Fréttablaðið - 08.04.2003, Síða 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 8. apríl 2003
Tónlist 19
Leikhús 19
Myndlist 19
Bíó 20
Íþróttir 16
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
AFMÆLI
Venjulegur
dagur
HAGFRÆÐI
Ekki tveggja
stafa tala
83. tölublað – 3. árgangur
bls. 12
TÓNLIST
Gaman að
spila allt
bls. 29
TÓNLEIKAR Sönglagatónskáldið og
Vestmannaeyingurinn Oddgeir
Kristjánsson vann sér sess í hugum
landsmanna með lögum sínum. Í
Salnum í Kópavogi klukkan 20.00
verða fluttar nokkrar perlur Odd-
geirs. Hafsteinn Þórólfsson söngv-
ari, sem er barnabarn Oddgeirs,
sér um flutninginn ásamt Aðalheiði
Þorsteinsdóttur píanóleikara og
Matta Kallio harmonikuleikara.
Vestmannaeyja-
perlur
FUNDUR Námstefna um karlaheilsu
verður haldin í Norræna húsinu.
Ásgeir Theodórs meltingarsérfræð-
ingur, Gestur Þorgeirsson hjarta-
læknir, Ingólfur Gíslason, félags-
fræðingur Jafnréttisstofu, og Óttar
Guðmundsson geðlæknir flytja er-
indi. Allir karlar eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir. Námstefnan
hefst klukkan 16:30 og er aðgangur
ókeypis.
Heilsa karlmanna
HANDBOLTI Úrslitakeppni Esso-
deildar karla hefst í kvöld með
fjórum leikjum í átta liða úrslitum.
Seinni leikir þessa hluta keppninn-
ar verða á fimmtudag og oddaleik-
ir, ef með þarf, á sunnudag. ÍR og
Þór mætast í Austurbergi, Haukar
og Fram mætast á Ásvöllum, KA og
HK keppa í KA-heimilinu og Valur
og FH takast á í Valsheimilinu.
Leikirnir hefjast allir klukkan
19:15.
Úrslitahrinan hefst
bls. 18
KOSNINGABARÁTTAN „Tilgangur til-
lögunnar var sá að reyna að spara
peninga,“ segir Karl Th. Birgisson,
framkvæmdastjóri Samfylkingar-
innar. „Flokkarnir eru að miklu
leyti reknir fyrir skattfé og sem
ábyrgur stjórnmálaflokkur vildum
við að sjálfsögðu reyna að ná sam-
komulagi um sparnað. En það tókst
ekki.“ Fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna funduðu um fyrirkomulag
kosningabaráttunnar á lokuðum
fundi á föstudag, þar sem fram-
kvæmdastjóri Samfylkingarinnar
lagði fram tillögu um að flokkarnir
auglýstu ekki í sjónvarpi. Fulltrúar
flokkanna voru allir jákvæðir, seg-
ir framkvæmdastjórinn, nema
fulltrúi Framsóknarflokksins, sem
tók illa í tillöguna.
Karl segist ætla að skrifa
flokkunum bréf í framhaldi af
fundinum þar sem hann mun
árétta tillöguna. Hann gerir þó
ekki ráð fyrir því að af samkomu-
lagi geti orðið. „Tónninn í fram-
sóknarmönnum var þannig að ég
geri mér ekki miklar vonir um að
þetta samkomulag náist,“ segir
Karl, „enda eru þeir þegar byrjað-
ir að auglýsa í sjónvarpi langt á
undan öllum öðrum.“
Björn Ingi Hrafnsson, kynn-
ingarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, segir tillögu Samfylkingarinn-
ar hafa komið fram allt of seint til
að grundvöllur geti verið fyrir
slíku samkomulagi. „Flestir flokk-
arnir eru löngu búnir að skipu-
leggja sín auglýsingamál,“ segir
hann. „Við hófum undirbúning
okkar kosningabaráttu í nóvem-
ber. Ef Samfylkingin hefði haft
raunverulegan áhuga á því að ná
samkomulagi hefði tillagan þurft
að koma miklu fyrr. Mig grunar
að eitthvað annað búi að baki en
einlægur áhugi á samkomulagi.“
Björn segir framsóknarmenn
ekki hafa miklar fjárhæðir á milli
handanna í kosningabaráttunni.
„Við munum dreifa okkar auglýs-
ingum nokkuð jafnt á alla miðla,“
segir Björn. „Markaðsfræðingar
segja mér reyndar að sjónvarps-
auglýsingar séu ekki mikið óhag-
stæðari en dagblaðaauglýsingar.
Ég veit ekki betur en að Samfylk-
ingin hafi sjálf auglýst í sjónvarpi
nýverið, þegar fundaherferð Ingi-
bjargar Sólrúnar og Össurar
Skarphéðinssonar stóð yfir.“
gs@frettabladid.is
Ekkert samkomulag um
kosningaauglýsingar
Fulltrúar flokkanna funduðu um fyrirkomulag kosningabaráttunnar á lokuðum fundi fyrir
helgi. Samfylkingin lagði til að flokkarnir auglýstu ekki í sjónvarpi. Framsóknarmenn
tóku illa í tillöguna og segja hana koma allt of seint.
M
YN
D
/A
P
ÞRIÐJUDAGUR
TÓNLEIKAR
bls. 16
Að verða
uppselt
FORMÚLAN
Vongóður
um titil
bls. 23
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
febrúar 2003
18%
D
V
90.000 eintök
73% fólks lesa blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
þriðjudögum?
63%
79%
! " #$%&'( )"((**+ ) , -*(.* / 0-$%&'1
(-* ( ! )
Í SÓTTKVÍ
Þessi tveggja ára gamla kanadíska stúlka var sett í einangrun ásamt móður sinni eftir að tveir bræður hennar greindust með einkenni HABL.
KARL TH.
BIRGISSON
Framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar
lagði til að flokk-
arnir auglýstu ekki í
sjónvarpi.
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
Segir framsóknar-
menn fyrir löngu
búna að ákveða
hvernig þeir ætli að
haga sínum auglýs-
ingamálum.
FARALDUR, AP Þó flest tilfelli HABL,
heilkennis alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu, hafi komið upp í Asíu
hafa Vesturlandabúar ekki farið
varhluta af þessum skæða lungna-
bólgufaraldri. Utan Asíu hafa
Kanadamenn orðið hvað harðast
úti en þar hafa níu manns látist úr
sjúkdómnum, allir í Toronto.
Kanadísk yfirvöld hafa gripið til
þeirra ráðstafana að setja aðstand-
endur látinna og sýktra í sóttkví til
þess að reyna að hefta frekari út-
breiðslu sjúkdómsins.
Í Evrópu hefur enginn látist
af völdum HABL og hefur út-
breiðsla sjúkdómsins í álfunni
verið óveruleg fram að þessu.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur þó brugðist við
yfirvofandi hættu með því að
leggja drög að samevrópskri
miðstöð fyrir sjúkdómsvarnir.
HABL hefur ekki komið upp á
Norðurlöndum en þó nokkrir
hafa leitað læknis og verið lagð-
ir inn á sjúkrahús vegna gruns
um smit. Sá grunur hefur hingað
til ekki reynst á rökum reistur.
Ýmsar ráðstafanir hafa þó verið
gerðar á sjúkrahúsum til þess að
hægt verði að takast á við sjúk-
dóminn ef hann ber að dyrum. ■
Lungnabólgufaraldurinn á Vesturlöndum:
Vesturlandabúar á varðbergi
ÞETTA HELST
Nýtt fjölþrepa skattkerfi með30 prósenta skattþrepi myndi
kosta tólf milljarða að mati
nefndar. bls. 2
Ekkert lát er á lungnabólgufar-aldrinum. Á þriðja þúsund
manns eru sýktir, flestir í Kína.
bls. 4
Mikil óánægja er meðal MS-sjúklinga. Þeir segja fólk í
öngum sínum og marga hætta að
mæta í dagvist. bls. 6
Þingholtin eru ekkert einsdæmiþegar rottur í holræsum eru
annars vegar. Þær eru um alla
borg, að sögn meindýraeyðis.
bls. 13
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 10-15 Skúrir 6
Akureyri 10-18 Rigning 9
Egilsstaðir 10-18 Rigning 9
Vestmannaeyjar 15-20 Rigning 6
REYKJAVÍK Suðvestan 8-15
m/s og él, en gengur í suð-
austan 15-20 með slyddu
eða rigningu í nótt.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
➜
➜
➜
➜