Fréttablaðið - 28.04.2003, Qupperneq 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 28. apríl 2003
Tónlist 21
Leikhús 21
Myndlist 21
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
TÓNLIST
Segir Madonnu
huglausa
ÍÞRÓTTIR
Eftirminnilegustu
tilþrifin
MÁNUDAGUR
96. tölublað – 3. árgangur
bls. 18
MENNING
Ævisagna-
höfundar
bls. 23
SÝNING Nýr vetnisbíll frá Daimler
Chrysler verður sýndur almenningi
fyrir framan Tæknigarð í Háskóla
Íslands frá klukkan 14 til 15.
Klukkan 15 hefst síðan fyrirlestur
sem Dr. Scott Staley, yfirmaður
efnarafaladeildar Ford Motor
Company í Bandaríkjunum, heldur
í stofu 157 í VR II í Háskóla Ís-
lands. Fyrirlesturinn og sýningin er
öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Nýr vetnisbíll
FUNDUR Samtök ferðaþjónustunnar
boða til fundar með frambjóðend-
um stjórnmálaflokkanna á Hótel
Sögu klukkan 16. Frambjóðendur
reifa stuttlega stefnu flokka sinna í
málefnum sem tengjast ferðaþjón-
ustunni og svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri verður Einar Bolla-
son.
Stjórnmálamenn
ræða ferðamál
FUNDUR Málþing um börn og fátækt
verður haldið klukkan 13 á Grand
Hóteli í Reykjavík á vegum Ís-
Forsa, samtaka áhugafólks um
rannsóknir og þróunarstarf á sviði
félagsráðgjafar. Jafnt fræðimenn
sem einstaklingar sem þekkja fá-
tækt af eigin raun fjalla um efnið.
Börn og fátækt
bls. 21
REYKJAVÍK Norðaustan
8-8 m/s og skýjað með
köflum.
Hiti 0 til 7 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 13-18Snjókoma 3
Akureyri 8-13 Slydda 3
Egilsstaðir 8-13 Slydda 3
Vestmannaeyjar 5-13 Skýjað 4
➜
➜
➜
➜
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
90.000 eintök
73% fólks lesa blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
mánudögum?
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
20%
D
V
58%
75%
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
febrúar 2003
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003.
FYRSTI STÓRLEIKUR SUMARSINS Íslandsmeistarar KR sigruðu færeysku meistarana HB 2-0 í Atlantic-bikarkeppninni á KR-vellinum í
gær. KR hafði yfirburði í leiknum og skoraði Arnar Gunnlaugsson fyrsta mark sitt fyrir félagið úr víti í fyrri hálfelik. Sigurvin Ólafsson inn-
siglaði sigurinn í seinni hálfleik.
SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti lands-
manna er andvígur því að Sjálf-
stæðisflokkurinn og Samfylkingin
myndi nýja ríkisstjórn eftir kosn-
ingar, samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins.
Flestar skoðanakannanir sem
birtar hafa verið undanfarnar vik-
ur og mánuði hafa sýnt að aðeins
er möguleiki á einu tveggja flokka
stjórnarmynstri, þ.e. stjórn Sjálf-
stæðisflokksins og Samfylkingar-
innar. Samkvæmt síðustu könnun
Fréttablaðsins á fylgi flokkanna
hafa flokkarnir samanlagt 44 menn
á þingi, Sjálfstæðisflokkurinn 23
og Samfylkingin 21.
Þjóðin virðist hins vegar ekki
mjög áfjáð í að flokkarnir starfi
saman. Könnunin leiddi í ljós að
55% landsmanna eru andvíg ríkis-
stjórnarsamstarfi flokkanna. Að-
eins 22% eru fylgjandi því en næst-
um 23% aðspurðra eru óákveðin.
Fréttablaðið hefur áður spurt
fólk hvort það vilji að Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn
starfi áfram í ríkisstjórn eftir kosn-
ingar. Tæplega 38% voru fylgjandi
áframhaldandi ríkisstjórnarsam-
starfi flokkanna, en 52% andvíg og
10% óákveðin. Örlítið fleiri voru
fylgjandi því að Samfylkingin,
Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri
grænir mynduðu stjórn eftir kosn-
ingar, rúmlega 38%. Af þeim þrem-
ur stjórnarmynstrum sem spurt
hefur verið út í er minnsta andstað-
an við þriggja flokka stjórn
núverandi stjórnarandstöðuflokka.
Um 43% eru andvíg slíkri ríkis-
stjórn samanborið við t.d. 55% and-
stöðu við ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og Samfylkingarinnar.
Skoðanakönnunin var gerð sl.
fimmtudag og var úrtakið 1.200
manns. Í könnuninni var spurt: Ertu
fylgjandi eða andvíg(ur) því að
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking
myndi ríkisstjórn eftir kosningar?
trausti@frettabladid.is
Mesta andstaðan við
stjórn stóru flokkanna
Um 55% landsmanna eru andvíg því að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi stjórn eftir
kosningar. Minnsta andstaðan er við þriggja flokka stjórn núverandi stjórnarandstöðuflokka.
Jónína Bjartmarz
skipar 1. sæti á lista
Framsóknarflokksins
í Reykjavík suður
Kjósum lægri endurgreiðslu námslána
STJÓRNMÁL Sjálfstæðismenn hafa
kvartað undan fréttaflutningi
Ríkisútvarpsins af fundi Davíðs
Oddssonar á Ísafirði, þar sem
tveir dyggir sjálfstæðismenn
vöruðu Davíð við að tjá sig um
kvótakerfið. Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri flokks-
ins, sendi tölvupóst á fréttastofu
útvarpsins þar sem hann tjáði
óánægjuna með fréttaflutning-
inn.
Sjálfstæðismenn á Ísafirði eru
mjög ósáttir við fréttirnar af
fundinum og telja þær ekki hafa
gefið rétta mynd af því sem þar
fór fram. „Fréttirnar gáfu ekki
rétta mynd af mjög góðum fundi
með forsætisráðherra,“ segir
Birna Lárusdóttir, bæjarfulltrúi í
Ísafjarðarbæ og sjöundi maður á
lista flokksins í kjördæminu. „Á
þessum fundi kom margt nýtt
fram, meðal annars að línuíviln-
un dagróðrabáta mun taka gildi í
haust. Frá því var ekki greint í
fréttinni.“ Einnig hafi komið
fram að forsætisráðherra teldi að
röðin væri komin að þessum
landshluta í atvinnuuppbyggingu
eftir uppbyggingu á Austfjörð-
um.
Kári Jónasson, fréttastjóri
RÚV, segir alltaf eitthvað um slík
erindi í aðdraganda kosninga.
Það hafi hins vegar heldur farið
minnkandi. Fréttastofan stendur
við fréttina og ekki er talið að eft-
irmálar verði af þessu erindi. Í
sama streng tók Finnbogi Her-
mannsson, deildarstjóri Ríkisút-
varpsins á Ísafirði. ■
Kuldakast í vikunni:
Gróður ekki
í stórhættu
VEÐRIÐ Veðurstofan spáir kulda-
kasti á landinu næstu daga og úti-
lokar ekki að það muni standa út
vikuna. Það hef-
ur þegar snjóað
á Austurlandi og
fyrir norðan en
snjó hefur þó
ekki náð að
festa. Veðurstof-
an gerir ráð fyr-
ir einhverri of-
ankomu í vik-
unni en þó þykir
ólíklegt að það
muni snjóa suð-
vestanlands.
Veðrið hefur
ekki haft áhrif á
færð á vegum og samkvæmt upp-
lýsingum Vegagerðarinnar voru
allir vegir á landinu færir í gær.
Einhverjir hálkublettir voru á
Norður- og Norðvesturlandi en
það var ekkert sem hamlaði færð.
Gróður hefur dafnað vel í
þeirri einmunatíð sem verið hef-
ur í vetur og að sögn Láru Jóns-
dóttur, garðyrkjufræðings hjá
Blómavali, má vissulega hafa
áhyggjur af gróðrinum þegar
kuldakast kemur eftir langvar-
andi hlýindi en hún óttast þó ekki
varanlegan skaða.
„Það sem hefur laufgast og er
orðið grænt er í mestri hættu
hvað skemmdir varðar en þær
ættu þó ekki að vera alvarlegar.
Skemmist eitthvað ætti það að ná
sér aftur á strik á tveim til þrem-
ur vikum. Þetta er bara eitthvað
sem við þurfum að búa við
hérna.“ ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
LÁRA JÓNS-
DÓTTIR
Segir að gróðri stafi
ekki nein sérstök
hætta af kuld-
anum.
Fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af fundi Davíðs Oddssonar á Ísafirði:
Sjálfstæðismenn kvarta