Fréttablaðið - 10.04.2003, Síða 31
FIMMTUDAGUR 10. apríl 2003
SJÓNVARP Framleiðendur gaman-
þáttarins „Will & Grace“, sem
sýndur er á Skjá 1, gengu á eftir
poppsöngkonunni Madonnu í tvö
ár um að taka að sér gestahlutverk
í þáttunum. Í fyrstu sýndi
Madonna lítinn áhuga, enda upp-
tekin kona, en eftir að hafa fengið
stærðarinnar sendingu af rósum
heim til sín opnaði hún fyrir samn-
ingsviðræður.
Framleiðandi þáttanna, Tim
Kaiser, segist hafa vitað af því að
Madonnu þætti vænt um enskar
rósir og hóf því að senda bunka til
hennar í gríð og erg. Í fyrstu var
honum tjáð að Madonna ætti ekki
sjónvarp og hefði því aldrei heyrt
þáttarins getið.
Henni voru því sendar mynd-
bandsspólur af þáttum þar sem
Michael Douglas, Matt Damon og
fleiri fóru með aukahlutverk. Svar
frá poppdrottningunni barst fram-
leiðendunum þó ekki fyrr en
nokkrum mánuðum síðar. Þá hafði
kvikmynd Madonnu og eigin-
manns hennar Guy Ritchie fjarað
út og hún ólm í því að sanna sig
sem leikkona. Madonna samþykkti
að leika í þáttunum með því skil-
yrði að hún væri ekki að leika
sjálfa sig. Persóna hennar í þáttun-
um er herbergisfélagi Karen, sem
Megan Mullally leikur, og er víst
afar spaugileg. ■
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
2
00
3Fæst um land allt
Dreifingaraðili:
Tákn heilagrar
þrenningar
Til styrktar
blindum
MADONNA
Fyrstu viðbrögð Madonnu þegar hún var beðin um að fara með gestahlutverk í þáttunum
voru að hún ætti ekki sjónvarp og hefði aldrei heyrt þáttarins getið.
Will og Grace:
Gengu á eftir
Madonnu í tvö ár
CHARLES INGRAM OG FRÚ
Mæta fyrir rétt. Hann fékk vinningsupp-
hæðina aldrei greidda en hélt ávallt fram
sakleysi sínu. Hann, eiginkona hans og vit-
orðsmaður þurfa nú að greiða háa sekt
fyrir svindlið en rjúfi þau ekki skilorð
næstu árin sleppa þau við fangelsisvist.
Stöð 2:
Sýnir svindl-
araþáttinn
VILLTU VINNA MILLJÓN? Stöð 2 hefur
keypt sýningarréttinn að margum-
töluðum breskum Viltu vinna
milljón?-þætti sem hefur verið
mikið í fréttum undanfarið vegna
þess að Charles Ingram, sem vann
milljón pund í þættinum, hefur
verið dæmdur fyrir að hafa notið
aðstoðar frá öðrum keppanda sem
sendi honum merki með því að
hósta. Þátturinn var tekinn upp
fyrir einu og hálfu ári en var aldrei
sjónvarpað þar sem grunur um að
sigurvegarinn væri með óhreint
mjöl í pokahorninu kviknaði strax.
Þátturinn verður sýndur á Stöð
2 í heild sinni í maí en í honum er
einnig greint ítarlega frá réttar-
höldunum, sem vöktu heimsat-
hygli.
Eiginkona Ingrams, Diana, og
félagi þeirra, Tecwin Whittock,
voru einnig sakfelld en fullsann-
að þótti að þau ættu aðild að mál-
inu. ■
Leyniskyttan í
Washington:
Sjónvarps-
mynd í und-
irbúningi
SJÓNVARP Undirbúningur að gerð
tveggja klukkustunda sjónvarps-
myndar um leitina að leyniskytt-
unum sem hrelldu íbúa Wash-
ington í haust er kominn á fulla
ferð. Gengið hefur verið frá
samningi við leikarann Charles S.
Dutton um að leika lögreglustjór-
ann Charles Moose, sem var í eld-
línu fjölmiðla á meðan örvænting-
arfull leitin að morðingjunum
stóð yfir. Dutton hefur komið víða
við á ferlinum og lék meðal ann-
ars í kvikmyndunum Alien 3 og D-
Tox með hinum heillum horfna
Sylvester Stallone.
Tökur á myndinni, sem mun
heita The Beltway, hefjast síðar á
þessu ári. Bobby Hosea mun fara
með hlutverk skyttunnar John
Allen Muhammad og Trent
Cameron leikur stjúpson hans Lee
Boyd Malvo. Þá fer Charlayne
Woodard með hlutverk fyrrver-
andi eiginkonu Muhammads en
hún er talin hafa átt mikinn þátt í
að það hafðist upp á skyttunum. ■