Fréttablaðið - 10.04.2003, Síða 26
KVIKMYNDAHÁTÍÐ 101 Það eru svo
sannarlega engar afgangsmyndir
sem kvikmyndaáhugamönnum
verður boðið að sjá á „Kvik-
myndahátíð 101“ sem hefst í dag.
Myndirnar eru flestar með þeim
athyglisverðari síðan í fyrra.
KÖNGULÓIN
Leikstjórinn David Cronenberg
hefur þótt mistækur í gegnum tíð-
ina. Hann gerði hina frábæru mynd
„Naked Lunch“ eftir samnefndri
sögu William Burroughs en mis-
steig sig svo hrikalega með mynd-
inni „Crash“. Aðrar myndir á feril-
skrá hans eru endurgerð „The Fly“
frá árinu 1986, „Dead Ringers“ frá
1988 og splatter-myndin Scanners
frá árinu 1980.
Það er mat margra gagnrýnenda
að nýjasta kvikmynd hans,
„Spider“, sé hans besta. Myndin var
frumsýnd á Cannes-hátíðinni í
fyrra og keppti um gullpálmann.
Myndin fjallar um mann sem
þjáist af geðtruflunum. Hann
greindist með geðklofa ungur, átti
afar erfiða æsku og hefur aldrei
beðið þess bætur.
Með aðalhlutverk fara Ralph
Fiennes, Gabriel Byrne og Natasha
Richardson.
GÓÐA STELPAN
Það eru eflaust margar konur
sem geta fundið til samkenndar
með persónu Jennifer Aniston í
kvikmyndinni „The Good Girl“.
Myndin vakti mikla athygli á
Sundance-kvikmyndahátíðinni í
fyrra.
Hún leikur konu á þrítugsaldri
sem býr fábrotnu lífi í smábæ og
er föst í ástlausu hjónabandi. Til-
finningalíf hennar flækist svo
verulega þegar hún byrjar að
halda við ungan mann sem er þess
fullviss að hann sé í raun Holden
Caulfield úr bókinni „The Catcher
in the Rye“ eftir J.D. Salinger.
Leikstjóri myndarinnar er
Miguel Arteta og með önnur hlut-
verk fara Jake Gyllenhaal og
stórleikarinn John C. Reilly.
KANÍNUNETIÐ
Ástralski leikstjórinn Phillip
Noyce var afkastamikill í fyrra.
Tvær myndir sem hann leikstýrði
voru gefnar út og báðar þeirra
hlutu mikið lof gagnrýnenda.
Önnur þeirra, „The Quiet Americ-
an“, komst á blað á Óskarsverð-
launahátíðinni í ár vegna tilnefn-
ingar Michael Caine fyrir leik í
aðalhlutverki. Hin myndin,
„Rabbit Proof Fence“, er eldri en
komst þó ekki í almenna dreifingu
um Bandaríkin fyrr en í fyrra.
Myndin er byggð á sannsögu-
legum atburðum og fjallar um
Molly Craig, unga blökkukonu í
Ástralíu sem flýr ásamt yngri
systur sinni og frænku frá vinnu-
búðum.
Helstu leikarar myndarinnar
eru Kenneth Branagh, Ningali
Lawford, David Gulpilil og Jason
Clarke. Peter Gabriel var til-
nefndur til Golden Globe-verð-
launa fyrir kvikmyndatónlistina.
28 DÖGUM SÍÐAR
Breski leikstjórinn Danny
Boyle skaust upp á sjónarsviðið
eftir að hafa gert myndirnar
„Trainspotting“ og „Shallow
Grave“. Eftir hina mislukkuðu
Hollywood-mynd „The Beach“
náði hann að halda höfði í heima-
landinu með framtíðarhrollvekj-
unni „28 Days Later“.
Sagan segir frá eftirmálum
þess að bráðsmitandi vírus slepp-
ur frá breskri rannsóknarstofu
með þeim afleiðingum að stærsti
hluti mannkynsins þurkkast út. 28
dögum eftir slysið eru aðeins ör-
fáar mannverur eftir í Bretlandi
26 10. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
KVIKMYNDAHÁTÍÐ 101 Margir muna
eflaust eftir ræðu Óskarsverð-
launahafans Michael Moore sem
skammaði Bush Bandaríkjaforseta
eins og smákrakka þegar hann tók
við verðlaunum fyrir „bestu heim-
ildarmyndina“. Viðbrögð í salnum
voru blendin en að mestu virtust
gestir mótfallnir ræðu Moore.
Mynd Moore, „Bowling for Col-
umbine“, fjallar um byssulöggjöf-
ina í Bandaríkjunum. Titill myndar-
innar vísar til skotárásarinnar í
Columbine-skóla þegar tveir nem-
endur réðust inn vopnaðir rifflum
og drápu þrettán manns, einn kenn-
ara og 12 unglinga. Fyrr um daginn
höfðu þeir verið að spila keilu.
Í heimildarmyndinni kastar
Moore þeirri spurningu á loft hvort
Bandaríkjamenn séu „brjálaðir í
byssur, eða bara brjálaðir?“ Hann
setur sjálfan sig í sögumiðjuna sem
spyrill og veltir því fyrir sér hvort
hugsanlega séu tengsl á milli hárr-
ar morðtíðni í Bandaríkjunum og
hversu auðvelt það er að verða sér
úti um skotvopn. Moore situr ekki á
skoðunum sínum og kímnigáfa
hans er ísköld og beitt.
MICHAEL MOORE
Gaf út bókina „Stupid White Men“ fyrir
nokkrum árum og hefur síðan þá verið
einn helsti þjóðfélagsádeilumaður Banda-
ríkjanna.
SÝNINGAR
11. apríl kl. 17.50 og 22.
12. apríl kl. 18 og 20.
13. apríl kl. 20.
14. apríl kl. 17.50 og 22.
15. apríl kl. 20 og 22.10.
16. apríl kl. 20 og 22.10.
17. apríl kl. 15.50 og 22.
18. apríl kl. 15.50 og 22.
19. apríl kl. 17.50.
20. apríl kl. 15.50 og 20.
21. apríl kl. 15.50 og 22.
22. apríl kl. 20 og 22.10.
23. apríl kl. 17.50 og 20.
24. apríl kl. 20 og 22.10.
25. apríl kl. 20 og 22.10.
26. apríl kl. 20 og 22.10.
27. apríl kl. 20 og 22.10.
Umdeild heimildarmynd Michael Moore:
Keilað fyrir
Columbine
BOWLING FOR COLUMBINE
Internet Movie Database - 8.9 /10
Rottentomatoes.com - 95% = Fresh
Entertainment Weekly - B
Los Angeles Times - 3 stjörnur (af fimm)
Bíóborgin
101 Reykjavík
Í dag hefst kvikmyndahátíð bíófélagsins 101 í nýpússuðu kvikmynda-
húsi Regnbogans við Hverfisgötu. Hátíðin er með glæsilegra móti og
verða 13 myndir af ólíkum meiði frá ýmsum löndum sýndar.
RABBIT PROOF FENCE
Internet Movie Database - 7.8 /10
Rottentomatoes.com - 86% = Fresh
Entertainment Weekly - B+
Los Angeles Times - 2 stjörnur (af fimm)
Sýningar: 11. apríl kl.18. 13. apríl kl. 18. 15.
apríl kl. 18. 17. apríl kl. 18. 19. apríl kl.16.
20. apríl kl. 22.20. 23. apríl kl. 22.20. 25.
apríl kl. 18. 27. apríl kl. 18
SPIDER
Internet Movie Database - 7.1 /10
Rottentomatoes.com - 87% = Fresh
Entertainment Weekly - B
Los Angeles Times - 4 og hálf stjarna
Sýningar: 12. apríl kl. 18. 14. apríl kl. 22.20.
18. apríl kl. 18. 21. apríl kl. 16. 24 .apríl kl.
16. 26. apríl kl. 18. 27. apríl kl. 16.
THE GOOD GIRL
Internet Movie Database - 7.0 /10
Rottentomatoes.com - 78% =
FreshEntertainment Weekly - C
Los Angeles Times - 4 og hálf stjarna
Sýningar: 12. apríl kl. 18. 13. apríl kl. 16.
14. apríl kl. 20. 15. apríl kl. 22.20. 16. apríl
kl. 16. 17. apríl kl. 18. 18. apríl 18. 19. apríl
kl. 20. 20. apríl kl. 22.10. 21. apríl kl. 18.
22. apríl kl. 22.20. 23. apríl kl.18. 24. apríl
kl.18. 25. apríl kl. 22. 26. apríl kl. 22.20, 27.
apríl kl. 16.