Fréttablaðið - 08.04.2003, Síða 13
■ Lögreglufréttir
13ÞRIÐJUDAGUR 8. apríl 2003
Rottur í Reykjavík :
Þingholtin eru ekkert einsdæmi
MEINDÝR „Rottur eru nánast í öllu
holræsakerfi Reykjavíkur,“ segir
Guðmundur Björnsson, rekstrar-
stjóri Meindýravarna Reykjavík-
urborgar. Guðmundur segir Þing-
holtin og miðbæinn ekki vera
einsdæmi hvað varðar rottugang.
Hann segir þær vera alls staðar
vestan Elliðaáa. Ekki hafi borið á
þeim í nýju úthverfunum. Guð-
mundur segir að ef bilun verði á
holræsakerfinu vestan ánna sé
alltaf möguleiki á að til þeirra sjá-
ist.
Vegna viðgerða á lögnum og
götum í miðbænum hafa rottur átt
greiða leið í íbúðabyggðir. Frá
þessu var sagt í Fréttablaðinu í
gær.
„Rotturnar búa í holræsakerf-
inu og hafa gert það í áratugi. Þar
hafa þær nóg að éta. Rottugangur
er ekki mikill í Reykjavík. Stund-
um þvælast þær upp á yfirborðið
en reyna að komast niður aftur ef
þær geta. Við lítum aldrei á rottur
sem sjálfsagðan hlut og vonum að
það geri enginn,“ segir Guðmund-
ur. Hann segir að á sumrin sé unn-
ið reglulegt og skipulagt forvarn-
arstarf til þess að halda stofninum
niðri. Hann segir að einnig sé eitr-
að í nálæga brunna ef rottugangs
verður vart yfir vetrartímann.
„Erfitt er að reyna að útrýma
þeim. Útskot og angar eru marg-
ir sem gerir erfitt um vik að ná
til þeirra og fjölgunin er ör.
Ómögulegt er að segja hvað
stofninn er stór. Við metum
ástandið út frá þeim kvörtunum
sem okkur berast, sem oft er
bundið við ástand lagna,“ segir
Guðmundur. ■
Eldsvoði í skólahúsi:
Börn
brunnu inni
RÚSSLAND, AP Tuttugu og tveir létu
lífið þegar eldur kom upp í skóla í
litlu sveitaþorpi í Jakútíuhéraði í
Rússlandi. Skólinn var starfræktur
í gömlu timburhúsi sem brann til
grunna á örskammri stundu. Tutt-
ugu og einn nemandi og einn kenn-
ari brunnu inni en tíu voru fluttir á
sjúkrahús með brunasár og bein-
brot eftir að hafa reynt að forðast
eldhafið með því að stökkva út um
glugga. Engin slökkvistöð er starf-
rækt í þorpinu og þurfti því að kalla
til slökkvilið frá þorpi í um 20 kíló-
metra fjarlægð. Þegar björgunar-
mennirnir loksins komu á staðinn
var litlu hægt að bjarga. ■
ROTTUR HAFA BÚIÐ
Í HOLRÆSAKERFINU Í ÁRATUGI
Rottum er haldið niðri með eitri en erfitt
er að útrýma þeim.
Daman með kennitölu nöfnu
Saksóknari íhugar ákæru fyrir vændi. Daman greiddi leigusalanum skilvíslega með seðlum.
Tveir lögreglumenn skráðir til heimilis undir sama þaki og vændiskonan.
VÆNDI Daman í Hafnarfirði sem
leigði bílskúr í úthverfi bæjarins
til að stunda atvinnugrein sína gaf
leigusalanum upp kennitölu al-
nöfnu sinnar sem býr í Mosfells-
bæ. Báðar heita konurnar tveimur
nöfnum og bera sama föðurnafn.
Daman er tveimur árum yngri en
konan í Mosfellsbæ sem er hús-
móðir og segist aldrei hafa komið
nálægt þeirri iðju sem Daman er
kunn fyrir. Eigandi bílskúrsins í
Hafnarfirði kom af fjöllum þegar
Fréttablaðið innti hann eftir því
sem var að gerast í bílskúr hans.
Hann leigði bílskúrinn frá 1. febr-
úar til 1. júní en þá kvaðst leigj-
andinn ætla að flytja til útlanda til
að læra viðskiptafræði. Leigusal-
inn segir að konan hafi komið vel
fyrir og sagst vinna á næturvökt-
um. Þegar hann óskaði eftir því að
hún gerði skriflegan leigusamn-
ing sagði hún það vera sjálfsagt
og gaf upp fullt nafn og kennitölu
sem lýsti því að hún væri fædd í
júní árið 1975. Leigusalinn sagði
Fréttablaðinu að hann hefði verið
fullkomlega grandalaus um það
sem var að gerast á lóðinni hans
þar sem Daman tók á móti tveim-
ur viðskiptavinum á dag frá
klukkan 10 til 17 en þá var
leigusalinn í vinnu. Hann sagði í
samtali við Fréttablaðið að Dam-
an hefði verið einstaklega skilvís
hvað greiðslur varðaði og jafnan
stungið umslagi með seðlum inn
um póstlúguna hjá sér þegar mán-
aðamót nálguðust. Óljóst er hvaða
ávinning Daman telur sig hafa
haft af því að gefa upp ranga
kennitölu annan en þann að fela
slóð sína.
Þegar Fréttablaðið kannaði
hver væri eigandi umræddrar
kennitölu á leigusamningnum
kom á daginn að það var hús-
móðir í Mosfellsbæ en reyndin
er sú að Daman er alnafna henn-
ar og býr á Hvaleyrarholti í
Hafnarfirði. Þar hefur hún
einnig stundað vændi en þess
má geta að undir sama þaki eru
tveir lögreglumenn skráðir til
heimilis, hvort sem það var
ástæða þess að grunsemdir
vöknuðu eða ekki.
Lögreglan í Hafnarfirði gerði
húsleit í bílskúrnum í úthverf-
inu og á heimili hennar á Hval-
eyrarholti í framhaldi þess að
þeir heimsóttu hana undir því
flaggi að þar færu viðskiptavin-
ir. Daman játaði við yfirheyrsl-
ur að hafa stundað vændi með
aðstoð sambýlismanns síns.
Kristján Ólafur Guðnason, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Hafnar-
firði, sem fer með rannsókn þessa
máls, vildi ekkert um það segja.
Um helgina hafði ekki verið tekin
skýrsla af eiganda bílskúrsins og
kennitölumálið því ekki rannsak-
að.
Hjá saksóknara fengust þær
upplýsingar að mál Dömunnar
væri til skoðunar þar og ákvörð-
unar um ákæru að vænta á næst-
unni. Þar fengust þær upplýsing-
ar að ekki væru dæmi um það
fyrr að vændismál hefði komið á
borð saksóknara.
rt@frettabladid.is
BRENNDIST ILLA Í GUFUBAÐI
Maður brenndist illa á fótum eft-
ir að hafa stigið í poll sem mynd-
ast hafði inni í gufubaði á Hótel
Örk í Hveragerði. Ekki liggur
fyrir hvernig stóð á því að pollur-
inn hafði myndast. Eftir að lækn-
ir hafði litið á fót mannsins á
heilsugæslustöðinni í Hveragerði
var hann fluttur með hraði á
slysadeild Landspítala í Fossvogi.
VILDI GISTA FANGAGEYMSLU
Lögreglan á Akureyri þurfti um
helgina að hafa afskipti af
nokkrum sem höfðu misst stjórn
á drykkju sinni. Fjarlægja þurfti
ólátaseggi af veitingahúsi í mið-
bænum og reyndist nauðsynlegt
að vista einn í fangageymslu.
Stuttu síðar kom félagi hans og
taldi sig best kominn á bak við
lás og slá til öryggis. Fékk hann
góðfúslega gistingu líka. Þá var
maður handtekinn sem ógnaði
fólki með hnífi í miðbænum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T