Fréttablaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 23
TÓNLIST Kólumbíska poppstúlkan Shakira sagði í viðtali við fréttastofu Ananova að Madonna hafi sýnt hug- leysi þegar hún hætti við stríðsádeilu í myndbandinu við lagið „American Life“. Þar sást poppdrottningin m.a. henda handsprengju í kjöltu George W. Bush Bandaríkjaforseta. Madonna gerði myndbandið áður en kom til stríðsátaka í Írak og hætti við eftir að sprengjum byrjaði að rigna yfir Bagdad. Hún gaf þá ástæðu að hún hefði gert þetta af virðingu við bandaríska hermenn í Írak. Shakiru finnst að Madonna hefði átt að halda sínu striki. Það sé eitt af hlutverkum popplistamanna að vera pólitískir á ófriðartímum. Sjálf hefur Shakira nýtt sér tím- ann í sviðsljósinu í það að mótmæla stríðsátökum. Hún lét útbúa mynd- band þar sem hún sýnir strengja- brúður af Saddam Hussein og Bush. Leikurinn á milli þeirri æsist og fer svo úr böndunum. Undir lokin er áhorfandanum gert ljóst að maðurinn með ljáinn stjórnar brúðunum. ■ MÁNUDAGUR 28. apríl 2003 23 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 THE CORE kl. 8 b.i 12 ára SKÓGARLÍF 2 kl. 6 ABRAFAX OG SJÓRÆN. kl. 4 tilb. 400 5.45, 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30 b.i.14.ára THE HOURS b.i. 12 kl. 8 CHICAGO b.i. 12 kl. 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 14 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 12 ára SHANGHAI KNIGHTS Á seinni árum hefur Madonnasett sig meira í uppfræðsluhlut- verkið. Hér áður fyrr var hún aðal- lega í því að reyna að brjóta hluti niður. Nú virðist sem móðurhlut- verkið hafi fært henni nýja lífssýn og í textum reynir hún hvað hún getur að leiðbeina hlustendum sín- um hvernig eigi að forðast vega- tálma lífsins. Þarna svipar henni svolítið til Bjarkar sem hefur ómeð- vitað sett sig í það hlutverk að vera móðir íslensku þjóðarinnar. Eins og í tilfelli Bjarkar fer þetta sterka kvenhlutverk Madonnu henni alveg sérstaklega vel. Fyrsta plata Madonnu sem móður var „Ray of Light“ og er sú plata hennar langbesta frá upphafi. Útsetningar á „American Life“ eru allar mjög einfaldar. Kassagít- arsplokk gefur lögunum persónu- legan tón, einfaldar forritanir á Reason og hljóðfitl á ProTools halda stemningunni svo í poppgírnum. Hljóðfitlið á samt eftir að pirra marga. Við fengum nasaþefinn af því í leiðindalaginu „Die Another Day“ en það gefur þó alls ekki rétta mynd af þessari plötu, einfaldlega út af því að lagasmíðarnar eru í öll- um tilvikum betri. Þrátt fyrir að Madonna minni á Che Guevara á umslaginu er hún ekki í miklum vígahug. Talar mun frekar um tálsýn glæsilífsins og gerist óvenju persónuleg í leit sinni að hamingjunni. Lögin eru frekar ljúf og gríp- andi, undarleg blanda af nýjustu plötu Kylie og blárri tónum Depeche Mode. Þessi fer án efa í hóp betri platna Madonnu. Birgir Örn Steinarsson MADONNA: American Life Umfjölluntónlist Lengi lifi poppdrottningin! Shakira: Segir Madonnu huglausa SHAKIRA Er greinilega byrjuð að gera tilkall til popp- krúnunnar af höfði Madonnu. 28 DAYS LATER b.i. 16 kl. 6 og 8 THE GOOD GIRL b.i. 16 kl. 6 og 10

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.