Fréttablaðið - 28.04.2003, Page 2
OPIÐ HÚS Lögregludagurinn var
haldinn hátíðlegur á laugardaginn í
tilefni af því að lögreglan á Íslandi
hefur verið einkennisklædd í 200 ár.
Opið hús var í lögreglustöðvum
víða um land og fjöldi manns kíkti
meðal annars við á lögreglustöð-
inni við Hverfisgötu, á Sögusýn-
ingu lögreglunnar og í Lögreglu-
skóla ríkisins.
Á Hverfisgötunni fengu börnin
m.a. að tylla sér á lögreglumótor-
hjól, vopn sem hald hafði verið
lagt á voru til sýnis og fólki gafst
kostur á að lítast um í fanga-
geymslum. Lögreglan telur að eitt-
hvað á bilinu þrjú til fjögur þúsund
manns hafi lagt leið sína í lög-
reglustöðina. ■
2 28. apríl 2003 MÁNUDAGUR
„Allir hæfileikar fólks skipta máli.“
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, þótti sýna umtalsvert meiri sönghæfi-
leika í Laugardagskvöldi Gísla Marteins Baldurs-
sonar en Halldór Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins. Þeir voru þó á svipuðum slóðum
í lagavali sínu: Halldór söng „Dagnýju“ sem frægt
er orðið og Guðjón tók „Fyrir sunnan Fríkirkjuna“.
Spurningdagsins
Guðjón, skipta sönghæfileikar fram-
bjóðenda máli?
■ Lögreglufréttir
Hraðakstur eykst:
Vorfiðringur
í ökuþórum
HRAÐAKSTUR Lögreglan í Hafnar-
firði gerði nokkuð af því að stöðva
menn um helgina og hefur hert
eftirlitið í samræmi við þá stað-
reynd að menn gefa aðeins í þegar
sól hækkar á lofti og sumardekkin
eru komin undir bílana. Hjá lög-
reglunni í Kópavogi könnuðust
menn ekki við að hraðakstur væri
að verða áberandi. Svipaða sögu
er að segja frá Akureyri, Blöndu-
ósi, Sauðárkróki og Selfossi þar
sem lögreglan hefur orðið vör við
vorfiðring hjá ökumönnum en
merkir þó ekki neina stóraukn-
ingu.
Lögreglan í Borgarnesi segir
hraðaksturinn vera svipaðan og
venjulega og merkir ekki mikla
aukningu enn sem komið er enda
hafi menn ekið býsna greitt síð-
ustu mánuði. ■
Sala íslenskra
aðalverktaka:
Rætt við
starfsmenn
EINKAVÆÐING Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu hefur ákveðið að
ganga til viðræðna við AV ehf. um
kaup á hlut ríkisins í Íslenskum að-
alverktökum. AV er eignarhaldsfé-
lag starfsmanna og stjórnenda fyr-
irtækisins. Ákvörðunin er í sam-
ræmi við mat Verðbréfastofunnar á
tilboðum sem bárust í hlut ríkisins.
Aðrir þeir sem buðu í hlut ríkis-
ins voru Jarðboranir, JB bygginag-
arfélag og Trésmiðja Snorra Hjalta-
sonar. Þá bauð einnig Joco, eignar-
haldsfélag Jóns Ólafssonar, í hlut-
inn, en Jón er fyrir einn stærsti eig-
andi fyrirtækisins. ■
Skjálftahrina úti af
Reykjanesi:
Sá stærsti
var 4,2
JARÐSKJÁLFTAR Jarðskjálftahrina
varð úti af Reykjanesi í gærmorg-
un og urðu skjálftarnir sterkastir
skömmu fyrir klukkan sex um
morguninn. Mældist stærsti
skjálftinn þá 4,2 á Richter og
margir voru rúmlega 3 stig.
Skjálftarnir áttu upptök sín um 40
kílómetra suðvestur af Reykja-
nesi, tvo til þrjá kílómetra vestur
af Geirfugladrangi.
Jarðskjálftahrinur eru þekktar
á þessum slóðum og segir Ragnar
Stefánsson jarðskjálftafræðingur
ekkert benda til þess að um eldgos
sé að ræða. Líklegast sé að skjálft-
arnir tengist kvikuinnskoti á 5 til
10 km dýpi á Reykjaneshryggnum.
Ragnar bendir jafnframt á að fyrir
20 árum hafi áþekk hrina mælst á
sömu slóðum. ■
VEGGMYND Í BAGDAD
Dagblöðin Toronto Star og Sunday Tele-
graph segjast hafa undir höndum skjöl
sem gefi til kynna að stjórn Saddams
Hussein hafi reynt að koma á fót sam-
bandi við al Kaída.
Írakar og al Kaída:
Sameinaðir
í hatri
ÍRAK Tvö dagblöð báru af því
fregnir að þau hefðu fundið skjöl í
rústum höfuðstöðva írösku leyni-
þjónustunnar sem sýndu fram á
að stjórn Saddams Hussein hefði
átt fund við liðsmenn hryðju-
verkasamtakanna al Kaída árið
1998.
Skjölin sem blaðamenn
Toronto Star og breska blaðsins
Sunday Telegraph fundu virðast
gefa til kynna að markmiðið með
fundinum hafi verið að koma á
sambandi á milli íraskra yfirvalda
og al Kaída á grundvelli haturs
beggja aðila í garð Bandaríkjanna
og Sádi-Arabíu. Meðal annars var
gerð áætlun um heimsókn Osama
bin Laden til Bagdad en ekki kem-
ur fram hvort af henni varð. ■
ELDUR Í HÚSI BJÖRGUNARFÉLAGS
ÁRBORGAR Eldur kom upp í húsi
Björgunarfélags Árborgar um
klukkan hálf sex á sunnudags-
morgun. Talið er að kveikt hafi
verið í netadræsu sem lá upp við
húsið en eldurinn barst inn í hús-
ið og í einnota umbúðir sem þar
voru fyrir. Slökkvistarf gekk vel
og fyrir utan reykskemmdir varð
tjón af völdum brunans lítið.
Lögregludagurinn:
Gestagangur hjá löggunni
FARALDUR „Við erum vakandi og
fylgjumst mjög vel með gangi
lungnabólgunnar í heiminum,“
segir Haraldur Briem, smitsjúk-
dómafræðingur hjá Landlæknis-
embættinu.
Hann segir áætlun tilbúna um
hvað skuli til bragðs taka ef ein-
hver greinist hér. „Við höfum sent
áætlun um viðbrögð til allra
heilsugæslustöðva á landinu og á
Keflavíkurflugvelli erum við til-
búin með áætlun
um viðbrögð ef ein-
hver kemur veikur
til landsins,“ segir
Haraldur.
Fréttir frá Hong
Kong herma að frá
því fyrstu tölur
birtust um smit
hafi færri greinst
síðustu tvo sóla-
hringa. Það vekur
vonir um að útbreiðslu veikinnar
sé eitthvað í rénun þar.
Haraldur Briem segir áætlan-
ir ekki fela í sér að flugvélar
verði kyrrsettar ef upp komi
staðfestur grunur um smit í flug-
vél á leið til landsins. „Við fáum
nafnalista yfir þá sem eru í
vélunum. Við fylgjumst vel með
og höfum samband við fólk ef
grunsemdir eru um smit,“ segir
Haraldur Briem.
Eiður Guðnason, sendiherra í
Peking, segir að borgin sé ekki
söm. Mjög margir gangi með
grisjur fyrir vitum og mun færri
séu á ferli. „Skólum og leikskólum
hefur verið lokað og fólk forðast
að fara á staði þar sem er marg-
menni. Það er sjálfgert því öllum
kvikmyndahúsum og leikhúsum
hefur verið lokað,“ segir Eiður.
Hann kveðst ekki verða var
við ótta meðal manna. Fólk reyni
að fara eftir leiðbeiningum og
foreldrar séu í mörgum tilvikum
heima hjá börnum sínum.
Eiður segir lungnabólguna
hafa geysileg áhrif á ferða-
mannastraum til landsins og Kín-
verja ekki sjá fyrir endann á
þeim áhrifum enn. „Þegar ég
kom til Peking úr páskafríi voru
örfáir farþegar í vélinni til
landsins en í venjulegu árferði
hefði verið biðlisti. Það er alveg
ljóst að fleiri fara úr landi en
koma inn í landið. Öllum ráð-
stefnum og fundum hefur verið
aflýst.”
Eiður segist ekki hafa heyrt
að íslenskir námsmenn hafi snú-
ið heim enda séu þeir ekki mjög
margir í Kína.
bergljot@frettabladid.is
Andúð á Bandaríkjunum heftir uppbyggingarstarf:
Eldfimt ástand í Bagdad
ÍRAK, AP Fulltrúar bandarískra yf-
irvalda funda að nýju með írösk-
um stjórnmálaleiðtogum í dag.
Bandaríkjamönnum hefur hingað
til gengið erfiðlega að fá íraska
stjórnmálamenn til samstarfs og
er óvíst hversu margir muni
mæta til fundarins. Stjórnarand-
stöðuleiðtoginn Ahmad Chalabi
hefur verið boðaður á fundinn en
hann er sagður njóta stuðnings
bandarískra yfirvalda í embætti
forsætisráðherra í fyrirhugaðri
bráðabirgðarstjórn Íraks.
Umsjónarmenn uppbyggingar-
starfsins leggja nú ofuráherslu á
það að vatns- og rafmagnsveitum
í Bagdad verði komið í gagnið og
sorphreinsun hefjist að nýju. Öll
almenn þjónusta hefur legið niðri
svo vikum skiptir og hefur það
lagst afar illa í borgarbúa.
Reiði og andúð á Bandaríkjun-
um blossaði upp eftir að vopna-
geymsla í umsjá bandaríska hers-
ins í íbúðarhverfi í Bagdad sprakk
í loft upp. Að minnsta kosti sex
létu lífið í sprengingunum og mik-
ill fjöldi heimila varð fyrir
skemmdum. Bandaríkjamenn
segja að hópur Íraka hafi ráðist á
hermenn sem gættu vopnanna og
skotið blysum inni í geymsluna.
Margir íbúar Bagdad voru engu
að síður sannfærðir um að Banda-
ríkjamenn bæru ábyrgð á atvik-
inu og var skotið að bandarískum
hermönnum þegar þeir reyndu að
aðstoða særða. ■
LÖGREGLUDAGURINN
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra hóf
daginn með ávarpi við húsakynni ríkislög-
reglustjóra klukkan 11 og í framhaldinu
voru sérsveit ríkislögreglustjóra og Land-
helgisgæsla Íslands með sýningu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Á BORGARSPÍTALANUM ERU MENN MEÐ ALLT TILBÚIÐ
Svona lítur hjúkrunarfólk á deild A-7 á Borgarspítalanum út sem kemur til með að hjúkra
sjúklingum með HABL ef það greinist hérlendis.
■
“Þegar ég kom
til Peking úr
páskafríi voru
örfáir farþegar
í vélinni til
landsins en í
venjulegu ár-
ferði hefði verið
biðlisti.”
EINN EFTIR
Munthir Safir gengur örvilnaður um í rúst-
um heimilis síns í Bagdad. Safir missti fjöl-
skyldu sína þegar bandarísk vopnageymsla
skammt frá heimili hans sprakk í loft upp
á laugardaginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Landlæknir í
viðbragðsstöðu
Haraldur Briem segir menn vera vakandi og áætlanir um aðgerðir til-
búnar um allt land. Mannlífið í Kína er dauft og þar ganga velflestir
með grisju, að sögn Eiðs Guðnasonar sendiherra.