Fréttablaðið - 10.04.2003, Síða 39

Fréttablaðið - 10.04.2003, Síða 39
LEIKSKÓLAPLÁSS „Þetta er mannrétt- indamál. Byggi ég í Kópavogi væru leikskólaplássin tíu þúsund krónum ódýrari,“ segir Ólöf Björnsdóttir, móðir þríbura í Hveragerði, en Ólöf og Sigurður eiginmaður hennar höfðu óskað eftir afslætti á leik- skólaplássi vegna sérstakra fjöl- skylduaðstæðna. Hafði Árni Magn- ússon, formaður bæjarráðs, gefið loforð um snögg og góð viðbrögð en margt fer öðruvísi en ætlað er: „Bæjaráð vísaði máli okkar til félagsmálanefndar, sem hafnaði beiðninni,“ segir Ólöf, sem starfar í Landsbankanum í Hveragerði. Eig- inmaður hennar er nuddari hjá Heilsustofnun Náttúrulækningafé- lagsins. Reglur Hveragerðisbæjar kveða á um að foreldrar greiði fullt gjald fyrir fyrsta barn en fyrir ann- að fái þau 35 prósent afslátt og 50 prósent afslátt fyrir það þriðja. Gildir aflslátturinn fyrir leikskóla- gjöldin sjálf en ekki fæðiskostnað. „Menn vilja heldur ekki taka til- liti til þess að ég þarf að aka með þríburana í þroskaþjálfun til Sel- foss tvisvar í viku og get því ekki nýtt leikskólaplássin til fulls. Eins og títt er um þríbura eru þeir fyrir- burar og hreyfigeta þeirra enn tak- mörkuð. Allt kostar þetta peninga,“ segir Ólöf en þríburarnir hennar eru nýorðnir fimm ára. Með ákvörðun félagsmálanefnd- ar Hveragerðis er ljóst að Árni Magnússon, formaður bæjaráðs, getur ekki staðið við loforð sitt um góðar lyktir málsins. Ekki náðist í Árna í gær en hann er sem kunnugt er í framboði til Alþingis fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík norður. ■ 39FIMMTUDAGUR 10. apríl 2003 Framsóknarmenn ætla að takakosningabaráttuna með trompi og eru byrjaðir að auglýsa sig á fullu. Flokkurinn opnaði kosninga- miðstöð sína í Reykjavík á laugar- daginn og fékk poppdrottninguna Birgittu Haukdal til að troða upp við það tækifæri. Það er skemmst frá því að segja að hún olli íra- fári og er fyrir vikið „maður vikunnar“ á hriflu.is, heimasíðu framsóknarfélag- anna í Reykjavík, þar sem henni er hrósað undir slagorðinu „X-B fyrir Birgittu“. Þá fer Björgmundur Örn Guðmundsson, ritstjóri maddöm- unnar.is, mikinn og segir skynsem- ina ráða för hjá framsóknarmönn- um. Þetta slagorð hefur gefið ein- hverjum tilefni til að rifja upp hagsmunasamtök sem eigendur Trabant-bifreiða stofnuðu hérlendis á sínum tíma en þau hétu Klúbbur- inn skynsemin ræður. Fréttiraf fólki ÞRÍBURARNIR Í HVERAGERÐI Jón Bjarni, Vilhelmína Steinunn og Mel- korka Elín. Með þeim á myndinni er stóri bróðir þeirra, Björn Aron. Framfærsla ■ Ólöfu Björnsdóttir og Sigurði B. Jóns- syni, þríburaforeldrum í Hveragerði, hefur verið synjað um afslátt vegna leikskóla- gjalda barnanna þriggja. Þríburaforeldrum synjað UMHVERFISVERND Leikskólinn Mánabrekka á Seltjarnarnesi er í fararbroddi leikskóla á Íslandi í umhverfismálum. Leikskólinn fékk viðurkenningu Seltjarnar- nesbæjar fyrir starf að umhverf- ismálum. Skólinn hefur sérstak- lega gert umhverfis- og náttúru- vernd að leiðarljósi í uppeldis- stefnu sinni og sett sér skýr mark- mið og áætlanir um að fylgja þeim eftir. Mánabrekka hefur unnið brautryðjendastarf í bænum sem að mörgu leyti hefur mótað grunninn fyrir aðra skóla á Sel- tjarnarnesi. ■ UMHVERFISVÆN BÖRN Krakkarnir á Leikskólanum Mánabrekku eru til fyrirmyndar í umhverfismálum. Leikskólinn Mánabrekka: Til fyrirmyndar Annars er það að frétta af fram-sóknarmönnum í kosningaham að Samband ungra framsóknar- manna hefur opnað heimasíðuna www.suf.is. Það voru formaður og varaformaður SUF, Dagný Jóns- dóttir og Birkir Jón Jónsson, sem opnuðu nýju síðuna í gær við form- lega athöfn á einni af kosninga- skrifstofu Framsóknarflokksins á Akureyri. Vefnum er ætlað að vera frétta- og upplýsingamiðill fyrir unga framsóknarmenn. Fjölmargir einstaklingar úr röðum ungra framsóknarmanna munu sjá um regluleg frétta- og greinaskrif. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.