Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 29
29ÞRIÐJUDAGUR 6. maí 2003
43. ÁRA „Venjulega geri ég mér
ekki dagamun á afmælisdaginn,“
segir Reinhard Reynisson, bæjar-
stjóri á Húsavík, sem er 43 ára í
dag. „Það er gert óvenju vel við
mig á heimilinu, sem er þó vel gert
alla aðra daga.“ Hann segist ekki
halda upp á nema stærri áfangana
á afmælisdaginn. „Í dag ætla ég
bara eins og aðra daga að reyna að
standa mig vel í vinnunni.“
Reinhard á von á fulltrúum við-
skiptabanka Húsavíkurkaupstað-
ar í heimsókn. „Við ætlum að fara
saman yfir stöðuna. Annars verð-
ur þetta bara venjulegur vinnu-
dagur.“
Á heimilinu er skiptinemi,
stúlka frá Austurríki. Reinhard er
sjálfur af þýsku bergi brotinn,
hálfur Þjóðverji, og því kærkomið
að halda við þýskunni. „Hún held-
ur mér ágætlega gangandi í þýsk-
unni. Hins vegar höfum við og
hún náð þeim ágæta árangri að
hún er altalandi á íslensku og
stundar hér nám af krafti við
framhaldskólann.“
Reinhard hefur verið starfandi
í sveitarstjórnum frá árinu 1987.
Hann byrjaði sem sveitarstjóri í
Reykhólasveit í Barðastrandar-
sýslu, en þaðan er hann upprunn-
inn. Leiðin lá síðan til Þórshafnar.
Hann kom svo til Húsavíkur fyrir
fimm árum. „Við kunnum vel við
okkur á Húsavík. Það gildir
reyndar um alla staði sem við höf-
um verið á. Bæði hvað varðar
vinnu og líf fjölskyldunnar.“
Kosningar á Íslandi eru að vori
og fjórða hvern afmælisdag stend-
ur Reinhard frammi fyrir því að
breytingar geti orðið á högum
hans. Fyrir ári var hann í þeirri
stöðu. „Kjörtímabilið núna er fyrs-
ta kjörtímabilið þar sem ég er for-
ystumaður í sveitastjórn sem kjör-
inn fulltrúi.“ Það er rólegra yfir
þessum afmælisdegi, en þeim fyr-
ir ári. „Það var meiri spenna í loft-
inu fyrir mig og mína á afmælis-
deginum fyrir ári.“ ■
VEITINGAREKSTUR „Frá því við byrj-
uðum með rekstur hótelsins höf-
um við haldið þeim vana að bjóða
öllum í sveitinni í sumarkaffi áður
en við opnum á vorin og það hefur
mælst vel fyrir. Það mæta nánast
allir sem vettlingi geta valdið,
núna komu um 70 manns í kaffið
og það er nánast íbúafjöldinn hér á
svæðinu,“ sögðu þær Steinunn
Hjartardóttir og Soffía Haralds-
dóttir, hótelstýrur hjá Hótel Flóka-
lundi í Vatnsfirði á Barðaströnd.
Þetta er fjórða sumarið sem
þær stöllur reka sumarhótelið og
hafa þær haldið þessum einstaka
vana frá upphafi. Hótelið mun
opna um miðjan maí fyrir gesti og
gangandi og segjast þær ekki
kvíða sumrinu enda Flókalundur
einn vinsælasti áfangastaður
ferðalanga á Vestfjörðum.
Undanfarna vetur hefur verið
unnið að endurbótum á húsakynn-
um auk þess sem öll aðstaða fyrir
þá sem kjósa að dvelja á tjald-
stæðinu þeirra hefur gjörbreyst.
Komið hefur verið upp öflugri
hreinlætisaðstöðu þar sem fólk
getur þvegið af sér, farið í sturtu
og þess háttar.
„Það hefur verið stöðug og jöfn
aukning hjá okkur frá því að við
byrjuðum, bæði í hópum útlend-
inga og íslenskra ferðamanna, og
þær pantanir sem komnar eru
fyrir sumarið benda til þess að
enn verði aukning. Það sem meira
er um vert er að frá því að við
byrjuðum hefur veðrið batnað
jafnt og þétt á milli sumra og ef
þetta sumar verður betra en verið
hefur getur fólk óhikað komið
hingað í sólarstrandarferðir. Sól-
skinið og lognið undanfarin ár
hefur verið með hreinum ólíkind-
um og við trúum á enn frekari
aukningu í því eins og öðru hér,“
segja þær. ■
Allri sveitinni
boðið í kaffi
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Reykjavík fer fram hjá sýslu-
manninum í Reykjavík, Skógarhlíð 6, rétt sunnan Miklatorgs.
Opið er alla daga milli 10 og 22.
Á kjördag sjálfan, 10. maí, er opið kl. 10 til 18.
Sýslumannsembætti Kópavogs og Hafnarfjarðar lengja opn-
unartíma sína frá og með laugardeginum 3. maí, en þá er
opið frá 10 til 12. Frá 5.-9. maí verður opið frá kl. 9 til 19.
Opið er á kjördag frá 10 til 12.
Upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðsluna fást á
kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í Lækjargötu 2a og
í síma 590 3508.
Fyrirspurnir má senda á netfangið: harpa@samfylking.is.
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðsluna má
finna á kosningavef dóms- og kirkjumálaráðuneytisins,
www.kosning2003.is, og á heimasíðu Samfylkingarinnar,
www.xs.is.
Ert þú á leið
til útlanda?
Kjósum snemma!
Afmæli
REINHARD REYNISSON
■ lendir í því fjórða hvern afmælisdag
að óvissa er um framtíðina. Fjölskyldan
gerir vel við hann alla jafna, en bætir um
betur á afmælisdaginn.
í Foldaskóla, þriðjudaginn 6. maí kl. 20:00
Við fundum með þér!
Við boðum til fundar með íbúum í Grafarvogi og Grafarholti.
Komdu og ræddu þín mál við okkur.
Frambjóðendur Framsóknarflokksins
í Reykjavík
Fjölskyldan
í fyrirrúmi
Veitingarekstur
SUMARHÓTEL
■ Hótelstýrurnar í Flókalundi byrja
sumarið á því að bjóða öllum í sveitinni í
kaffi. Vatnsfjörðurinn er einkar fallegur og
sívinsæll áfangastaður ferðamanna.
HÓTELSTÝRUR
Steinunn Hjartardóttir og Soffía Haraldsdóttir, hótelstýrur hjá Hótel Flókalundi, ætla að opna um miðjan maí.
Þær trúa á aukið sólskin í sumar.
M
YN
D
/G
U
S
■ Andlát ■ Jarðarfarir
Magnús Jónsson, Snorrabraut 56,
Reykjavík, lést 2. maí.
Haukur Clausen, tannlæknir,
lést 1. maí.
14.00 Sigurborg Ingimundardóttir,
Brekku, Aðaldal, verður jarðsung-
in frá Grenjaðarstaðakirkju.
Óvissa fjórða hvern afmælisdag
REINHARD
REYNISSON
Dagurinn fer í
að reyna að
standa sig sem
bæjarstjóri á
Húsavík.