Fréttablaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 11
11MÁNUDAGUR 28. apríl 2003 Þú flýgur áfram ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 06 00 04 /2 00 3 Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 OPIÐ www.utilif.is Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 SpEva miðsólinn er sveigjan- legri og endingarbetri og gefur meiri dempun en áður hefur þekkst. Fljótandi hátækni Silicon gel og IGS veita betri tilfinningu fyrir undirlaginu, hámarks höggdempun og góðan stöðugleika. Þú lítur á líkamlega áreynslu sem sérstaka gæðastund - ekki sem skyldu. Þú upplifir hlaup sem vellíðan ekki sem erfiði. Þú hefur valið Asics og val á hlaupaskóm er ekki lengur spurning í huga þér. Þú flýgur áfram! 46% þátttakenda í New York maraþoni og 48% þátttakenda í Hamborgar maraþoni árið 2002 hlupu í Asics-skóm. Sérfræðingur veitir ráðgjöf laugardag frá kl. 14-16 í Glæsibæ og sunnudag frá kl. 14-16 í Smáralind. Asíulönd ætla að sameina krafta sína: Þúsundum skipað í sóttkví PEKING, AP Heilbrigðisyfirvöld í Peking hafa einangrað þrjú sjúkra- hús og skipað yfir 4.000 borgarbú- um að halda sig heima í tilraun yfirvalda til að hefta útbreiðslu bráðalungnabólgu. Orðrómur hef- ur verið á kreiki um að kínversk yfirvöld ætli að beita herlögum til þess að koma í veg fyrir að fólk yf- irgefi borgina en ráðamenn hafa vísað því alfarið á bug. Mikil reiði ríkir meðal almennings í garð yfir- valda, sem eru sökuð um að hafa vikum saman reynt að hylma yfir útbreiðslu sjúkdómsins. Á annan tug Asíulanda íhuga nú að setja fram sameiginlega áætlun til þess að efla baráttuna gegn lungnabólgufaraldrinum. Meðal þess sem rætt hefur verið um er að skylda ferðamenn til þess að und- irrita yfirlýsingar um heilsufar sitt og setja ferðabann á alla sem hafa einkenni sjúkdómsins. Einnig er ætlunin að bæta til muna upp- lýsingaflæði á milli landanna. Í Taipei, höfuðborg Taívan, hefur stórt sjúkrahús verið ein- angrað vegna bráðalungnabólgu. Mikill ótti við smit ríkir á meðal þeirra 930 starfsmanna sem hald- ið er á sjúkrahúsinu gegn vilja sínum. Hafa þeir mótmælt ráð- stöfuninni með því að kasta flöskum og ýmsu lauslegu út um glugga sjúkrahússins. ■ VIÐ SJÚKRAHÚS Í PEKING Öryggisverðir banna ljósmyndurum aðgang að Ditan-sjúkrahúsinu í Peking. Engar heim- sóknir eru leyfðar en starfsfólk fær að yfirgefa sjúkrahúsið undir eftirliti. Hafnarfjarðarhöfn: Vodkinn var landasull LÖGREGLA Kafarar rákust á talsvert magn af áfengi í glerflöskum á botni Hafnarfjarðarhafnar á laug- ardagsmorgun. Þeir tóku nokkrar flöskur með sér upp og töldu að í einni þeirra væri hinn fínasti vodki. Lögreglan í Hafnarfirði tók góssið í sína vörslu eftir að kafararnir gerðu henni viðvart og þar á bæ telja menn að um „gamalt landa- sull“ sé að ræða og líklega hafi veig- arnar verið soðnar um borð í rúss- neskum togara í höfninni fyrir nokkrum árum. Glundrinu hefur verið hellt í niðurfall og því verður engum meint af því úr því sem komið er. ■ HILDUR JÓNSDÓTTIR JAFNRÉTTISFULLTRÚI Frægur fyrirlesari verður á málþingi um jafnréttismál sem fram fer í Tjarnarbúð í dag. Málþing um jafnréttismál: Gagnast minnihluta- hópum JAFNRÉTTISMÁL Málþing um jafn- réttismál verður haldið í dag og er aðalfyrirlesari Dr. Teresa Rees frá Cardiff-háskólanum í Wales, en hún er einn helsti sérfræðing- ur Evrópu í samþættingu jafnrétt- ismála, almennri stefnumótun og ákvarðanatöku. Hildur Jónsdóttir, jafnréttis- fulltrúi Reykjavíkurborgar, segir kveikjuna að málþinginu vera vangaveltur um hvort áherslur í jafnréttismálum og jafnrétti kynjanna séu of þröngar og hvort eigi að víkka jafnréttisstarf þess- ara tveggja aðila vegna þess að þær aðferðir geti gagnast svo miklu víðar. „Þá erum við að tala um ýmsa minnihlutahópa eins og fólk af ólíkum þjóðarbrotum, fatl- aða, samkynhneigða og fleiri. Jafnréttisnefnd háskólans er komin vel á veg með þetta en við ekki og því við erum að hefja þessa umræðu með þessu mál- þingi.” Jafnframt halda þau Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi, dr. Oddný Mjöll Árnadóttir lögmaður, Rósa Erlingsdóttir, jafnréttisfull- trúi Háskóla Íslands, og Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar, stutt erindi. Málþingið fer fram í Tjarnar- búð og hefst klukkan 13.30. ■ SPRENGING Á FLUGVELLI Ellefu manns særðust þegar röra- sprengja sprakk á Sukarno Hatta-flugvellinum í Jakarta, höf- uðborg Indónesíu. Yfirvöld telja að hryðjuverkamenn úr röðum aðskilnaðarsinna standi á bak við ódæðisverkið. Einnig eru uppi getgátur um að samtökin Jemaah Islamiyah, sem grunuð eru um hryðjuverkaárásirnar á Bali, hafi skipulagt tilræðið. FJÖLSKYLDA FERST Í BÍLSLYSI Þrettán manns létu lífið þegar jeppi fór út af fjallvegi og hrap- aði sjö hundruð metra ofan í gil á norðanverðu Indlandi. Hinir látnu tilheyrðu allir sömu fjöl- skyldunni. Níu ára gömul stúlka komst ein lífs af og var flutt á sjúkrahús með minniháttar áverka. Slys eru tíð á þessu svæði enda fjölfarnir vegir mjóir og afar hættulegir. ■ Asía

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.