Fréttablaðið - 06.05.2003, Síða 2
2 6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Því fer svo víðs fjarri. Það standa á
okkur öll spjót því stjórnarflokk-
arnir eru eldri en tvævetur og sjá
hvar meginhættan liggur. Við eig-
um eftir að koma út úr þessu eins
og þrumufleygur.
Össur Skarphéðinsson er formaður Samfylkingar-
innar, sem hefur misst fylgi í skoðanakönnunum
jafnt og þétt síðustu daga.
Spurningdagsins
Össur, er þetta ekki að verða alveg
vonlaust?
■ Innlent
HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra hefur fallist á
að forstjórar Tryggingastofnunar
ríkisins og Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss geri samning um að
hefja nýrnaígræðslur og stofn-
frumumeðferð við Landspítalann.
Um er að ræða tilraunsamning til
nokkurra ára sem felur í sér
nýrnaígræðslu frá lifandi gjöfum
annars vegar og stofnfrumumeð-
ferð við tilteknum krabbameinum.
Forsvarsmenn spítalans og
Tryggingastofnunar hafa á undan-
förnum mánuðum athugað gaum-
gæfilega möguleika á að flytja að-
gerðir af þessu tagi heim frá út-
löndum. Niðurstaða athugananna
er að faglegar og fjárhagslegar
forsendur séu fyrir því að taka upp
þessar nýjungar við spítalann og
gætu fyrstu aðgerðir orðið síðla
árs.
Tryggingastofnun ríkisins hef-
ur árlega greitt fyrir þrjá til fimm
einstaklinga sem hafa fengið nýru
úr lifandi gjöfum og hefur verið í
gildi samningur við Dani um að-
gerðirnar. Hvað stofnfrumumeð-
ferð áhrærir hefur fram til þessa
aðallega verið leitað til Svía og er
líklegt að fimm til sjö einstakling-
ar njóti þjónustunnar hér á ári
hverju.
Ekki er búist við að kostnaður
ríkisins aukist með samningnum. ■
Stríðsföngum sleppt:
Heim eftir
fimmtán ár
ÍRAK, AP Um 60 Írakar sneru heim
eftir að hafa verið í haldi í Íran
síðan stríðinu á milli ríkjanna
tveggja lauk fyrir 15 árum síðan.
Hópurinn flaug með vél Alþjóða
Rauða krossins frá Teheran til
Bagdad ásamt lækni og hjúkrun-
arfræðingi.
Föngunum var sleppt í kjölfar
samingaviðræðna milli íranskra
yfirvalda og Alþjóða Rauða kross-
ins. Rætt var einslega við hvern
fyrir sig til þess að ganga úr
skugga um að fólkið kysi sjálft að
snúa heim. Starfsmenn Rauða
krossins vinna nú í því að koma
fólkinu í samband við fjölskyldur
sínar að nýju. ■
WASHINGTON Flest bendir til þess
að framleiðendum og sölumönn-
um skotvopna hafi tekist að sann-
færa George W. Bush forseta og
bandaríska þingið um að veita
þeim lagalega vernd gegn lög-
sóknum. Ýmis samtök sem berj-
ast fyrir málstað vopnaeigenda
hafa beitt ráðamenn miklum
þrýstingi í málinu, að sögn dag-
blaðsins The Washington Post.
Nýtt lagafrumvarp þess efnis
að fyrirtækjum sem framleiða
eða selja byssur verði veitt und-
anþága frá málsóknum var sam-
þykkt með miklum meirihluta at-
kvæða í bandaríska þinginu. Ef
frumvarpið verður að lögum
munu fórnarlömb byssumanna
ekki geta höfðað einkamál á hend-
ur þeim fyrirtækjum sem eiga
hlut að máli. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur lýst því yfir að hann
muni samþykkja frumvarpið ef
það hlýtur stuðning öldungadeild-
arinnar. Andstæðingar vinna því
að því hörðum höndum að fá öld-
ungadeildarþingmenn á sitt band.
Forsvarsmenn NRA, Lands-
samtaka skotvopnaeigenda í
Bandaríkjunum, fagna lagafrum-
varpinu. Telja þeir að það muni
koma í veg fyrir að fyrirtæki verði
gjaldþrota af þeirri ástæðu einni
að vopn frá þeim hafi verið notuð í
óheiðarlegum tilgangi. Andstæð-
ingar frumvarpsins benda aftur á
móti á að það muni leiða til þess að
vopnafyrirtæki sem fari gáleysis-
lega með varning sinn sleppi við
tilhlýðilega refsingu.
Vopnaframleiðendur og dreif-
ingaraðilar eiga nú yfir höfði sér
fjölda lögsókna frá fórnarlömbum
byssumanna, sem gætu haft í för
með sér hundraða milljóna
dollara tap vegna bótagreiðslna
og lögfræðikostnaðar. Þar sem
frumvarpið er afturvirkt er útlit
fyrir að öll þessi mál verði látin
niður falla. Það þýðir meðal ann-
ars að fórnarlömb leyniskyttanna
frá Washington geta ekki leitað
réttar síns.
Bandarískir þingmenn halda
því fram að þann óvænta stuðning
sem frumvarpið hefur hlotið megi
rekja til aukins pólitísks áhrifa-
valds samtaka á borð við NRA.
Margir þeirra sem studdu frum-
varpið segjast hafa greitt því at-
kvæði af ótta við að skapa sér
óvild vopnasamtaka og tapa þar
með endurkjöri. Þingmenn
demókrata hafa ítrekað komist að
raun um að mun erfiðara er að ná
kjöri, einkum í dreifbýli, ef þeir
styðja ekki málstað vopnaeig-
enda. ■
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Fylgi Samfylkingar mælist undir kjörfylgi í
fyrsta skipti frá því síðasta haust.
Könnun Gallup:
Samfylking
undir
kjörfylgi
STJÓRNMÁL Samfylkingin heldur
áfram að tapa fylgi samkvæmt
skoðanakönnun Gallup sem birt
var í Sjónvarpinu í gærkvöldi.
Samkvæmt henni mælist fylgi
flokksins nú lægra en það var í
kosningunum fyrir fjórum árum.
Stjórnarflokkarnir halda
meirihluta sínum á þingi ef niður-
stöður könnunarinnar ganga eftir
í kosningunum á laugardag.
Framsókn nýtur stuðnings 16,4%
kjósenda og Sjálfstæðisflokkur
37,1%. Samfylking fengi 26,1%
samkvæmt könnuninni, Vinstri
grænir 9,8% og Frjálslyndi flokk-
urinn 9,3%. Nýtt afl fengi 1,1% og
T-listi óháðra í Suðurkjördæmi
0,3% á landsvísu. ■
Óvenjumörg fíkniefnmál:
Fíkniefni
fundust við
húsleit
LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru
handteknir í Reykjavík eftir að
fíkniefni fundust á þeim. Hafði
lögreglan stöðvað þá þar sem
þeir óku um á laugardags-
morgun. Þá fannst enn meira í
bílnum eftir að hundur var feng-
inn til aðstoðar. Í framhaldi af
þessu var farið í húsleit hjá
mönnunum og þar fannst tölu-
vert af fíkniefnum.
Óvenjumörg fíkniefnamál
komu upp um síðustu helgi, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í Reykjavík. Flest voru þau
tengd vörslu og neyslu. Um mið-
nætti á laugardag veittu lög-
reglumenn athygli ungum öku-
manni sem þeir grunuðu um að
vera með fíkniefni. Við leit á
manninum fundust fíkniefni. Þá
var fengin heimild til að leita
heima hjá honum og fannst þar
töluvert af fíkniefnum og einnig
umtalsvert af peningum. Málið
er í rannsókn. ■
Undanþága frá lögsókn:
Stæðist ekki
íslensk lög
LAGAFRUMVARP Sigurður Líndal
lagaprófessor er undrandi yfir
bandaríska lagafrumvarpinu sem
kveður á um friðhelgi vopnafyrir-
tækja. Hann getur ekki ímyndað
sér að frumvarp af þessu tagi yrði
lagt fram hér á landi. „Að undan-
þiggja menn bótaskyldu frá sak-
næmum eða ólögmætum verknaði
væri þvert á grundvallarreglu
okkar laga. Ég sé það ekki fyrir
mér að þetta fengi staðist lög hér á
Íslandi. Þetta væri auk þess alveg
út úr kortinu samkvæmt allri heil-
brigðri skynsemi. Þeir sem aðhyll-
ast pósítívisma í lögfræði myndu
kannski segja að ekkert væri
þessu til fyrirstöðu en ég held að
sú hugmynd sé sem betur fer held-
ur á undanhaldi.“
Sigurður viðurkennir þó að
bandarískt réttarkerfi sé talsvert
ólíkt hinu íslenska. „Það er margt í
löggerð Bandaríkjanna sem ég
skil ekki en ég á mjög erfitt með
að sjá þetta gerast í Evrópuríki.“ ■
MENNTAMÁL Íslensku menntasam-
tökin íhuga að fara í mál við Hafn-
arfjarðarbæ vegna riftunar á
samningi um rekstur leikskólans
Tjarnaráss, að sögn Oddnýjar
Mjallar Arnardóttur, lögmanns
samtakanna.
Oddný segir Íslensku mennta-
samtökin gera alvarlega athuga-
semd við stjórnsýsluhætti Hafn-
arfjarðabæjar. „Við lítum svo á að
riftun samningsins sé ólögmæt og
teljum þennan gjörning ekki
standast stjórnsýslulög. Þeir bera
það fyrir sig að velferð barna hafi
ekki verið tryggð vegna tíðra
breytinga á starfsliði. Það er
þekkt vandamál að erfitt er að
manna leikskóla víða. Starfs-
mannavelta á Tjarnarási var inn-
an eðlilega marka,“ segir Oddný.
Hún bendir á að ekki hafi nein
efnisleg rök fyrir uppsögnunum
komið fram af hálfu starfsfólks.
Einnig vekur hún athygli á að
starfsfólk hafi nú ráðið sig að
nýju hjá Hafnarfjarðarbæ. „Það
er ljóst að ástæðan að baki upp-
sögnum starfsmanna var ekki
önnur en að beita þrýstingi og fá
þessu framgengt. Starfsfólkið
lýst því yfir að ekki hafi neitt ver-
ið við stefnuna að athuga en
kvartar yfir samskiptum við
Sunitu Gandhi. Hún hefur ekki
verið á landinu í allan vetur og því
óskiljanlegt með öllu hvað fólk er
að tala um,“ segir Oddný Mjöll
Arnardóttir. ■
STANGAVEIÐIFÉLAG Á AKUREYRI
Stangveiðimenn í Eyjafirði hafa
stofnað Stangaveiðifélag Akureyr-
ar. Meðal markmiða félagsins er
að standa vörð um hagsmuni og
rétt stangveiðimanna á svæðinu.
ÚTILISTAVERK VIÐ GEYSISHÚSIÐ
Menningarmálanefnd Reykjavík-
ur hefur samþykkt að útilista-
verkinu Horfum eftir Steinunni
Þórarinsdóttur verði komið fyrir á
nýrri stétt framan við endur-
byggðu Geysishúsin á Geysisgötu.
EKKI HEITT VATN Á MÝRUM
Orkuveita Reykjavíkur hefur
kynnt bæjarráði Borgarbyggðar
það mat sitt að ekki séu miklar
líkur á að heitt vatn finnist á Mýr-
um.
LANDSPÍTALINN
Fram að þessu hafa þeir sem þurft hafa
nýtt nýra farið til útlanda og beðið þar. Oft
hefur sú bið verið löng.
Aukin þjónusta við Landspítala:
Nýrnaígræðslur að hefjast
ÍHUGA MÁLSÓKN
Íslensku menntasamtökin gera alvarlegar
athugasemdir við stjórnsýsluhætti Hafnar-
fjarðarbæjar.
Íslensku menntasamtökin:
Íhuga að fara í mál
Vopnaframleiðendur og
sölumenn njóti friðhelgi
Bandaríska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp þess efnis að vopna-
fyrirtækjum verði veitt undanþága frá lögsóknum. Talið er að þann
óvænta stuðning sem frumvarpið hefur hlotið megi rekja til pólitísks
áhrifamáttar vopnaeigenda í Bandaríkjunum.
RÉTTAÐ YFIR LEYNISKYTTU
Ef frumvarpið verður að lögum mun mál fórnarlamba leyniskyttanna frá Washington á hendur umdeildum vopnasala verða látið niður falla.
■ Lögreglufrétt
LÁ MEÐ ÞÝFIÐ Í KRING Brotist
var inn í Veganesti á Akureyri
um helgina. Vegfarandi hafði orð-
ið var við grunsamlegar manna-
ferðir og gat gefið lögreglu
greinargóða lýsingu á innbrots-
þjófinum. Eftir nokkra leit fannst
maðurinn þar sem hann lá í garði
leikskóla í næsta nágrenni og í
kring um hann var þýfið úr versl-
uninni og áhöld til innbrots. Mál-
ið telst upplýst.
SIGURÐUR
LÍNDAL
„Fljótt á litið get
ég ekki séð
annað en að
lagafrumvarp af
þessu tagi væri
algert brot á
reglum um
bótarétt á Ís-
landi,“ segir
lagaprófessor-
inn.