Fréttablaðið - 08.04.2003, Page 23
23ÞRIÐJUDAGUR 8. apríl 2003
!"# $
%& '(((
! %) "*((
+ %, "*((
-. %/0"(((
1!234.#
%/*"(((
5!%* "*((
1!64%7*"(((
64 %,*"(((
.64 3#.
%0*"(((
8 -" -9: ' ' ' ' ' ' ' ' ' ' ' '
;;;'.#!2.6!'
:
#
# <##
*(=
$
>>>
!
Paul McCartney:
Frestar tónleikum vegna raddleysis
TÓNLIST Álagið á raddbönd Bítils-
ins Paul McCartney virðist vera
meira en hann grunaði og fór svo
að hann missti röddina eftir tón-
leika sína í Sheffield á laugardag.
Hann neyddist því til þess að
fresta seinni tónleikum sínum í
borginni, sem áttu að fara fram á
sunnudag.
„Ég nældi mér í kvef og því fór
röddin að gefa sig á laugardag-
inn,“ útskýrði McCartney í viðtali
við BBC. „Ég vaknaði í morgun og
röddin var nánast farin. Ég hef
reynt að gera allt til þess að laga
ástandið og prófaði að syngja
nokkur lög í hljóðprufunni á
sunnudaginn en án árangurs. Ég
verð því að hætta við þessa tón-
leika til þess að geta haldið tón-
leikaferðinni áfram.“
Hann bað aðdáendur sína í
Sheffield afsökunar og sagðist
þakklátur fyrir það að hafa að
minnsta kosti náð einum tónleik-
um þar.
McCartney hefur ekki farið í
tónleikaferð um Bretlandseyjar í
10 ár. Hann hefur þegar þrætt
Bandaríkin, Kanada, Mexíkó og
Japan, þar sem hann lék á 58 tón-
leikum í 37 borgum.
Næstu tónleikar hans eiga að
fara fram í Manchester á morgun
og er allt útlit fyrir að þeir verði
haldnir. ■
Tónleikar Scooter:
Miðar að seljast upp
TÓNLEIKAR Allt útlit er fyrir að upp-
selt verði á tónleika þýsku eró-
bikkteknósveitarinnar Scooter. Í
gær höfðu rúmlega 4.500 miðar
selst og uppselt er að verða í stúku.
Svo virðist sem fólk kjósi heldur
að vera niðri á gólfinu en að sitja
uppi í stúku. Ef til vill ekki furðu-
legt í ljósi þess að sveitin leggur
allt sitt í að fá fólk til þess að
dansa.
Starfsfólk Landssímans, þar
sem miðar eru seldir, segir að ald-
ursbil miðakaupenda sé mjög
breitt. Unglingar eru í meirihluta
en mikið er um að yngstu kaupend-
urnir fari í fylgd með fullorðnum.
Salan var mest í fyrstu en svo hef-
ur eitthvað dregið úr aðsókninni.
Þrátt fyrir það segist talsmaður
Landssímans afar bjartsýnn á að
þeir miðar sem eftir eru seljist upp
fyrir föstudag.
Útvarpsstöðin FM957 og sjón-
varpsstöðin PoppTíví hafa gefið
miða og kynnt tónleikana látlaust
frá því að tilkynnt var um tónleika-
hald í upphafi síðasta mánaðar.
Lagið „Weekend“ er komið í annað
sæti Íslenska listans, sem tekur
saman vinsælustu lögin á stöðinni.
Scooter hefur selt um 4.000
plötur á Íslandi á tíu ára ferli sín-
um. Söluhæst er safnplata sem
tekur saman öll vinsælustu lög
sveitarinnar. Ný breiðskífa sveit-
arinnar, „Stadium Techno Ex-
perience“, er væntanleg í búðir í
dag. ■
STEVE BUSCEMI
Hefur leikstýrt nokkrum þáttum af
Sopranos en blandar sér nú í slaginn hin-
um megin við myndavélina.
Sopranos:
Buscemi
leikur herra
Bleikan
SJÓNVARP Hinn alþekkti aukaleik-
ari Steve Buscemi er nýjasti með-
limur Sopranos-fjölskyldunnar.
Hann fer með hlutverk mafíósans
herra Bleiks, eða Mr. Pink, í kom-
andi þáttaröð. Fyrir skemmstu
var framleiðsla þáttanna í upp-
námi vegna launakrafna aðalleik-
arans, James Gandolfinis, en það
leystist með tvöföldun launa hans,
í 62 milljónir á hvern þátt.
Buscemi hefur vakið verð-
skuldaða athygli í aukahlutverk-
um sínum en hann leikur jafnan
misheppnaða utangarðsmenn sem
hljóta grátbrosleg örlög. ■
SCOOTER
Allt útlit er fyrir að uppselt verði á tónleika Scooter í Laugardalshöll á föstudagskvöldið.
PAUL MCCARTNEY
Raddböndin gáfu sig eftir tónleika í Sheffield á laugardag og varð hann að fresta seinni
tónleikum sínum í borginni.
SIGOURNEY WEAVER
Leikkonan Sigourney Weaver setur sig í
stellingar fyrir ljósmyndara á fimmtudaginn
síðasta. Hún var stödd í New York að
kynna væntanlega mynd sína „The Guys“,
mynd sem byggð er á sannri sögu um
blaðakonu frá New York sem aðstoðaði yf-
irmann slökkviliðsins að skrifa minningar-
grein um félaga sína sem dóu þann 11.
september. Kvikmyndahandritið er skrifað
eftir samnefndu leikriti.
Viltu stela milljón:
Breti dæmdur
fyrir svindl
SJÓNVARP Breski höfuðsmaðurinn
Charles Ingram hefur verið
fundinn sekur um að hafa krækt
sér í eina milljón punda í hinum
vinsæla sjónvarpsþætti Who
Wants to be a
Millionaire?,
eða Viltu
vinna millj-
ón? eins og
þ á t t u r i n n
nefnist á Ís-
landi. Eigin-
kona hans,
Diane, má
einnig eiga
von á því að
fá dóm fyrir
þátt sinn í
s a m s æ r i n u
sem gekk út á
það að annar
keppandi í
s a l n u m ,
Tecwen Whittock, sendi Ingram
skilaboð með því að hósta þegar
sá síðarnefndi velti svarmögu-
leikunum fyrir sér.
Hljóðmenn þáttarins urðu
varir við það að óvenju mikið
var hóstað í þessum tiltekna
þætti og komust að því að alls
komu 19 hóstar frá þeim stað
sem Whittock sat. Lögregla var
kölluð til í framhaldinu, þáttur-
inn var aldrei sýndur í sjónvarp-
inu og milljón punda ávísunin
hans Ingrams var fryst. Hann
sætti sig ekki við þetta og fór í
mál við þáttinn en situr nú uppi
peningalaus með dóm yfir höfð-
inu. ■
CHARLES INGRAM
Dómstóll í Bretlandi hefur komist að þeirri
niðurstöðu að hann hafi svindlað sér í
gegnum fimmtán spurningar í Viltu vinna
milljón? með því að láta annan mann í
salnum gefa sér vísbendingar með því að
hósta.
ÞORSTEINN J.
Þarf stundum að biðja
um þögn í salnum en
hefur enn ekki orðið
vitni að því að hósta-
köst komi keppendum
í Viltu vinna milljón?
alla leið.