Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 6
6 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR ■ Viðskipti GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 79,11 0,85% Sterlingspund 122.68 -0,15% Dönsk króna 11.25 -0,35% Evra 83.76 0,90% Gengisvístala krónu 121,55 0,02% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 251 Velta 3.318 m ICEX-15 1.416 -0,17% Mestu viðskipti Baugur Group hf. 105.575.000 Sjóvá-Almennar tr. hf. 90.999.996 Kaupþing banki hf. 58.288.333 Mesta hækkun Kaldbakur fjárfestingarfélag hf. 2,74% Íslenskir aðalverktakar hf. 2,10% Marel hf. 1,90% Mesta lækkun Síldarvinnslan hf. -8,16% SÍF hf. -5,49% Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. -2,19% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8460,6 2,2% Nasdaq*: 1417,8 2,5% FTSE: 3935,8 3,2% DAX: 2792,5 5,2% NIKKEI: 8250,0 2,2% S&P*: 897,2 2,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Vorþing Samfylkingarinnarvar haldið um helgina. Hvar var þingið haldið? 2Hersveitir Bandaríkjamannahafa endurskírt aðalflugvöll- inn í Bagdad og heitir hann nú Bagdad-flugvöllur. Hvað hét völlurinn áður? 3Í gær var frumsýnd íslenskheimildarmynd þar sem brugðið er upp mynd af lífi nokkurra samkynhneigðra ein- staklinga. Hvað heitir myndin? Svörin eru á bls. 31 Ísafjörður: Hrint út úr bíl á ferð LÖGREGLUMÁL Tveir ungir karl- menn hrintu ungri stúlku út úr bíl sem var á ferð á gatnamótum Skutulsfjarðarbrautar og Hafn- arstrætis á Ísafirði síðdegis á föstudag. Þeir héldu áfram án þess að huga að stúlkunni sem lá á götunni. Við læknisskoðun reyndist hún ekki hafa hlotið al- varlega áverka en var mikið marin. Mál þetta er litið alvar- legum augum af lögreglunni á Ísafirði og er í rannsókn. Lög- reglu er kunnugt um hverjir áttu hlut að máli og lýsir eftir vitnum að atburðinum. ■ FRAMKVÆMDIR Líklegt er að hlutur erlends vinnuafl vegna stóriðju- framkvæmdanna á Austurlandi verði meiri en áætlað hefur verið. Þetta kom fram í máli Friðriks Sophussonar, forstjóra Lands- virkjunar, á samráðsfundi fyrir- tækisins fyrir helgi. „Í skýrslu fjármálaráðuneytis og fleiri aðila um efnahagsáhrif framkvæmdanna er gert ráð fyrir að hlutur erlends vinnuafls við byggingu álvers og virkjunar nemi um 25% og því verði skortur á vinnuafli með tilheyrandi þensluáhrifum,“ sagði Friðrik. „Það er að sjálfsögðu ekki hægt á þessari stundu að fullyrða um hvernig verktakar munu haga mannahaldi sínu en líklegt er að þeir leitist við að finna jafnvægi í ráðningum erlends og innlends vinnuafls.“ Friðrik sagði að ítalska verk- takafyrirtækið Impregilo, sem mun byggja fyrir um 50% af framkvæmdakostnaði Kára- hnjúkavirkjunar, gerði ráð fyrir að um 60 til 70% af sínu vinnuafli kæmi erlendis frá. „Með hliðsjón af þessu tel ég líklegt að hlutur erlends vinnuafls við þessar miklu framkvæmdir verði nokkru meiri en áætlað hef- ur verið.“ ■ FRIÐRIK SOPHUSSON, FORSTJÓRI LANDSVIRKJUNAR Friðrik sagði að ítalska verktakafyrirtækið Impregilo, sem mun byggja fyrir um 50% af framkvæmdakostnaði Kárahnjúkavirkj- unar, gerði ráð fyrir að um 60 til 70% af sínu vinnuafli kæmi erlendis frá. Forstjóri Landsvirkjunar um stóriðjuframkvæmdirnar á Austurlandi: Býst við meira erlendu vinnuafl LÖGREGLUMÁL Ósætti setti svip sinn á skemmtanahald í miðborginni um helgina. Á föstudag féll kona fyrir utan veitingastað í Hafnar- stræti og handleggsbrotnaði. Seinna um kvöldið lenti maður í útistöðum við dyravörð á veit- ingastað í sömu götu sem endaði með því að hann nefbrotnaði. Þá átti fólk í deilum á veitingastað í Tryggvagötu sem enduðu með því að tennur brotnuðu. Maður kom blóðugur í andliti til lögreglunnar og kvaðst hafa orðið fyrir árás á veitingastað í Tryggvagötu. Einnig kom maður sem sagðist hafa verið bitinn í þumalfingur en vissi ekki hver hafði bitið. Þá var maður sleginn í andlitið á veitingastað í Banka- stræti þannig að hann rotaðist. Konu var hrint fyrir utan veit- ingastað í Tryggvagötu með þeim afleiðingum að hún fótbrotnaði. Þá kom þar að maður sem ætlaði að huga að konunni en honum var þá hrint og við það féll hann í göt- una og fótbrotnaði. ■ FRÁ MIÐBORGINNI Handleggir, fótleggir og tennur brotnuðu í miðborg Reykavíkur um helgina. Ofbeldi í miðborg Reykjavíkur: Veit ekki hver beit sig HEILBRIGÐISMÁL Mikil óánægja er enn meðal þeirra MS-sjúklinga sem sækja Dagvist félagsins á Sléttu- vegi 5. Lárus Jónsson er einn þeirra sjúklinga sem reglulega mæta í dagvistina og segist reyndar ekki eiga ann- arra kosta völ. Hann segir að ófremdarástand hafi ríkt þar allt frá því hjúkrun- a r f r æ ð i n g u r, sem gegndi starfi s t a ð g e n g i l s framkvæmda- stjóra, hætti þar störfum eftir að formaður MS-fé- lagsins, Vilborg Traustadóttir, var ráðin sem framkvæmdastjóri. For- stöðumaðurinn fráfarandi var sein- na sakaður um fjárdrátt og málinu vísað til Ríkisendurskoðunar. Heimildir Fréttablaðsins herma að forstöðumaðurinn hafi hækkað laun sín um 25 prósent þegar hann tók einnig við störfum fram- kvæmdastjóra. Eftir að fram kom ásökun um fjárdrátt upp á um 600 þúsund krónur hætti forstöðumað- urinn störfum og fjórir starfsmenn í kjölfarið. „Við sitjum hér í öngum okkar aðgerðarlaus. Fólk er hætt að mæta í dagvistina og aðeins þeir eftir sem neyðast til að koma. Ég hef óskað eftir viðtali við Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra til að reyna að fá aðstoð hans við að leysa þessi mál,“ segir Lárus. Margir þeirra sjúklingana sem mæta í dagvistina eru að sögn Lárusar langt gengnir með sjúk- dóminn og bundnir hjólastólum. Fólk unir sér þar við listsköpun, þjálfun og ýmsa tómstundaiðju. Hann segir að það starf liggi nú að mestu niðri. „Við viljum fá aftur til starfa það starfsfólk sem hefur hætt. Listasálfræðingur og sjúkraþjálf- arar og iðjuþjálfi hafa hætt hér eft- ir að ásökunin um fjárdrátt kom fram,“ segir Lárus. Hann segir að formaður Dagvistar neiti að halda fund um það ástand sem ríkir og beri því við að það sé svo mikið að gerast í félaginu. „Þetta er hrika- legt ástand sem verður að finna lausn á sem fyrst,“ segir hann. Sigríður Hrönn Elíasdóttir, formaður stjórnar Dagvistar og endurhæfingar MS-félagsins, segist ekkert vilja ræða þessi mál fyrr en niðurstaða rannsóknar ligg- ur fyrir. „Þetta tengist málum sem eru í skoðun hjá Ríkisendurskoðun. Ég vil ekki tjá mig fyrr en niðurstaða kemur frá þeim,“ segir Sigríður Hrönn. Ríkisendurskoðandi kallaði eftir viðbótargögnum frá því í síðustu viku. Verið er að skoða allt bókhald og fylgiskjöl Dagvistar og endur- hæfingar en búist er við niðurstöðu öðru hvoru megin við páska. „Fólk verður að halda ró sinni þar til niðurstaða liggur fyrir,“ seg- ir Sigríður Hrönn. rt@frettabladid.is AÐGERÐALEYSI MS-sjúklingar í dagvist félagsins sitja að mestu auðum höndum. Þeir segja ófremdarástand ríkja eftir að forstöðumaður sem einnig gegndi störfum framkvæmdastjóra hætti störfum. Sjúklingar biðja ráðherra um hjálp Megn óánægja hjá Dagvist MS-sjúklinga á Sléttuvegi. Þeir segja að fólk sé í öngum sínum og margir hættir að mæta. Formaður segist bíða niðurstöðu Ríkisendurskoðunar. „Fólk er hætt að mæta í dag- vistina og að- eins þeir eftir sem neyðast til að koma. ÖRN Á FLUGI Vonbrigði með niðurstöður Hæstaréttar þar sem óljóst orðalag kemur í veg fyrir að mönnum sé refsað fyrir að hindra varp arnarins. Fuglaverndarfélag Íslands: Vilja tryggja verndun arnarins FUGLAVERND Fuglaverndarfélag Ís- lands lýsir vonbrigðum sínum með þá niðurstöðu Hæstaréttar að óljóst orðalag í fuglaverndarlögum heimili mönnum átölulaust að raska varpstöðum arna og hindra þar með varp þeirra. Skorað er á Siv Friðleifsdóttur umhverfisráð- herra að grípa til tafarlausra ráð- stafana til þess að tryggja verndun varpstaða arnarins með útgáfu bráðabirgðalaga. Fuglaverndarfé- lag Íslands treystir því að um- hverfisráðherra sjái til þess að rík- isvaldið geri verndun arnarins að forgangsverkefni í náttúruvernd á afmælisári félagsins. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI BOÐIÐ Í PLASTPRENT Verðbréfa- stofan hefur fyrir hönd prent- smiðjunnar Odda, Skeljungs, Sjóvá Almennra og fleiri aðila gert tilboð í hlutabréf Plast- prents. Þegar hafa þessir aðilar tryggt sér tæpan helming hluta- fjár fyrirtækisins. Tilboðið hljóðar upp á gengið einn, sem er nokkuð hærra en verð bréfa félagsins að undanförnu. Stefnt er að afskráningu félagsins á tilboðsmarkaði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.