup erlendis frá
ættu samkvæmt því að vera ódýr-
ari, en það hefur samkvæmt
þessu ekki skilað sér til neytenda.
Undirvísitala Hagstofu Íslands
um lyf annars vegar og sérfræð-
inga hins vegar, sem er hluti af
neysluvísitölu, mælir kostnaðinn
sem þessi liðir bera í útgjöldum
heimila. Samkvæmt tölunum hef-
ur lyf sem kostnaðurliður ekki
einungis hækkað heldur einnig
kostnaður við að leita til sérfræð-
inga. Hann hefur rokið upp. Í
febrúar á þessu ári kostaði það
sjúklinga 83% meira að leita til
sérfræðinga heldur en árið 1997.
Ef miðað er við tveggja ára tíma-
bil, frá 2001, hefur kostnaðurinn
vaxið um 44,2%. Þessi aukning
skýrist ekki af því að sjúklingar
beri aukinn hluta af kostnaði til
móts við Tryggingastofnun. Það
hlutfall hefur ekki vaxið, sam-
kvæmt upplýsingum úr Staðtölum
Tryggingastofnunar.
gs@frettabladid.is
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
ness dæmdi Hafnfirðing nokkurn
fyrir að nefbrjóta mann fyrir
framan heimili fyrrum kærustu
sinnar í Hafnarfirði aðfaranótt
föstudagsins 28. desember 2001.
Dómurinn hljóðar upp á fangelsi í
45 daga, en fresta skal fullnustu
refsingarinnar og hún falla niður
að liðnum þremur árum frá birt-
ingu dóms þessa haldi ákærði al-
mennt skilorð. Þá skal ákærði
greiða fórnarlambi sínu 152.021
krónur ásamt vöxtum. Ákærði
greiði allan sakarkostnað, þar
með talin málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns, 130.000 krónur.
Þetta högg reynist hinum afbrýð-
isama Hafnfirðingi því dýrkeypt.
Samkvæmt vitnisburði þess
nefbrotna var hann staddur fyrir
utan hús í Hafnarfirði laust eftir
klukkan sex að morgni umrædds
dags og beið íbúa hússins, konu
sem hann var í vinfengi við. Tveir
menn komu þá aðvífandi, öskruðu
og spurðu hvað hann væri að gera
þarna. Því var svo fylgt eftir með
hnefahöggi sem hafði áður-
greindar afleiðingar.
Í skýrslu sem konan gaf kemur
fram að þar voru á ferð bræður
en annar þeirra hafði verið
unnusti hennar. Hún fékk send
SMS-skeyti frá honum næsta dag
þar sem stóð: „blessuð eigu
grenjuskjóðuna“, en í hinu seinna
„arrrggg ... af hverju mátti ég
ekki klára X“.
Bar ákærði að hann hefði fund-
ið fyrir afbrýðisemi en sagði það
reyndar ekki ástæðu höggsins,
heldur hvernig hinn hreyfði sig.
Það sem flækti málið var að fórn-
arlambið hafði áður nefbrotnað
en rök þóttu hníga að því að fyrr-
greint högg hefði orsakað þetta
tiltekna nefbrot. ■
VARNARLAUS
Talið er að úgandíski skæruliðahópurinn
LRA hafi numið á brott yfir 20.000 börn á
síðastliðnum sextán árum.
Börn numin á brott:
Yfir 5000
börn á valdi
skæruliða
ÚGANDA, AP Uppreisnarmenn í
norðurhluta Úganda hafa numið á
brott metfjölda barna frá því her
stjórnvalda hóf sókn gegn bæki-
stöðvum þeirra innan landamæra
Súdan fyrir um ári síðan. Áætlað
er að um 5.000 börnum hafi verið
rænt síðan í júní 2002 en árið 2001
voru þau aðeins um 100.
Barnanna sem numin eru á
brott bíða yfirleitt hörmuleg örlög
en þeim er ýmist ætlað að berjast
við hlið skæruliðanna eða þau
hneppt í kynlífsánauð. Þau sem
reyna að leggja á flótta eru oft
myrt á hrottafenginn hátt og eru
önnur börn jafnan látin taka þátt í
drápunum eða horfa á. ■
Stjörnufræðingar vinna
afrek:
Ítarlegt kort
af himin-
hvolfunum
KALIFORNÍA, AP Stjörnufræðingar í
Bandaríkjunum hafa nú lokið við
ítarlegan stafrænan uppdrátt af
himinhvolfunum og sett fimm
milljónir mynda út á Netið. Fylgst
var með himninum í fjögur ár og
var heildarkostnaðurinn við verk-
efnið rúmir þrír milljarðar króna.
Á kortinu má sjá um 500 milljónir
fyrirbæra, aðallega plánetur, en
einnig sólkerfi, smástirni og hala-
stjörnur.
Sjónaukinn sem notaður var til
verksins getur greint innrauða
geisla rafsegulrófsins og því
fundið fyrirbæri sem eru manns-
auganu hulin. Að sögn stjörnu-
fræðinganna sem unnu að verk-
efninu mun uppdrátturinn koma
vísindamönnum að gagni næstu
áratugina. ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Segir sameiningu Kaupþings og Búnaðarbanka, ef af verður, væntanlega þýða harðari
samkeppni á fjármálamarkaði.
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra um samein-
ingu Kaupþings og Búnaðarbanka:
Tiltölulega jákvæð
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
SMS-skeyti komu við sögu í máli þar sem
maður nokkur var dæmdur fyrir að nef-
brjóta mann sem beið fyrrum kærustu
hans.
Sektaður fyrir að nefbrjóta mann:
Afbrýðisamur Hafn-
firðingur dæmdur
LYF OG SÉRFRÆÐILÆKNAÞJÓNUSTA
Hefur hækkað umtalsvert meira í verði en aðrar vörur og þjónusta í landinu á
undanförnum tveimur árum.
Verð á læknisþjónustu og
lyfjum hefur rokið upp
Verð á lyfjum til sjúklinga, samkvæmt neysluvísitölu, hefur hækkað um
26,7% frá 2001. Verð á sérfræðingaþjónustu hefur hækkað um 44,2% á
sama tímabili. Útgjöld Tryggingastofnunar vegna lyfja stefna í 6 millj-
arða á þessu ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M