Fréttablaðið - 28.04.2003, Síða 4
SKÁK „Þetta leggst ágætlega í mig
og er spennandi starf. Ég var
reyndar nokkuð viss um að tillög-
unni yrði hafnað. Þarna er djúp-
stæður klofningur en ég vildi fá
skýrar línur um hvort menn teldu
málið nógu þroskað til afgreiðslu,“
segir nýkjörinn forseti Skáksam-
bands Íslands, Stefán Baldursson.
Aðalfundur SÍ var haldinn um
helgina og ljóst að um átakafund
yrði að ræða þó hann færi rólega
af stað. Spenna var þó í lofti en
flestir horfðu til tillögu sem fyrir
fundinum lá þess efnis að koma
bæri á kvóta á erlenda skákmenn,
að þeir væru aldrei fleiri en ís-
lenskir skákmenn í hverju liði á Ís-
landsmóti. Tillagan var augljós-
lega sett fram til höfuðs Hróknum,
núverandi Íslandsmeistara skák-
félaga, sem hefur teflt fram öfl-
ugri útlendingahersveit á
Íslandsmótum undanfarin ár með
mjög góðum árangri.
Stefán, hinn nýi forseti, lagði
fram tillögu þess efnis að fresta
ákvarðanatöku um kvótasetningu,
skipa nefnd til að ræða hugmynd-
ina betur og boða svo til fram-
haldsaðalfundar og afgreiða málið
þar. Helgi Ólafsson stórmeistari,
sem stóð að tillögunni ásamt sjö
öðrum, studdi hinn nýja formann
og sagði að rétt væri að Stefán
fengi hveitibrauðsdaga í starfi og
vert væri að hann fengi svigrúm
til að vinna að málinu. Ekki væri
snjall leikur að opinbera strax hví-
líka ormagryfju hann væri kominn
í. Hrannar B. Arnarsson, fráfar-
andi forseti, benti á hina miklu
skákvakningu sem verið hafi und-
anfarin ár, og þar væri Íslandsmót-
ið djásnið í krúnu skáklífsins.
Hann stæði því gegn breytingum.
Hrafn Jökulsson, formaður Hróks-
ins, sagði með ólíkindum ef fund-
armenn ætluðu að bjóða nýjan for-
seta velkominn með því að forsmá
hans fyrstu tillögu. Hrafn tók
skýrt fram að með þessu væri ekki
verið að taka afstöðu til kvótasetn-
ingarinnar sem slíkrar, en allt kom
fyrir ekki. Svo mikið var mönnum
í mun að koma því máli í höfn að
tillaga Stefáns var felld með 21 at-
kvæði gegn 19. Kvaddi Hrafn sér
þá hljóðs á nýjan leik og sagði það
ljóst að menn væru ekki saman
komnir til að ræða málin á vitræn-
um grunni. Gengu Hróksmenn við
svo búið af fundi. Tillaga um
kvótasetningu erlendra skák-
manna var síðar samþykkt með
meirihluta eða 27 gegn 7 atkvæð-
um.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er nú til umræðu innan
Hróksins að ganga beri úr Skák-
sambandi Íslands.
jakob@frettabladid.is
4 28. apríl 2003 MÁNUDAGUR
■ Evrópa
Óttastu bráðalungnabólgu?
Spurning dagsins í dag:
Ferðu reglulega í sund?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
43%
57%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Nýr menntaskóli í Hafnarfirði:
Útskrifar stúdenta á tveimur árum
MENNTUN Áætlað er að nýr einkarek-
inn menntaskóli taki til starfa í
Hafnarfirði í haust. Stefnt er að því
að skólinn útskrifi stúdenta á tveim-
ur árum og verður hann til húsa í
endurbyggðu húsnæði gamla Iðn-
skólans við Reykjavíkurveg. Byggð
verður ný hæð ofan á gamla húsið
og er áætlað að því verki verði lok-
ið fyrir haustið.
Ólafur Haukur Johnson er skóla-
stjóri nýja skólans, sem hlotið hefur
nafnið Menntaskólinn Hraðbraut.
Hann segist hafa langa reynslu af
rekstri Sumarskólans og Hraðlestr-
arskólann, sem reynst hafi afskap-
lega vel. „Við stefnum að því að taka
inn fyrstu nemendurna í haust og
verður skólagjaldið 190.000 krónur
fyrir árið. Menntamálaráðuneytið
mun greiða með hverjum nemanda
upphæð sem nemur lægsta kostnaði
við hvern nemanda í framhaldsskól-
um landsins,“ segir Ólafur Haukur.
Áætlað er að skólinn þjóni góð-
um námsmönnum sem treysta sér
til að ljúka námi á tveimur árum.
Ólafur segir að oft sé hugsað um þá
sem illa gangi að læra en þeir vilji
stundum gleymast sem vel standi
sig. Skólanum sé ætlað að þjóna
þeim nemendum.
Eigandi skólans er einkahlutafé-
lagið Hraðbraut ehf. sem er í eigu
Nýsis hf., Verslunarmannafélags
Reykjavíkur og Gagns ehf.
Skólaárið í Menntaskólanum
Hraðbraut verður frá ágúst fram í
endaðan júní. Kennt er þrjá daga í
viku og tvo daga er ætlast til að
nemendur mæti í skólann og vinni
verkefni með aðstoð kennara. Ólaf-
ur segir að reiknað sé með að 180-
200 nemendur verði alla jafna í
skólanum og um það bil 100 nýnem-
ar hefji nám á hverju hausti. ■
Skipverjar fremja
voðaverk:
Farþegar
barðir til ólífis
SÓMALÍA, AP Að minnsta kosti 27
manns létust af völdum barsmíða
áhafnarmeðlima á tveimur segl-
skipum á leið yfir Aden-flóa við
austurströnd Afríku.
Bátarnir, sem voru með 216
sómalska og eþíópíska farþega um
borð, lentu í ofsaveðri á leið frá
Sómalíu til Jemen. Þegar vatn
streymdi inn fylltust farþegar
skelfingu og neituðu að halda kyrru
fyrir í farrýminu. Áhafnarmeðlimir
reyndu að hafa hemil á fólkinu með
því að berja það með prikum og
járnstöngum. Auk þeirra 27 sem lét-
ust hlutu 20 alvarlega áverka.
DONALD RUMSFELD
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir
að Írakar muni fá að skipa ríkisstjórn á eig-
in forsendum en útilokar það þó algerlega
að komið verði á fót klerkastjórn að hætti
Írana.
Rumsfeld vill koma á
lýðræði í Írak:
Klerkastjórn
kemur ekki
til greina
WASHINGTON, AP Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, segir það ekki koma til
greina að klerkastjórn að hætti
Írana verði komið á fót í Írak.
Hann hafnar jafnframt alfarið af-
skiptum Sýrlendinga og annarra
nágrannaþjóða af málefnum
landsins.
Að sögn Rumsfeld verður tekið
tillit til viðhorfs heimamanna í
garð Bandaríkjanna í niðurröðun
hersveita á svæðinu. Hann ítrekar
að bandarískir hermenn verði
ekki staðsettir á svæðum þar sem
yfirvöld og almenningur séu þeim
andsnúin. „Við viljum ekki vera á
stöðum þar sem nærveru okkar er
ekki óskað.“
Rumsfeld segir það grundvall-
aratriði að lýðræðislega kjörin
ríkisstjórn komist til valda í land-
inu. Þó að hann útiloki klerkaveldi
segir hann ekkert því til fyrir-
stöðu að bókstafstrúarmenn taki
þátt í yfirstjórn landsins. ■
Landssíminn:
Skylt að lækka
um 15%
FJARSKIPTI Landssíma Íslands hefur
verið gert að lækka heildsöluverð
inn á farsímanet sitt um 15% að
meðaltali frá og með 1. júní.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur
tekið þessa ákvörðun. Samkvæmt
henni er Landssímanum gert að
lækka heildsöluverðið úr 11 krón-
um á dagtaxta og 10 krónum á næt-
urtaxta í eitt verð, 8,92 krónur.
Heildsöluverð inn á farsímanet
er það verð sem fjarskiptafyrirtæki
greiða til að viðskiptavinir þeirra
geti hringt í notendur annarra far-
símakerfa. Ákvörðun Póst- og fjar-
skiptastofnunarinnar um lækkun á
að gefa fjarskiptafyrirtækjum svig-
rúm til þess að lækka verð til neyt-
enda á símaþjónustu sem tengist
farsímakerfi Landssímans.
Sambærilegt heildsöluverð hjá
Og Vodafone, áður Íslandssíma og
Tali, er 13,50 krónur, sem er nokkuð
hærra en hjá Landssímanum. Póst-
og fjarskiptastofnun hyggst nú
kanna markaðsstöðu Og Vodafone.
Ef fyrirtækið reynist hafa umtals-
verða markaðshlutdeild í skilningi
fjarskiptalaganna verður því lík-
lega gert að lækka heildsöluverð
sitt líkt og Landssímanum hefur nú
verið gert að gera. ■
GANGBRAUTARSKILTI
Á Íslandi hefur gangbrautarskiltinu þegar
verið breytt í þágu jafnréttis.
Nýtt gangbrautarskilti:
Bogart fari á
eftirlaun
NOREGUR, AP Jafnréttisfulltrúi í
Noregi telur að gangbrautarskilti
landsins brjóti í bága við jafnrétt-
ishugmyndir og því sé nauðsyn-
legt að gera á því viðeigandi
breytingar. Á skiltinu er mynd af
manni með hatt og vill Kristin
Mile að honum verði skipt út fyr-
ir mynd sem er ekki jafn kyn-
bundin.
Mile segir að þetta mál hafi
táknræna þýðingu. Bendir hún á
að í ýmsum Evrópulöndum hafi
nú þegar verið gerðar tilhlýðileg-
ar breytingar á skiltinu. „Það er
kominn tími til að hinn norski
Humprey Bogart fari á eftir-
laun,“ er haft eftir Mile í dagblað-
inu Verdens Gang.
Þegar hefur verið hrint af stað
óformlegri samkeppni um hönn-
un nýs skiltis en endanleg ákvörð-
un um breytingar er í höndum
samgöngumálaráðherra. ■
FRIÐARGÆSLULIÐI FINNST LÁT-
INN Bandarískur friðargæsluliði
í Kosovo fannst látinn skammt
frá bænum Dobercane. Dánaror-
sök hefur ekki verið gerð opin-
ber. Um 3.000 bandarískir her-
menn sinna friðargæslu í Kosovo.
SPRENGJA ÚR SÍÐARI HEIMS-
STYRJÖLD Um 9.000 manns voru
látnir yfirgefa heimili sín í borg-
inni Lens í Frakklandi á meðan
sérfræðingar unnu að því að gera
breska sprengju úr síðari heims-
styrjöldinni óvirka. Sprengjan
fannst þegar hefja átti bygging-
arframkvæmdir skammt frá fót-
boltaleikvangi í borginni.
ÁTÖK Í TSJETSJENÍU Sex rússnesk-
ir her- og lögreglumenn létu lífið
og sex aðrir særðust í árásum við
uppreisnarmenn í Tsjetsjeníu um
helgina. Tveir hermenn fórust
þegar bifreið þeirra ók yfir jarð-
sprengju og einn lést í ítrekuðum
árásum uppreisnarmanna á eftir-
litsstöðvar rússneska hersins.
Þrír sérsveitarmenn lögreglunn-
ar og einn uppreisnarmaður létu
lífið í átökum.
Íslandsmeistararnir
gengu af fundi
Aðalfundur Skáksambands Íslands reyndist sögulegur. Þegar tillaga
nýs forseta sambandsins, þess efnis að fresta bæri afgreiðslu mesta hita-
málsins, var felld naumlega gengu Hróksmenn fylktu liði út.
Stóra málverkafölsunarmálið:
Sakborningur greiði
sinn flugmiða sjálfur
DÓMSMÁL „Þetta er um hálf milljón,
reikningar fyrir flugmiðum og
dagpeningum, sem ég hef lagt
fram til embættis saksóknara. Þeir
svara mér engu,“ segir Jónas
Freydal Þorsteinsson.
Réttarhöld í Stóra málverka-
fölsunarmálinu hefjast á nýjan
leik í dag eftir páskafrí með ferð á
Kjarvalsstaði. Jónas Freydal, ann-
ar sakborninga, verður fjarri góðu
gamni því Jón H. Snorrason sak-
sóknari hefur enn ekki svarað er-
indi hans þess efnis að greiddir
verði flugmiðar Jónasar, sem bú-
settur er í Kanada. Jón H. lét þess
svo getið að embættið greiddi
Jónasi ekki dagpeninga en Jónas
telur að lögum samkvæmt eigi
hann rétt á þeim. „Þeir eiga að
svara mér. Ég kaupi bara minn
flugmiða sjálfur, lendi á þriðju-
dagsmorgun og fer þá beint í rétt-
inn.“
Jónas var kokhraustur í samtali
við Fréttablaðið og sagðist vera
með greinargerð sem myndi leiða
til þess að málið tæki nýja stefnu.
„Ég er með yfirlýsingu frá fram-
leiðanda í Danmörku þar sem fram
kemur að alkyd hafi verið í máln-
ingu sem gerð var til skreyti- og
skiltamálningar og var markaðsett
árið 1930. Vitni saksóknara, Viktor
Smári Sæmundsson og Sigurður
Jakobsson, byggja allt sitt á því að
alkyd hafi ekki verið komið fram
fyrr en miklu síðar og því gætu
listamennirnir ekki hafa notað
málningu sem inniheldur alkyd.“ ■
JÓNAS FREYDAL
Missir af degi í réttarhöldunum sökum
ágreinings um hverjum beri að greiða flug-
miða fyrir hann til Íslands.
STEFÁN BALDURSSON
Bjóst allt eins við að umbjóðendurnir höfnuðu hans fyrstu tillögu sem nýkjörins forseta
Skáksambandsins.
NÝR SKÓLI ÞJÓNAR GÓÐUM
NEMENDUM
„Þeir vilja stundum gleymast,“ segir vænt-
anlegur skólastjóri, Ólafur Haukur Johnson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T