Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 16
16 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
BER AÐ OFAN
Alessio Tacchinardi, leikmaður Juventus,
fagnaði marki sínu gegn Torino í ítölsku
Seria A-deildinni um helgina með miklum
tilþrifum. Juventus vann leikinn með
tveimur mörkum gegn engu og tryggði um
leið stöðu sína í efsta sæti deildarinnar.
Fótbolti
Cakewalk sumar 2003
Höfum opnað verslun að Strandgötu 29. Hafnarfirði með frábærum vörum
frá Cakewalk.
Opnunartíminn er eftirfarandi: þriðjudaga til föstudaga frá kl. 16:00 til
18:00
Laugardaga frá kl. 12:00-14:00
Komdu og skoðaðu frábærar sumarvörur frá
Cakewalk
FÓTBOLTI Framganga Ajax og AC
Milan í Meistaradeildinni í vetur
hefur verið með ágætum. Ajax
varð í 2. sæti í undanriðli á eftir Int-
er Milan en Lyon og Rosenborg
sátu eftir. Ajax varð einnig í 2. sæti
í afar erfiðum milliriðli á eftir Val-
encia en Arsenal og Roma féllu úr
keppni. AC Milan hafði betur í bar-
áttu gegn Deportivo La Coruna,
Lens og Bayern München í undan-
riðli en sigraði í milliriðli með sann-
færandi hætti. Real Madrid fylgdi
Milan í átta liða úrslitin en Borussia
Dortmund og Lokomotiv Moskva
eru úr leik.
Ajax og Milan hafa fjórum
sinnum áður mæst í Evrópu-
keppni meistaraliða. Árið 1969
léku þau til úrslita í Madríd og
vann Milan 4:1 með þrennu Pier-
ino Prati og einu marki Angelo
Sormani. Velibor Vasovic skoraði
fyrir Ajax úr víti. Félögin mætt-
ust þrisvar leiktíðina 1994 til
1995. Ajax vann tvisvar 2:0 í riðla-
keppninni og úrslitaleikinn 1:0 í
Vínarborg með marki Patrick
Kluivert fimm mínútum fyrir
leikslok. ■
PAOLO MALDINI
Fyrirliði AC Milan í leik gegn Parma á laug-
ardag.
Meistaradeild Evrópu:
Fimmta viðureign Ajax og
AC Milan í Evrópukeppni
FYRRI VIÐUREIGNIR
1968-1969 Milan - Ajax 4:1
1994-1995 Ajax - Milan 2:0 og 2:0
1994-1995 Ajax - Milan 1:0
FÓTBOLTI Real Madrid og
Manchester United eru að mæt-
ast í fjórða sinn í Evrópukeppni. Í
öllum þremur viðureignum lið-
anna til þessa hefur sigurvegar-
inn farið alla leið í keppninni og
fagnað sigri.
United var slegið út af Real í 8
liða úrslitum Meistaradeildarinn-
ar árið 2000 og vann Real keppn-
ina í kjölfarið. „Við munum glíma
við söguna á þriðjudagskvöld.
Þeir eru nífaldir Evrópumeistar
og tryggð þeirra við bikarinn er
til staðar,“ sagði Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri United.
Ferguson segir að leikmenn
sínir þurfi að einbeita sér að sigri
í leiknum í stað þess að hugsa um
stórstjörnur Real Madrid. „Við
verðum að einbeita okkur að
sjálfum okkur meira en nokkru
sinni fyrr,“ sagði Ferguson. „Ef
við förum að hugsa: „Horfðu á
Figo, Ronaldo, Raul, Zidane,“ þá
truflar það einbeitinguna. Ég mun
ekki leyfa það. Ef einbeitingin er
rétt og leikmenn eru í góðu
ástandi þá eigum við möguleika.“
Ferguson hefur farið mikinn í
sálfræðistríðinu fyrir leikinn. Í
gær lét hann hafa eftir sér í blaða-
viðtali að drátturinn í 8 liða úrslit
Meistaradeildarinnar hafi verið
fyrir fram ákveðinn vegna þess
að knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, vildi ekki að United kæm-
ist í úrslitin og léki þar á heima-
velli sínum, Old Trafford.
Talmaður UEFA vísaði um-
mælunum á bug og sagði þau
hluta af áróðurstækni Ferguson.
„Ummælin eru óheppileg, barna-
leg og ósönn. Þetta hljómar eins
og áróðurinn sem Ferguson hefur
stundum uppi fyrir stórleiki. Það
er skammarlegt að þurfa að
standa undir svona ásökunum
þegar við höfum til svo mikils að
hlakka.“ ■
RONALDO
Brasilíumaðurinn Ronaldo (til vinstri) í leik gegn Rayo Vallecano um helgina. Real vann
leikinn með þremur mörkum gegn einu.
FYRRI VIÐUREIGNIR
1956-1957 Real Madrid - Manchester United 3:1 2:2
1967-1968 Manchester United - Real Madrid 1:0 3:3
1999-2000 Real Madrid - Manchester United 0:0 3:2
* Félagið sem sigraði varð Evrópumeistari um vorið
Sagan hliðholl
sigurvegaranum
Evrópumeistarar Real Madrid taka á móti Manchester United í stór-
leik 8 liða úrslita Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
AP
/M
YN
D
KAPPAKSTUR Kimi Räikkönen, liðs-
maður McLaren í Formúlu 1
kappakstrinum, er vongóður um
að tryggja sér heimsmeistaratit-
ilinn eftir að hafa unnið tvö mót
í röð, nú síðast í Sao Paulo í
Brasilíu um helgina.
„Ef hlutirnir halda áfram að
ganga svona vel vinn ég vonandi
meistaratitilinn,“ sagði
Räikkönen. „Hlutirnir virðast
falla vel fyrir okkur. Kannski
vorum við dálítið heppnir en
sigur er sigur og það skiptir öllu
máli.“
Räikkönen var dæmdur sigur
í Sao Paulo þrátt fyrir að vera
ekki í fyrsta sæti þegar
kappaksturinn var flautaður af
eftir 55 hringi af 72. Reglur
keppninnar kveða á um að sig-
urvegarinn sé sá sem var í fyrs-
ta sæti tveimur hringjum áður
en keppni var hætt.
McLaren-liðið hefur þar með
unnið þrjú fyrstu mót keppnis-
tímabilsins, en Skotinn David
Coulthard vann fyrsta mótið í
Ástralíu í síðasta mánuði. Næsti
kappakstur verður háður í San
Marino eftir tæpar tvær vikur.
Þess má geta að Fernando
Alonso, liðsmaður Renault, var
útskrifaður af sjúkrahúsi í gær
ómeiddur eftir að hafa lent í
hörðum árekstri um helgina. ■
RÄIKKÖNEN
Kimi Räikkönen er efstur í Formúlu 1 með 11 stiga forystu á David Coulthard.
Kimi Räikkönen:
Vongóður um titilinn
Fyrri leikirnir í undanúrslit-um Evrópukeppni kvennaliða
í knattspyrnu fóru fram um
helgina. Danska félagið Fortuna
Hjörring vann Englandsmeist-
ara Arsenal með þremur
mörkum gegn einu og sænska
félagið Umeå gerði 1:1 jafntefli
við Evrópumeistara Frankfurt.
Sænska deildarkeppnin íknattspyrnu er að fara af
stað. Fyrsta umferðin hófst um
síðustu helgi. Á sunnudag tapaði
Enköping með þremur mörkum
gegn engu fyrir AIK á útivelli
en þetta var fyrsti leikur félags-
ins í efstu deild í 89 ára sögu
þess. AIK hefur hins vegar leik-
ið 75 tímabil í efstu deild, oftar
en nokkuð annað félag.
Enköping er 58. félagið semleikur í Allsvenskan, efstu
deildinni sænsku, sem hófst
árið 1924. IFK Göteborg og
Malmö hafa oftast sigrað í Alls-
venskan, fjórtán sinnum, en
IFK hefur sigrað í fleiri leikj-
um en önnur félög (774) og
skorað fleiri mörk (3.105) en
aðrir í deildinni.
■ Fótbolti
Lennox Lewis:
Mætir Kirk
Johnson
HNEFALEIKAR Talið er líklegt að
Lennox Lewis, heimsmeistari í
þungavigt, mæti Kanadabúanum
Kirk Johnson í einvígi sem háð
verður í Buffalo í sumar.
Enn á þó eftir að undirrita
samning þess efnis. Lewis hefur
þegar fengið frest til 15. apríl til
að ákveða hvort hann vilji berjast
á ný við „Iron“ Mike Tyson. Verði
ekkert af þeim bardaga er búist
við því að Lewis mæti Úkraínu-
manninum Vitali Klitschko í
hringnum. ■
LEWIS
Lennox Lewis berst að öllum líkindum við
Kirk Johnson í Buffalo.