Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 28
28 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR Hringdu í síma 907 2020. Þitt framlag getur bjargað mannslífum. HS-tískuvörusamsteypan í Kringlunni: Hættir með Mango á Strikinu TÍSKA HS-tískuvörusamsteypan, sem rekur fjölda verslana í Kringlunni og Smáralind, hefur dregið sig út úr rekstri Mango- verslunarinnar á Strikinu í Kaup- mannahöfn. Fyrirtækið opnaði þar Mango-verslun í samvinnu við aðila frá Sádi-Arabíu en sam- starfið gekk ekki sem skyldi: „Þarna rákust á tveir menningar- heimar,“ segir Hulda Hákonar- dóttir, framkvæmdastjóri hjá HS ehf. sem rekið er sem fjölskyldu- fyrirtæki. HS hefur nýverið lokað tveimur verslunum í Kringlunni; Boss – konur og Blues: „Það borgar sig að halda vel utan um það sem gengur en sleppa hinu,“ segir Hulda um lokun þessara tveggja verslana í Kringlunni og neitar orðrómi þess eðlis að Mango í Smáralind sé til sölu. „Það er reyndar allt til sölu fyrir rétt verð,“ segir hún. HS-samsteypan rekur Herra- garðinn, Boss, Hanz, Skóverslun Steinars Waage og Sand í Kringl- unni. Í Smáralind rekur fyrirtækið svo Mango, Steinar Waage og Herragarðinn, sem er reynar ein- nig með verslun á Laugavegi. ■ STRIKIÐ Íslendingarnir hættir með Mango, sem heldur þó áfram í gamla höfuðstaðnum. RANNSÓKN Leikskólinn Sólborg fékk styrk úr Þróunarsjóði leikskóla til rannsóknarverkefnis þar sem bein- ist að heyrandi börnum heyrnar- lausra foreldra. „Þetta eru börn sem hafa táknmál sem móðurmál og eru því tvítyngd,“ segir Jónína Kon- ráðsdóttir leikskólastjóri. Á leik- skólanum Sólborg eru nú um níu börn sem heyra sjálf, en eiga heyrn- arlausa foreldra. Jónína segir að ástæða þess að svo mörg slík börn séu á leikskólanum sé að mörg heyrnarlaus börn séu hjá þeim. „Við höfum því þekkingu á máli og menningu heyrnarlausra. Þess vegna sækjast margir heyrnarlaus- ir foreldrar eftir því að koma börn- unum að hjá okkur.“ Jónína segir það reynslu þeirra að tvítyngd börn þurfi stuðning við máltöku á íslensku. „Við viljum bæði styrkja íslenskukunnáttu þeirra og vonandi móðurmál þeirra, sem er táknmál.“ Hún segir þó ekki lagða áherslu á kennslu í táknmál. „Í þessu felst ákveðin viðurkenning á menningarheimi þeirra. „Þegar er verið að tala um tvítyngd börn al- mennt, þá er þessi hópur tvítyngdra barna oft ekki með í umræðunni.“ ■ SPENNANDI RANNSÓKN Leikskólinn Sólborg fékk styrk til þess að rannsaka stuðning í íslensku við heyrandi börn heyrnarlausra foreldra. Börn með táknmál sem móðurmál: Þurfa stuðning í íslensku

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.