Fréttablaðið - 31.03.2003, Side 16

Fréttablaðið - 31.03.2003, Side 16
16 31. mars 2003 MÁNUDAGUR BANDARÍKIN Ætla mætti að varnar- stefna Bandaríkjanna og hug- myndir um árásir að fyrra bragði á óvinveitt ríki, og aðrar nýjungar af því tagi sem heimsbyggðin hef- ur orðið vitni að um þessar mund- ir, ættu upphaf sitt að rekja til árásar hryðjuverkamanna á New York 11. september 2001. Því hef- ur oftsinnis verið haldið fram að varnarstefna Bandaríkjanna hafi þá tekið miklum stakkaskiptum og að ástæðan fyrir því hafi verið ærin. Svo virðist sem þetta sé ekki að öllu leyti rétt. Að undanförnu hafa stjórnmálaskýrendur dregið fram eldri skjöl, unnin og undirrituð af helstu forvígismönnum í ríkis- stjórn George W. Bush, þar sem hugmyndir um útbreiðslu banda- rískra áhrifa og hervalds um heimsbyggðina alla eru viðraðar skipulega. Einkum er um að ræða tvö plögg, annars vegar skýrslu sem unnin var af Dick Cheney, núverandi varaforseta, árið 1992 og fjallaði um stefnumið í varnar- málum. Skýrslan lak í fjölmiðla í Bandaríkjunum á sínum tíma og olli talsverðu fjaðrafoki. Hitt plaggið sem vitnað er til fjallar um endurbyggingu í bandarískum hermálum og er frá árinu 2000, ári áður en hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á New York. Sú skýrsla var unnin af stærstum hluta til af Paul Wolfowitz, einum herskáasta meðlim bandarísku ríkisstjórnarinnar um þessar mundir, fyrir stofnun sem að miklum hluta til er hugarfóstur hans og heitir „The Project for a New American Century.“ Undir stofnyfirlýsingu þess verkefnis, um nýja ameríska öld, sem er frá árinu 1997, skrifa meðal annars Dick Cheney, Paul Wolfowitz, Donald Rumsfeld og Jeb Bush, bróðir George W.Bush. Krafa um hermátt til að fjarlægja ríkisstjórnir Í þessum plöggum er lögð áhersla á uppbyggingu hernaðar- máttar Bandaríkjanna um heim allan og þeirri skoðun lýst, á grundvelli áætlana, að Bandaríkin eigi að nota tækifærið sem mynd- ast hefur eftir lok kalda stríðsins og tryggja efnahagslega og hern- aðarlega yfirburði sína á öllum svæðum heimsins. Til þess þurfi meðal annars að koma upp her- stöðvum mun víðar um heims- byggðina en nú er. Í skýrslunni frá því 2000, þegar Wolfowitz var enn óbreyttur borg- ari og áður en hann varð aðstoðar- varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, er talað hispurslaust um Írak, Íran og Norður-Kóreu sem mest áríðandi skotspóna í breyttri og herskárri utanríkisstefnu. Þessi ríki urðu síðar að „öxulveld- um hins illa“ í ræðu George W. Nýtt líf í heimsvalda- stefnu Bandaríkjanna Gögn sem ráðamenn í Bandaríkjunum skrifuðu undir áður en þeir tóku sæti í rík- isstjórn George W. Bush tók við völdum gefa til kynna að innrásin í Írak sé hluti af yfirgripsmeiri áætlunum um heimsyfirráð Bandaríkjanna á nýrri öld. HAUKAR EÐA DÚFUR? Meðlimum í ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur löngum verið skipt í hauka og dúfur. Svo virðist sem hinir herskáu haukar hafi náð yfirhöndinni í bili. Þessi dúfa fylgdi breskum hermönnum í Írak á dögunum og hlaut nafnið Harry. DONALD RUMSFELD OG PAUL WOLFOWITZ Hafa staðið saman að samtökum undanfarin ár sem hafa það að markmiði að tryggja stöðu Bandaríkjanna sem voldugasta heimsveldis- ins á komandi öld. Hér ráða þeir ráðum sínum í bandarísku öldungadeildinni á dögunum, þegar umræða um beiðni Bush-stjórnarinnar um 5.800 milljarða króna aukafjárveitingu til stríðsins í Írak fór fram. M YN D /A P/ IA N J O N ES M YN D /A P/ R IC K B RO W M ER

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.