Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 8
8 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Afarkostir
Það er sjálfsagt of seint fyrir
undirritaðan að sverja af sér
fylgispekt við Saddam Hussein,
enda aðalritari ríkisstjórnarinn-
ar búinn að úrskurða að þeir,
sem ekki vilja eiga aðild að her-
för á hendur honum, séu banda-
menn hans.
Sverrir Hermannsson. Morgunblaðið, 7. apríl.
Berserkir
Ég þurfti að rífa af mér neglurn-
ar á laugardagsmorgun áður en
ég fór suður að keppa í glím-
unni.
Inga Gerða Pétursdóttir, ungfrú Norðurland. DV,
7. apríl.
Friðaræsingamenn
Hvaða skilaboð eru andstæðing-
ar stríðs að senda með því að
valda eignatjóni, stela og
skemma?
Margrét Leósdóttir. DV, 7. apríl.
Orðrétt
Bandarísk móðir:
Vaknaði
ári eftir
barnsburð
KALIFORNÍA, AP Sautján ára stúlka
vaknaði úr dái í síðustu viku, 15
mánuðum eftir að hafa fallið í dá.
Stúlkan féll í dá eftir að læknar
fjarlægðu heilaæxli. Daginn áður
hafði frumburður hennar litið
dagsins ljós. Heilaæxlið hafði þá
nær blindað stúlkuna þannig að
hún sá nýfæddan son sinn varla.
Læknar höfðu gefið upp alla
von um að stúlkan vaknaði úr dái
sínu. Móðir hennar hélt samt í
vonina. Henni brá mjög á þriðju-
dag í síðustu viku þegar hún sá
dóttur sína hreyfa höfuðið. Stúlk-
an er enn mjög veikburða en hafði
það þó af í síðustu viku að sjá son
sinn í fyrsta skipti og strjúka hon-
um. ■
BÍLVELTA VIÐ LEIRU Ökumaður
missti stjórn á bíl á leið norður
Garðveg við Golfskálann í Leiru í
gærmorgun. Bíllinn fór út af veg-
inum, valt og endastakkst en kom
niður á hjólunum. Ökumaður
slasaðist lítillega.
ÖLVAÐUR MEÐ FÍKNIEFNI Þrjátíu
ökumenn voru kærðir fyrir um-
ferðarlagabrot í Kópavogi um
helgina. Flestir þeirra voru ekki
með öryggisbelti. Þá voru tveir
teknir grunaður um ölvun við
akstur. Hjá öðrum fannst lítils-
háttar af fíkniefnum.
Öflug sprenging í Garðabæ:
Slösuð eftir
gassprengingu
SPRENGING Þrír unglingar voru
fluttir á sjúkrahús eftir að öflug
sprenging varð um miðnætti í
fyrrakvöld í raðhúsi við Drauma-
hæð í Garðabæ. Unglingarnir, sem
eru á aldrinum 16-18 ára, eru tald-
ir hafa verið að sniffa gas til að
komast í vímu og notuðu til þess
tvo níu kílóa gaskúta og virðist
sem skrúfað hafi verið frá þeim
báðum. Enn er ekki vitað hvað kom
sprengunni af stað en talið er lík-
legt að neisti frá rafmagnstæki
hafi komist í gasið.
Unglingarnir þrír, ein stúlka og
tveir drengir, voru í bílskúrnum
þegar sprengingin varð og brennd-
ust þau talsvert illa. Þau eru ekki í
lífshættu. Sá fjórði slapp betur en
hann var fjær sprengingunni. Ung-
mennin liggja á brunadeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss og fá
að fara heim eftir nokkra daga.
Krakkarnir voru heima hjá einum
úr hópnum en foreldrarnir voru að
heiman.
Við sprenginguna, sem var
mjög öflug, þeyttust gluggakarm-
ar á bakhlið hússins úr í heilu lagi
auk þess sem bílskúrshurðin rifn-
aði og hurðakarmar með. Þá
sprungu fleiri rúður í húsinu og
þakgluggar á glerhýsi lyftist.
Einnig hrundu loftplötur í íbúð-
inni. Rúður í nærliggjandi húsum
nötruðu við sprenginguna. ■
Öfugsnúið og dýrt
listfræðilegt mat
Það var danskur dagur í dómsal í gær er um tugur Dana mætti til að bera vitni í stóra
málverkafölsunarmálinu. Var eigendasaga verkanna véfengd með framburði þeirra
en leikar tóku að æsast þegar íslenskur listfræðingur mætti til leiks.
FYRIR RÉTTI „Verkin voru keypt á
uppboði og við treystum því að það
sem merkt er Kjarval sé eftir
Kjarval,“ sagði Kristín Guðnadótt-
ir, listfræðingur og
f o r s t ö ð u m a ð u r
Listasafns ASÍ, fyr-
ir rétti í stóra mál-
verkafölsunarmál-
inu í gær. Hún var
þar sem vitni sækj-
anda.
Það mátti heyra
saumnál detta milli
þess sem Kristín
svaraði spurning-
um Sigríðar Rutar Júlíusdóttur,
verjanda Péturs Þórs Gunnarsson-
ar, við lok vitnaleiðslunnar í gær.
Þar kom meðal annars fram að
Kristín hafði starfað í Gallerí Borg
árið 1989 og sama ár var hún ráðin
til starfa hjá Listasafni Íslands við
Kjarvalsstaði sem safnvörður.
Hún tók um það ákvörðun í sam-
ráði við forstöðumann hvaða verk
voru keypt til safnsins og skráði
þau inn í safnið. Um er að ræða
nokkur þeirra verka sem nú eru
sögð fölsuð en um það er meðal
annars verið að fjalla í Héraðs-
dómi Reykjavíkur þessa dagana.
Kristín segist hafa verið hætt
árið 1997 þegar tekin var ákvörðun
um að kæra verkin til lögreglu
vegna gruns um fölsun. Verjendur
Péturs Þórs og Jónasar Freydal
vilja meina að fram komi í skjölum
að hún hafi tekið ákvörðun um að
kæra að höfðu samráði við Ólaf
Inga Jónsson, forvörð í Morkin-
skinnu. Ári síðar var hún fengin til
að gera listfræðilegt mat á verkum
Kjarvals og Svavars Guðnasonar,
þeirra sem nú eru sögð fölsuð, fyr-
ir ákæruvaldið. Samkvæmt gögn-
um sem Fréttablaðið hefur undir
höndum kostaði sérfræðiálit henn-
ar ákæruvaldið 2.336.205 krónur.
Júlíana Gottskálksdóttir vann
sambærilegar rannsóknir og á
hana er skráður kostnaður upp á
1.307.250 krónur. Á Listasafn Ís-
lands eru skráðar 8.509.348 krónur
á yfirlit um kostnað Ríkislögreglu-
stjóra. Samanlagt gerir því þessi
listfræðilega úttekt, rannsókn og
skýrslugerð um 12 milljónir og má
segja að Listasafnið hafi haft dá-
góðar tekjur vegna málsins.
Kristín gerði grein fyrir sér-
fræðiáliti sínu í gær. Í spurningum
verjenda var látið að því liggja að
við sérfræðiálitið hefði hún haft til
viðmiðunar niðurstöður Peters
Bowers, en hann dregur þær álykt-
anir að um fölsuð verk sé að ræða.
En áður en til spurninga verjenda
kom fór Kristín yfir niðurstöður
sínar. Þar segir hún ekkert þeirra
verka sem hún hafði til skoðunar
standast listrænan samanburð við
verk eftir Kjarval og Svavar. Þetta
varði myndbyggingu, pensilskrift,
litanotkun – verkin sem til rann-
sóknar voru standi verkum gömlu
meistaranna langt að baki og séu
vart svipur hjá sjón. Um myndina
sem birtist með fréttinni segir hún
að um algera samhengisleysu sé að
ræða. „Myndin á ekkert skylt við
tækni Kjarvals.“ Kristín útskýrði,
með aðstoð myndasýningar, kenn-
ingar sínar um að flestar hinna
meintu falsana væru byggðar á öðr-
um myndum meistaranna.
jakob@frettabladid.is
BRENNDUST ILLA
Þrír af þeim fjórum unglingum sem voru í
húsinu voru fluttir talsvert brenndir á
sjúkrahús. Viðurkenndu þau að hafa verið
að sniffa gas.
ÖFLUG SPRENGING
Gaskútarnir sem orsökuðu sprenginguna
voru báðir úr útigrilli. Eins og myndin ber
með sér þeyttust heilu gluggakarmarnir út.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
RÓ
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
RÓ
B
ER
T
■ Lögreglufréttir
KRISTÍN GUÐNADÓTTIR
Listfræðingurinn sem keypti verkið til þess að skrifa síðar listfræðilega álitsgerð fyrir
ákæruvaldið þar sem segir að myndin eigi ekkert skylt við tækni Kjarvals.
MEINTUR KJARVAL
Þessi mynd var keypt í Gallerí Borg á uppboði fyrir 205.000 krónur árið 1996. Vatnslitur, 61 x 44,5 sentimetrar. Eigandi Kjarvalsstaðir.
Nýbý laveg i 14 , Kópavog i . S ím i 554 4443 . Fax 554 4102 .
Lausin á góðum merkingum
ptouch 3600
smávara lager bókasafn
einstök prentgæði • sterkir borðar • borðar í mörgum litum og breyddum
fjölbreytt letur og tákn • prentar strikamerki • 360 dpi prentun
usb tengi • prentflötur allt að 27 mm
■
Samanlagt ger-
ir því þessi list-
fræðilega út-
tekt, rannsókn
og skýrslugerð
um 12 milljónir
og má segja að
Listasafnið hafi
haft dágóðar
tekjur vegna
málsins.