Fréttablaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 24
SJÓNVARP Sjónvarpsstöðin NBA
TV sem fjallar um körfubolta
allan sólarhringin hefur ákveðið
að hefja framleiðslu á raunveru-
leikasjónvarpsþætti.
Þátturinn byggist á því að
kvikmyndatökumenn elta 16
fræga leikmenn NBA deildar-
innar á röndum. Fylgst verður
með einum leikmanni úr hverju
liði deildarinnar. Aðdáendur
körfubolta fá því þannig innsýn í
lifnaðarhætti leikmanna og fá að
sjá hversu mikil áhrif gengi liða
þeirra í deildinni hefur á þá.
Þáttaröðin verður jafn löng
keppnistímabilinu. Á hverjum
degi fer nýr hálftímaþáttur í
loftið.
Á meðal þeirra sextán leik-
manna sem fylgst verður með
má nefna Robert Horry hjá Los
Angeles Lakers og Kevin Gar-
nett hjá Minnesota Timberwolv-
es. Tökumennirnir fá að elta
leikmennina inn í búningsklef-
ann um leikvanginn og alla leið í
heimahús.
Um leið og lið þeirra detta úr
keppninni losna þeir við tökulið-
ið. ■
28. apríl 2003 MÁNUDAGUR
Ég villtist af og til inn á beina út-sendingu frá fegurðarsam-
keppninni Ungfrú Ísland.is á Skjá
einum á föstudaginn. Keppnin sner-
ist að sögn alls ekki um ytri fegurð
heldur þá innri með tilheyrandi
áherslu á akademískan metnað og
háleita framtíðardrauma keppanda.
Þetta er sjálfsagt versta sjónvarps-
efni sem sögur fara af og slær allt
annað út í leiðindum.
Maður getur svo sem skilið fólk
sem nennir að hanga fyrir framan
sjónvarpið og horfa á bíla keyra
sama hringinn út í hið óendanlega,
22 menn eltast við bolta eða menn
spila snóker eða golf, enda eru þetta
þó hlutir sem hlýtur að vera
skemmtilegra að stunda en horfa á.
Fegurðarsamkeppnirnar geta
ekki einu sinni talið sér það til tekna
að áhorfendur vilji innst inni taka
þátt. Það er ekki annað hægt en að
vorkenna stelpunum sem standa í
þessu basli og fá ekkert að launum
nema augnabliksathygli.
Sú sem vinnur fær þó væntan-
lega aðeins meira fyrir sinn snúð;
ársbirgðir af farða og afnot af bíl
merktum einhverjum kostunaraðil-
anum eða eitthvað álíka. Það er ekki
neitt samanborið við tímakaup
Schumachers, Tiger Woods og
Beckhams enda ráða markaðslög-
málin hér eins og annars staðar og
því er ekki sanngjarnt að etja döm-
unum í mannjöfnuð við íþrótta-
mennina í sjónvarpinu. Það vilja
miklu fleiri fylgjast með þeim og
þrátt fyrir innihaldslausa iðju
þeirra er skemmtanagildið meira.
Vilji menn á annað borð sjón-
varpa dulbúnum kroppasýningum
er þá bara ekki ráðið að ganga
hreint til verks og fara með tökuvél-
arnar til Geira á Goldfinger? Maður
gæti enst yfir því. ■
Sjónvarp
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
■ komst að því um helgina að
fegurðarsamkeppnir eru
ómögulegt sjónvarpsefni.
Leiðindi.is
20.00 Kvöldljós
21.00 Bænastund
21.30 Joyce Meyer
22.00 Benny Hinn
22.30 Joyce Meyer
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
15.20 NBA (Úrslitakeppni)
17.50 Ensku mörkin
18.50 Enski boltinn Bein útsend-
ing.
21.00 Spænsku mörkin
22.00 Gillette-sportpakkinn
22.30 Olíssport
23.00 Ensku mörkin
23.55 Call Me (Hringdu í mig) Að-
alhlutverk: Patricia Charbonneau,
Stephen McHattie, Boyd Gaines,
Sam Freed, Patti D’Arbanville. Leik-
stjóri: Solace Mitchell. 1988.
Stranglega bönnuð börnum.
1.30 Spænsku mörkin
2.25 Dagskrárlok og skjáleikur
14.35 Kosningar 2003 - Reykjavík
suður
15.35 Kosningar 2003 - Suðvest-
urkjördæmi
16.35 Helgarsportið
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Myndasafnið
18.30 Spanga (25:26)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.40 Kastljósið - Kosningar
2003
20.20 Lífshættir spendýra (5:10)
21.15 Vesturálman (5:22) (West
Wing) Bandarísk þáttaröð um for-
seta Bandaríkjanna og samstarfs-
fólk hans í vesturálmu Hvíta húss-
ins.
22.00 Tíufréttir
22.20 Soprano-fjölskyldan (9:13)
23.10 Spaugstofan
23.25 Markaregn
0.20 Kastljósið - Kosningar 2003
1.05 Dagskrárlok
6.58 Ísland í bítið
9.00 Bold and the Beautiful
9.20 Í fínu formi
9.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.00 Neighbours
12.25 Í fínu formi (Þolfimi)
12.40 Reba (8:22)
13.00 Elton John at the Royal
Opera House
14.05 Rod Stewart á tónleikum
15.00 Ensku mörkin
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.40 Neighbours
18.05 Spin City (20:22)
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.30 Friends 3 (19:25)
20.00 Smallville (11:23) Lex
kemst að því að Lionel er búinn að
koma myndavélum fyrir um allt
setrið og sem svar við því eru ráðn-
ir meistaraþjófar til að blekkja
myndavélarnar. Áætlunin fer hins
vegar út um þúfur.
20.50 American Dreams
21.35 Regeneration Aðalhlutverk:
Jonathan Pryce, James Wilby. 1997.
Bönnuð börnum.
23.10 Twenty Four (13:24)
0.05 Ensku mörkin (.)
1.00 Spin City (20:22)
1.20 Friends 3 (19:25)
1.40 Ísland í dag, íþróttir, veður
2.05 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVí
6.00 Wit
8.00 Zeus & Roxanne
10.00 The Winslow Boy
12.00 Talk of Angels
14.00 Wit
16.00 Zeus & Roxanne
18.00 The Winslow Boy
20.00 Divorcing Jack
22.00 The Talented Mr. Ripley
0.15 Legionnaire
2.00 The General
4.00 The Talented Mr. Ripley
7.00 70 mínútur
16.00 Pikk TV
20.00 Is Harry on the Boat?
21.00 Greece Uncovered (4:8)
22.03 70 mínútur
23.10 X-strím
0.00 Lúkkið
0.30 Meiri músík
18.30 Leap Years (e)
19.30 Malcolm in the middle (e)
20.00 Survivor Amazon Allt iðar
af lífi í frumskóginum við ána mik-
ilfenglegu. Þar lifa stærstu
kyrkislöngur heims sælar í grasinu,
mannætufiskatorfur synda kátar
um djúpin og fuglarnir syngja á
hverjum morgni nýjum degi til
dýrðar. En sá paradísarfriður er
skyndilega rofinn er Adam mætir
og meira að segja Eva líka og há
þar mikla baráttu um milljón dali.
Hvorir skyldu nú sigra; Adamssynir
eða Evudætur? Hvernig taka dýrin
þessari innrás? Verður Jeff Probst
enn á lausu?
21.00 CSI Miami
22.00 Philly
22.50 Mótor
23.20 Jay Leno
0.10 The Practice (e)
1.00 Dagskrárlok Sjá nánar á
www.s1.is
Amerískir
draumar
Amerískir draumar, eða Americ-
an Dreams, er dramatískur
myndaflokkur sem hefur vakið
verðskuldaða athygli. Sagan
gerist á sjöunda áratug 20. aldar
þegar stórfelldar breytingar
verða í bandarísku þjóðfélagi.
Kalda stríðið er í algleymingi,
stórveldin keppast við að senda
mann til tunglsins og rokktón-
listin hefur tekið völdin. En sá
atburður sem breytir mestu er
morðið á Kennedy forseta en
þjóðin lítur svo á að veröldin
verði aldrei söm.
Stöð 2
19.30 Skjár 1 20.00
Survivor
Allt iðar af lífi í frumskóginum
við ána mikilfenglegu. Þar lifa
stærstu kyrkislöngur heims sæl-
ar í grasinu, mannætufiskatorfur
synda kátar um djúpin og fugl-
arnir syngja á hverjum morgni
nýjum degi til dýrðar. En sá
paradísarfriður er skyndilega
rofinn er Adam mætir og meira
að segja Eva líka og há þar
mikla baráttu um milljón dali.
Aðalfundur
Verslunarmannafélags
Suðurnesja
verður haldinn að Vatnsnesvegi 14, Reykjanes-
bæ, þriðjudaginn 29. apríl
kl. 20:00
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórn Verslunarmannafélags Suðurnesja
NBA raunveruleikasjón-
varp:
Stjörnur
körfuboltans
ROBERT HORRY
Leikmaður Los Angeles Lakers, Robert
Horry, hefur gefir tökuliði NBA TV leyfi til
þess að elta sig um hvert fótmál á leik-
tímabilinu.