Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.04.2003, Blaðsíða 2
2 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR “Það rýkur upp vegna þessa unga, nýja fólks sem við höfum í fram- boði og sterkrar málafylgju.“ Sverrir Hermannsson er nýhættur sem formaður Frjálslynda flokksins. Fylgi flokksins hefur stórauk- ist að undanförnu. Spurningdagsins Sverrir, fylgið rýkur upp þegar þú hættir? FYLGI FLOKKANNA SAM- KVÆMT KÖNNUN FRÉTTA- BLAÐSINS 7. APRÍL: Flokkur: útkoma: breyting: Framsóknarflokkurinn 8,9% -0,4% Frjálslyndi flokkurinn 8,7% 0,7% Samfylkingin 34,9% -3,6% Sjálfstæðisflokkurinn 34,7% -0,3% Vinstri grænir 10,6% 1,6% Nýtt afl 1,5% 1,5% T-listi 0,7% 0,4% EFNAHAGSMÁL Nýtt fjölþrepaskatt- kerfi, með 30% skattþrepi á tekjur sem liggja á bilinu frá núgildandi skattleysismörkum og upp að 150 þúsund krónum á mánuði, kostar ríkissjóð um 11,6 milljarða króna á ári. Þetta kemur fram í greinargerð nefndar sem skipuð var haustið 2001 til þess að fjalla um kosti og galla þess að taka upp fjölþrepa- skattkerfi. Nefndin tekur hins veg- ar ekki afstöðu til þess hvort heppi- legt sé að taka upp nýtt fjölþrepa- skattkerfi. Samkvæmt nefndinni eru helstu kostir fjölþrepakerfis m.a. þeir að það gefur færi á ódýrari útfærslu til tekjujöfnunar en núgildandi kerfi. Jafnframt gefur það möguleika á að draga úr tekjutengingu bóta og færa þá tekjujöfnun inn í skattkerf- ið. Enn fremur gefur það færi á auð- veldari breytingum á jaðaráhrifum einstakra tekjuhópa. Nefndin segir að helstu gallar fjölþrepatekjuskatts séu flóknari skattframkvæmd, meðal annars með tilliti til breytilegs fjölda launagreiðenda, minni sveigjanleiki til að mæta tekjusveiflum, meiri breytingar í eftiráuppgjöri og erfið- ara skatteftirlit. ■ GEIR H. HAARDE FJÁRMÁLARÁÐHERRA Haustið 2001 skipaði fjármálaráðherra nefnd með aðild Alþýðusambands Íslands, fjármála- ráðuneytis og Þjóðhagsstofnunar til að kanna kosti og galla þess að taka upp fjölþrepatekju- skatt hjá einstaklingum. Kostir og gallar nýs fjölþrepaskattkerfis kannaðir: Nýtt 30% skattþrep kostar 12 milljarða Ölfus: Fundu jarð- skjáltann JARÐSKÁLFTI Jarðskjálfti sem mældist þrír á Richter varð í Ölfusi, milli Hveragerðis og Þor- lákshafnar, rúmlega níu í fyrra- kvöld. Íbúar í nágrenni Þorláks- hafnar urðu skjálftans greinilega varir. Í kjölfar stærri skjálftans urðu tveir minniháttar sem mæld- ust 2,2 og 1,6 á Richter. Síðasti skjálftinn varð síðan rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun. Gunnar Guðmundsson á jarð- eðlissviði Veðurstofunnar segir þessa skjálftahrinu ekki hafa neina þýðingu. Ekki sé óalgengt að minniháttar hrinur séu á þessu svæði þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr síðan 1998. ■ RÁN Nítján ára piltur sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa framið vopnað rán í Spari- sjóði Reykjavíkur fyrir réttri viku hefur ekki játað á sig glæp- inn. Hann var handtekinn á föstu- dag og húsleit var gerð heima hjá honum. Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað hann í gæslu- varðhald til 11. apríl. Hann neitar allri sök. Sautján ára stúlku sem einnig var handtekin hefur verið sleppt. Starfsmenn Sparisjóðsins komu til yfirheyrslu hjá lögregl- unni í gær. Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfirlögreglu- þjónn segir það hafa verið gert til að safna frekari upplýsingum og fara yfir stöðu málsins. Kristján Ólafur segir rannsóknina ganga vel. ■ Bankaránið í Hafnarfirði: Sá grunaði játar ekki FRÁ RÁNINU Enn er unnið að rannsókn málsins. LÖGREGLUMÁL Frestað hefur verið um eina viku að ákvarða ákæru- efni á hendur Sebastian „Dexter“ Young sem talið er að hafi myrt ís- lensku konuna Lucille Yvette Mosco í bænum Pensacola. Ákvörðun yfir- valda í Escambia- sýslu í Flórída átti að liggja fyrir í dag en nú er sagt að hún verði tekin 15. apríl næstkom- andi. Robert N. Mosco, bróðir Lucille, sem býr í Pensacola, segir að svo virðist sem saksóknari hafi yfirbókað hjá sér verkefni. Robert segir að vikuna eftir morðið á Lucille, eða Sissý eins og hún var kölluð, hafi yfirvöld í Escambia staðið fyrir fleiri hand- tökum fyrir heimilisofbeldi en allt árið í fyrra: „Yfirvöld hér í umdæminu eru að reyna að bæta álit manna vegna aðgerðarleysis síns. Það er of seint fyrir Sissý en kannski ekki fyrir aðra sem eiga við sama vandamál að stríða,“ segir Ro- bert. Fram hefur komið að gengið var frá skilnaði Lucille og Dexters í fyrra. Dómstóll hafði bannað Dexter að nálgast Lucille eftir ítrekað ofbeldi og hótanir. Hann sætti ákæru fyrir að hafa brotist inn til hennar og hótað henni með hnífi en gekk laus gegn aðeins 1.000 dollara trygg- ingu. Annar sona Lucille, Jón Atli Júlíusson, bjó hjá móður sinni í Pensacola og slapp sjálfur við ill- an leik frá morðingjanum. Dexter var handtekinn að kvöldi morðdagsins. Hann situr nú í einangrun. Fjölskylda Lucille hyggst höfða skaðabótamál á hendur yfir- völdum í Escambia fyrir hönd Jóns Atla og Roberts bróður hans. Þeir eru sextán og sautján ára gamlir. Fjölskyldan telur yfirvöld ekki hafa sinnt skyldum sínum og brugðist rétt við ítrekuðum hjálp- arbeiðnum Lucille síðustu mánuð- ina sem hún lifði. Eins hafi Dexter ekki að hafa átt að ganga laus eftir að ákæra var gefin út á hendur honum í febrúar. „Jón er á hraðri bataleið líkamlega en á eftir að takast við þetta andlega seinna þegar allt er búið að róast niður. Hann er hraustur strákurinn og vill gera sitt besta til að koma kvik- indinu honum Dexter í sem dýpsta holu,“ segir Robert Mosco. gar@frettabladid.is JÓN ATLI JÚLÍUSSON OG ROBERT N. MOSCO „Hann er hraustur strákurinn og vill gera sitt besta til að koma kvikindinu honum Dexter í sem dýpsta holu,“ segir Robert N. Mosco um systurson sinn sem tókst á hetjulegan hátt að sleppa undan morðtilraunum banamanns móður sinnar. LUCILLE YVETTE MOSCO Lucille Yvette Mosco féll fyrir morðingja- hendi á heimili sínu í Flórída 14. mars síð- astliðinn. Lögregla í sýslunni handtók jafn marga vegna heimilisofbeldis á einni viku eftir morðið eins og allt árið á undan. „Það er of seint fyrir Sissý en kannski ekki fyrir aðra sem eiga við sama vandamál að stríða,“ segir Robert N. Mosco, bróðir hennar. Handtökur vegna heimilisofbeldis í heimasýslu íslensku konunnar sem myrt var á Flórída í mars voru jafn margar á einni viku og á öllu síðasta ári. Bróðir hennar segir yfirvöld reyna að bæta ímynd sína. Gefa átti út ákæru í málinu í dag en því var frestað um viku. Morð á Íslendingi vakti lögregluna ■ „Jón er á hraðri bataleið líkam- lega en á eftir að takast við þetta andlega seinna þegar allt er búið að róast niður.“ EES-viðræður: Enn ekkert samkomulag UTANRÍKISMÁL Engin niðurstaða hafði náðst í viðræður Evrópu- sambandsins og EFTA um EES- samninginn þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Þá var enn verið að vinna í því að finna lendingu. Reynt verður til þraut- ar í dag að ná samkomulagi sem hægt er að leggja fyrir fastafull- trúanefnd EES á morgun. Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra sagðist lítið geta sagt að svo stöddu um hvort sam- komulag næðist. Menn væru þó enn að reyna þannig að enn teldu menn einhverja von til þess að lausn fyndist. ■ Bensín lækkar í dag: Esso ríður á vaðið ELDSNEYTI Olíufélagið lækkar bensín í dag um eina krónu og fimmtíu aura. Bensínlítri af 95 oktana bensíni með fullri þjón- ustu mun kosta 99,30 krónur. Lítraverð á Esso Express verður 94,10 krónur. Í tilkynningu frá fé- laginu segir að verðlækkunin nú sé byggð á væntingum um að sú verðþróun sem verið hefur á heimsmarkaði haldi áfram og meðalverð í apríl verði lægra en það var í mars. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.