Fréttablaðið - 10.04.2003, Page 23
23FIMMTUDAGUR 10. apríl 2003
Frá hugmynd
að fullunnu verki
Skipaþjónusta
H
ön
nu
n:
G
ís
li
B
.
16.40 Sjónvarpið
Handboltakvöld. Endursýndur þáttur frá
miðvikudagskvöldi.
18.00 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
18.25 Sjónvarpið
Snjókross. Þáttaröð um kappaksturs-
mótaröð vélsleðamanna.
18.30 Sýn
Western World Soccer Show. Heimsfót-
bolti Western World.
19.00 Sýn
Intersport-deildin. Bein útsending frá
þriðju úrslitaviðureign Keflavíkur og
Grindavíkur.
19.15 Digranes
HK tekur á móti KA í 8 liða úrslitum
Esso-deildar karla í handbolta.
19.15 Framhús
Framarar mæta Haukum í Esso-deild
karla í handbolta.
19.15 Höllin Akureyri
Þór og ÍR eigast við í Esso-deild karla í
handbolta.
19.15 Kaplakriki
FH-ingar taka á móti Valsmönnum í
Esso-deild karla í handbolta.
20.00 Sjónvarpið
Íslandsmótið í handbolta. Bein útsend-
ing frá síðari hálfleik leiks í átta liða úr-
slitum karla.
21.00 Sýn
US Masters 2003. Bein útsending frá
fyrsta keppnisdegi bandarísku meistara-
keppninnar í golfi, US Masters, en leikið
er á Augusta National-vellinum í Georg-
íu.
22.20 Sjónvarpið
Landsmót á skíðum. Fjallað verður um
Skíðamót Íslands sem fram fer í Hlíðar-
fjalli við Akureyri.
23.30 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
0.00 Sýn
Football Week UK. Vikan í enska boltan-
um.
0.30 Sýn
Sýnt frá Players mótinu í bandarísku
PGA-mótaröðinni í golfi.
1.30 Sýn
Sýnt frá Caltex Masters-mótinu í evr-
ópsku PGA-mótaröðinni í golfi.
hvað?hvar?hvenær?
7 8 9 10 11 12 13
APRÍL
Föstudagur
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar geta
tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn
í Intersport-deildinni í körfubolta
vinni þeir Grindvíkinga í kvöld í
þriðju úrslitaviðureign liðanna.
Leikurinn verður háður á heima-
velli Grindvíkinga.
Keflavík, sem varð bikarmeist-
ari í vetur, hefur unnið tvo fyrstu
leiki úrslitanna, báða á sannfær-
andi hátt. Fari svo að Grindavík
vinni leikinn í kvöld verður næsta
viðureign liðanna háð í Keflavík á
laugardag. ■
Intersport-deild karla:
Úrslitin
geta ráðist
í kvöld
KEFLAVÍK
Keflvíkingar geta tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn í kvöld.Leikurinn
hefst klukkan 19.15.
HNEFALEIKAR
Það verður hart barist í Stapanum þann 26. apríl.
Hnefaleikakeppni í Reykjanesbæ:
Þrír Svíar koma
til landsins
HNEFALEIKAR Þrír Svíar ætla að
etja kappi við hérlenda hnefa-
leikamenn þann 26. apríl næst-
komandi. Viðureignirnar verða
háðar í Stapanum í Reykjanesbæ.
Á meðal keppenda verður Sví-
þjóðarmeistarinn í veltivigt,
John-Erik Käck, sem mun mæta
Skúla Vilbergssyni frá Keflavík.
Käck, sem er 29 ára, er reyndur
kappi með rúmlega 50 skráða
bardaga á ferli sínum. Hinir tveir
Svíarnir sem keppa eru á meðal
þeirra tíu bestu í röðum áhuga-
mannaboxara í Svíþjóð. Oskar
Thorin mætir Skúla Ármanns-
syni í þungavigt og Gebriel
Rutenskiöld berst við Þórð Sæv-
arsson í léttvigt. Auk þessara
bardaga verða fjórir upphitunar-
bardagar á milli íslenskra box-
ara. ■
FÓTBOLTI Raúl González, framherji
Real Madrid, er orðinn fjórði
markahæsti leikmaður félagsins.
Hann er jafnframt markahæstur
allra í Meistaradeildinni og
markahæstur landsliðsmanna
Spánar.
Hann hefur skorað 43 mörk í
82 leikjum í Meistaradeildinni og
er orðinn fjórði markahæsti leik-
maður Real Madrid með 212 mörk
á eftir Alfredo Di Stéfano (307
mörk), Carlos Alonso Santillana
(290 mörk) og Ferenc Puskás (236
mörk).
Raúl skoraði tvisvar fyrir
Spánverja í 3-1 sigri á Þjóðverjum
í febrúar. Þar með varð hann
markahæstur Spánverja með 31
mark í 59 landsleikjum. ■
Real Madrid:
Markamet Raúl
RAÚL
Raúl fagnar marki gegn Manchester
United. Hann er fjórði markahæsti leik-
maður Real Madrid.