Fréttablaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 13
13FIMMTUDAGUR 10. apríl 2003 HONG KONG, AP Lungnabólgufarald- urinn sem hefur herjað á Suðaust- ur-Asíu ógnar afkomu margra smærri kaupmanna. Fólk hefur leitað allra leiða til að forðast að smitast af sjúkdómnum. Það hefur bitnað á smásölum sem hafa horft upp á viðskiptamannahóp sinn dragast mjög saman. Í verslanamiðstöðvum Hong Kong er ekki óalgengt að starfs- menn séu fleiri en viðskiptavinir. Fyrir faraldurinn voru verslanirn- ar oftast mikið sóttar. Margir eru hræddir við að smitast af sjúk- dómnum ef þeir fara út að borða. Fólk eldar því frekar heima. Þetta hefur leitt til þess að viðskiptavin- um veitingastaða hefur fækkað verulega. Óttast er að margir þeirra þoli ekki tekjumissinn og fari á hausinn. Faraldurinn er talinn geta hrað- að þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár í þá átt að verslana- keðjur taki viðskiptin frá fjöl- skyldufyrirtækjum. Óttast er að litlu fyrirtækin, sem löngum hafa haft litlar tekjur umfram gjöld, þoli áfallið ekki. ■ Niðurlægði konur: Lögga játar glæp NEW YORK, AP Bandarískur lög- reglumaður viðurkenndi fyrir rétti að hafa neytt fjórar konur til að afklæðast eftir að hann hafði stöðvað þær vegna umferðarlaga- brota sem þær höfðu gert sig sek- ar um. Lögreglumaðurinn neyddi eina konuna til að fara úr öllu nema nærfötunum og ganga heim þannig klædd. Maðurinn var ákærður fyrir að áreita fjölda kvenna meðan hann starfaði sem lögreglumaður árin 1998 til 2000. Fjöldi kvenna sagði að hann hefði keyrt þær á afvikna staði, stundum handjárnaðar. Dóm- ur hefur ekki verið kveðinn upp. ■ Bandarískir unglingar: Myrtu Batman BANDARÍKIN, AP Þrír unglingspiltar börðu þroskaheftan karlmann á fertugsaldri til bana í anddyri hússins sem hann átti heima í. Maðurinn var að koma heim til sín úr verslunarleiðangri þegar piltarnir, 13 og 14 ára, réðust á hann. Þeir börðu hann með gos- flöskum sem hann hafði keypt og spörkuðu í hann eftir að hann féll til jarðar. Nágrannar mannsins skildu ekki hvers vegna ráðist hefði ver- ið á hann, hann hefði verið ljúfur og vinalegur. Oft mátti sjá hann fyrir framan hús sitt, klæddan í heimasaumaðan búning í stíl Leð- urblökumannsins og fékk hann viðurnefni sitt af því. Hann sagð- ist vera að vernda hverfið fyrir glæpum. ■ Morðið á Djindjic: Vildu bylta stjórninni BELGRAD, AP Morðið á Zoran Djin- djic, fyrrum forsætisráðherra Serbíu, var hluti af fyrirhugaðri byltingu. Þetta segja lögreglu- menn sem hafa rannsakað morðið. Þeir segja að staðið hafi til að koma lýðræðislega kjörinni stjórn frá völdum með því að valda ringulreið í landinu. Einnig hafi verið hugað að því að myrða aðra lýðræðislega leiðtoga landsins. Vitnisburður Zvezdans Jovano- vics, sérsveitarforingja, er sagður hafa leitt þetta í ljós. ■ 29 ferðamenn týndir: Horfnir í eyðimörk ALSÍR, AP Hvarf sex hópa ferða- manna í Sahara-eyðimörkinni í Alsír hefur valdið talsverðum áhyggjum. Þrátt fyrir að leitað hafi verið að þeim bæði úr lofti og af landi hefur ekkert til þeirra spurst. Alls hafa 29 ferðamenn týnst með þessum hætti. 16 þeirra eru þýskir. Það varð til þess að Otto Schily, þýski innanríkisráðherr- ann, hélt í stutta heimsókn til Al- geirsborgar til að ræða við starfs- bróður sinn um leitina að ferða- mönnunum. Getgátur hafa heyrst þess efnis að uppreisnarmenn hafi rænt fólkinu. ■ Lungnabólgufaraldur dregur úr eftirspurn: Faraldur ógnar smásölum LESTARFARÞEGAR Í HONG KONG Fólk ber grímur fyrir vitum sínum til að draga úr líkum á því að smitast af heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu, HABL. VIÐRÆÐUR STANDA ENN YFIR Viðræður Kaupþings og Búnaðar- banka Íslands um sameiningu fyrirtækjanna standa enn yfir. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins ganga viðræðurnar ágætlega og niðurstaðna er að vænta á næstunni. Þegar og ef samkomulag næst verður það lagt fyrir stjórnir fyrirtækjanna til samþykktar. ■ Viðskipti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.