Fréttablaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 30
FOTBOLTI „Ég er búinn að vera hér
heima í mánuð eftir eitt ár í Lille-
ström,“ segir Logi Ólafsson knatt-
spyrnuþjálfari sem lýsir nú knatt-
spyrnuleikjum á sjónvarpsstöð-
inni Sýn svo eftir er tekið. Logi
veit út á hvað leikurinn gengur og
miðlar þeirri þekkingu sinni til
hinna sem við sjónvarpstækin
sitja.
Í Lilleström þjálfaði Logi knatt-
spyrnulið bæjarins sem hann líkir
við Akranesliðið; búningarnir eins
og hefð fyrir boltanum sem skopp-
ar í takt við hjartslátt bæjarbúa:
„Ég hætti þegar mér fannst ekki
gaman lengur. Ég hef ekki mörg
prinsipp í lífinu en eitt er þó að láta
mér ekki leiðast,“ segir Logi sem í
sjálfu sér er ekki að litast um eftir
nýju þjálfarastarfi hér heima.
Hann ætlar að halda lýsingunum
áfram á Sýn og þá sérstaklega á Ís-
landsmeistaramótinu í sumar. Sýn
ætlar að sýna einn leik í viku og
þær útsendingar verða vel undir-
búnar: „Það er sagt að menn svífi
eins og hrægammar yfir óförum
annarra í þjálfunarstarfinu en ég
er ekki einn af þeim. Ég er með
stöðu sem íþróttakennari við
Menntaskólann í Hamrahlíð og tek
við því starfi aftur í haust. Svo eru
það lýsingarnar í sjónvarpinu sem
ég hlakka til að takast á við,“ segir
hann.
Logi er 48 ára gamall og í sam-
búð með Láru Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Fullbright-stofnun-
arinnar hér á landi: „Úti í Noregi
var maður einn. Það er gott að
koma heim aftur í faðm sinna nán-
ustu,“ segir Logi alsæll með sitt. ■
30 28. apríl 2003 MÁNUDAGUR■ Hrósið
Í haust hefst við Háskóla Íslandsmeistaranám í opinberri stjórn-
sýslu, svokallað MPA-nám (Master
in Public Administration), eftir um-
talsverða endurskipulagningu og
fjölgun námskeiða. Margrét S.
Björnsdóttir, sem ásamt Gunnari
Helga Kristinssyni prófessor stýrði
endurskipulagningu námsins, segir
það skipulagt með hliðsjón af kröf-
um samtaka bandarískra háskóla
sem bjóða nám á sviði opinberrar
stjórnsýslu og stjórnunar. „Við tök-
um einnig mið af evrópskri hefð í
stjórnsýslu, en umfram allt er nám-
ið miðað við íslenskar aðstæður.“
Margrét segir allt annað laga- og
regluumhverfi lúta að opinberri
stjórnsýslu en annarri stjórnun.
„Þarna eru allt aðrir mælikvarðar á
árangur en hjá einkafyrirtækjum
og menn þurfa því að meta alla
stefnumörkun með allt öðrum
hætti. Það er þetta sem verið er
meðal annars að búa fólk undir í
þessu námi.“
Hún segir námið búa fólk undir
starf á mismunandi sviðum. „Fólk
getur sérhæft sig í til að mynda
stjórnun heilbrigðisstofnana eða
mennta- og menningarstofnana eða
sjálfseignarstofnana. Það má líka
benda á það að opinber starfsemi er
í vaxandi mæli viðfangsefni fjöl-
miðla. Þetta er því góður undirbún-
ingur fyrir þá sem þar starfa.“ Hún
bendir einnig á að námið sé vænleg-
ur undirbúningur undir starf hjá al-
þjóðastofnunum.
Inntökuskilyrði námsins eru BS-
eða BA-próf frá háskóla. Margrét
segir að gert sé ráð fyrir að náms-
hópurinn hafi fjölbreyttan bak-
grunn.
Um þriðjungur vinnandi fólks á
Íslandi er opinberir starfsmenn og
rúm 40 prósent landsframleiðslunn-
ar renna í opinbera starfsemi. „Það
er mjög mikilvægt fyrir okkur að
byggja upp vandað nám á Íslandi
sem lýtur að rekstri hins opinbera.“
Nánari upplýsingar um námið er
að finna á heimasíðunni:
stjornsyslustofnun.hi.is. ■
Menntun
■ Háskóli Íslands hefur endurskoðað og
skerpt á námi í opinberri stjórnsýslu.
Námið gerir ráð fyrir fjölbreyttum bak-
grunni og býður upp á margvíslega
möguleika.
Persónan
LOGI ÓLAFSSON
■ knattspyrnuþjálfari hefur snúið heim
frá þjálfarastörfum í Noregi og vakið at-
hygli fyrir knattspyrnulýsingar á Sýn. Lýs-
ingar Loga einkennast af þekkingu, inn-
sæi og kómík sem oftar en ekki er hluti
af hita leiksins.
Meistarar stjórnsýslunnar
Mýrargata – Slippasvæðið
Rammaskipulag – Samráðsskipulag
Val á ráðgjöfum
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti 4. febrúar s.l. að skipa stýrihóp til að vinna að undir-
búningi og stýra gerð rammaskipulags fyrir Mýrargötu-Slippasvæðið. Rammaskipulaginu
er ætlað að marka megin línur fyrir gerð deiliskipulags á svæðinu. Borgaryfirvöld leggja
áherslu á að við gerð rammaskipulagsins verði farnar nýjar leiðir við mótun skipulags, með
nánu samráði við íbúa, rekstraraðila og aðra hagsmunaðila.
Skipulagssvæðið markast af Ánanaustum og Grandagarði í vestri, Ægisgarði til norðurs,
Verbúðarbryggjum og Hafnarbúðum að austan og að sunnanverðu um Mýrargötu, Ægis-
götu, lóðamörk milli Nýlendugötu og Vesturgötu, Seljaveg og Vesturgötu að Ánanaustum.
Sóst er eftir ráðgjöfum og sérfræðingum með víðtæka þekkingu og reynslu af
skipulagsgerð, þ.á.m. skipulagi umferðar og hafna. Auk þess er óskað eftir þekkingu á
kostnaðarmati og góðum samskiptahæfileikum. Ráðgjafar og sérfræðingar eru hvattir til að
mynda samstarfshópa, undir forystu aðalráðgjafa, fyrir forvalið og verður þá tekin afstaða
til hópsins í heild. Valdir verða 2-4 ráðgjafahópar til að vinna tillögu að nálgun á verkefninu
ásamt frumdrögum að skipulagi. Á grundvelli mats á tillögum ráðgjafahópanna verður
síðan valinn einn hópur til að vinna sjálft rammaskipulagið.
Skila skal inn umsóknum á skrifstofu skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en kl. 16.00
þann 15. maí 2003, í umslagi merkt „Skipulag Mýrargötu- Slippasvæðis-forval”
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag forvalsins og verkefnið er að finna í verkefnis-
lýsingu sem fæst afhent í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni
3 og á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurhöfn
Umhverfis- og tæknisvið
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
MARGRÉT S. BJÖRNSDÓTTIR
Hún hefur ásamt Gunnari Helga Kristins-
syni staðið fyrir endurskipulagningu meist-
aranáms í stjórnsýslufræðum.
Svífur ekki eins og
hrægammur...
KOLBRÚN KJARVAL
Hefur opnað gluggasýningu á litlum myndum eftir Louisu Matthíasdóttur í Gallerí KSK við
Skólavörðustíg. Hún er með um tíu myndir eftir listakonuuna til sölu um þessar mundir
og gerir ráð fyrir að fleiri bætist við bráðlega. Kolbrún hefur verið með galleríið á Skóla-
vörðustígnum í eitt og hálft ár. Þar er hún einnig með leirvinnustofu og selur eingöngu
leirverk eftir sjálfa sig en málverkin sem hún hefur á boðstólum eru eftir Louisu og dóttur
hennar, Temmu Bel.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LOGI ÓLAFSSON
Hefur ekki margar reglur í lífinu en vill ekki láta sér leiðast - og þá sérstaklega ekki
í Noregi.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Opinberun Hannesar.
Tariq Aziz.
Sinéad O’Connor.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Sjálfstæð-
isflokkurinn er enn með meirihluta í útvarps-
ráði.
Fær ríkislögreglustjóri fyrirglæsileg og fjölskylduvæn há-
tíðahöld í tilefni afmælis hinnar
einkennisklæddu lögreglu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T