Fréttablaðið - 08.04.2003, Page 31
Upplausnarástand ríkti í út-sendingarstúdíói Skjás eins
á sunnudag eftir að klippt var á
beina útsend-
ingu á Silfri
Egils þar
sem Egill
Helgason
stjórnandi
þáttarins var
í miðjum
klíðum að
ræða við
Guðmund
Árna Stef-
ánsson, alþingismann Samfylk-
ingar, Guðna Ágústsson land-
búnaðarráðherra og Pétur Blön-
dal, alþingis-
mann Sjálf-
stæðisflokks.
Þegar Egill
uppgötvaði að
slökkt hafði
verið á út-
sendingunni
brást hann
ókvæða við.
Hann sópaði
glösum af
borði og tók síðan klukku og
fleygði í gólf-
ið og braut
hana í mél. Þá
strunsaði
hann á dyr en
Guðni Ágústs-
son fylgdi fast
á hæla honum
og talaði til
hans með ró-
andi hætti.
„Malt er gott, Egill minn,“ taldi
einhver sig heyra ráðherrann
segja blíðum rómi. Heimildar-
menn Fréttablaðsins segja að
ráðherrann hafi fengið Egil upp
í bifreið sína og ekið honum
heimleiðis. Sömu heimildir
herma að þegar sé gróið um
heilt milli Egils og stjórnenda
Skjásins.
Sjötíu prósent Íslendinga virð-ast hafa trú á því að Atkins-
megrunarkúrinn skili árangri ef
marka má könnum sem Gallup
gerði fyrir
Eddu útgáfu,
sem gefur út
bók Ásmund-
ar Stefáns-
sonar og
Guðmundar
Björnssonar
læknis um
árangur þess
fyrrnefnda í
baráttunni
við aukakílóin með hjálp kúrs-
ins. 74% aðspurðra könnuðust
við kúrinn og af þeim sögðust
38,2% hafa trú á því að með
kúrnum gæti náðst árangur til
skemmri tíma og 32,9% töldu að
með honum næðist árangur til
lengri og skemmri tíma. Bók
þeirra félaga um kúrinn hefur
selst í 5.000 eintökum en eins og
frægt er orðið var Ásmundur
orðinn vondaufur um að geta
lést þegar hann komst í kynni
við aðferðir Atkins. Árangurinn
lét ekki á sér standa og verka-
lýðsleiðtoginn fyrrverandi fór
úr 120 kílóum í 80 og heldur sig
nú í kringum 85 kílóin.
Fréttiraf fólki
■ Leiðrétting
Ef öll skattalækkunarloforð stjórnmálaflokk-
anna ganga eftir verður ekki króna í ríkiskass-
anum næsta vor.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Í Súlnasal Hótel Sögu.
Saddam-flugvöllur.
Hrein og bein.
31ÞRIÐJUDAGUR 8. apríl 2003
Neytendasamtökin eru að leggjalokahönd á nýtt Neytendablað
sem verður stærra í sniðum og
glæsilegra en oftast áður. Þar á bæ
blása menn í herlúðra og berja sér
á brjóst í tilefni af 50 ára afmæli
samtakanna, sem þegar er búið að
halda upp á með ráðstefnu um
neytendamál á Grand Hóteli.
Fréttiraf fólki
BÖRN Þríburaforeldrar í Hvera-
gerði hafs sent bæjarstjórninni á
staðnum bréf og farið fram á fyr-
irgreiðslu vegna óvenjulegrar
fjölskyldustærðar. Til sanns veg-
ar má færa að óvenjulegt sé að
vera með þríbura á heimili og af
því getur hlotist aukakostnaður:
„Foreldrarnir eru að fara
fram á afslátt af leikskólagjöld-
um og við munum skoða þetta,“
segir Árni Magnússon, formaður
bæjarráðs í Hveragerði. „Þá
vinnur móðirin óreglulegan
vinnutíma og nýtir því ekki allan
þann tíma sem greitt er fyrir í
leikskólanum,“ segir hann.
Í Hveragerði gildir sú regla að
foreldrar greiða fullt gjald fyrir
fyrsta barn og síðan hálft fyrir
önnur og umfram. Þríburafor-
eldrarnir greiða því tvö leik-
skólagjöld fyrir þrjú börn.
Þríburarnir eru fæddir í mars
1998 og eru því nýorðnir fimm
ára. Þeir heita Jón, Melkorka og
Vilhelmína. ■
ÁRNI MAGNÚSSON
Skoðar erindi þríburaforeldra.
Hveragerði:
Þríburar vilja afslátt
ÞRÍBURAR Í HVERAGERÐI
Foreldrar þríbura í bænum fara fram á fyrirgreiðslu.