Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 10
10 6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR ■ Lögreglufréttir www.samfylking.is SVEITARFÉLÖG Sveitarfélagið Ár- borg mun leggja UMFS til níu milljónir króna til að greiða nið- ur skuldir handknattleiks- og knattspyrnudeildar félagsins. Bæjarráð Árborgar vill ekki að peningagreiðslan endurtaki sig og setur skilyrði þar um. Framlagið á að greiðast í þrem- ur þriggja milljóna króna greiðslum á næstu þremur árum. Ef skuldastaðan breytist og er ekki viðunandi að mati Ár- borgar er heimilt að fresta út- borgun þar til bætt hefur verið úr: „Með undirritun samnings þessa skuldbindur aðalstjórn sig til þess að taka fjármál deild- anna almennt föstum tökum og tryggja að svona staða komi ekki upp aftur. Stjórnin mun í því skyni beita sér fyrir nauðsynleg- um breytingum á samþykktum félagsins. Einnig mun fram- kvæmdastjóri aðalstjórnar ann- ast mánaðarlegt eftirlit með fjármálum allra deilda félags- ins,“ segir í samningi Árborgar og UMFS. Sérstaklega er tekið fram í samningnum að UMFS sjái sjálft um að greiða aðrar skuldir deild- anna. Ekki sé litið á þessa af- greiðslu sem fordæmi gagnvart öðrum deildum UMFS. ■ RÁÐHÚS ÁRBORGAR Bæjarráð Árborgar hefur samþykkt að að- stoða handknattleiks- og knattspyrnumenn á Selfossi úr skuldasnörunni í þetta skipti gegn því að UMFS taki fjármálin föstum tökum. Árborg bjargar UMFS með 9 milljónum: Fjármálin tekin föstum tökum STJÓRNMÁL Samfylkingin hyggst veita tólf milljörðum króna í menntamál á næsta kjörtímabili komist flokkurinn til valda eftir kosningar. Markmiðið er að fjölga brautskráðum úr fram- halds- og háskólum um 25%. „Menntun er undirstaða hag- sældar í þjóðfélaginu en stjórn- arflokkarnir hafa skilið illa við þennan málaflokk,“ segir Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forsætisráðherraefni Samfylk- ingarinnar, segir að þegar mennt- unarstig Íslendinga sé borið sam- an við hin Norðurlöndin komi í ljós að sá samanburður sé Íslend- ingum mjög óhagstæður. Bæði hlutfall þeirra sem hafi lokið framhaldsskólaprófi og háskóla- prófi sé lægst á Íslandi. Hún seg- ir að opinber útgjöld Íslendinga til menntamála séu einnig lág í samanburði við hin OECD-löndin. Til þess að standa jafnfætis hin- um Norðurlöndunum þyrfti að auka opinber framlög um 30%. Vegna þessa segir Ingibjörg Sólrún afar brýnt að efna til þjóð- arátaks í menntamálum. Tólf milljarðar króna á fjórum árum séu vissulega há upphæð, en hins vegar sé um afar arðbæra fjár- festingu að ræða. Tillögurnar leiði til þess að á næstu tveimur kjörtímabilum muni landsfram- leiðslan hafa hækkað um 1%, sem sé aðeins minna en varanleg áhrif Kárahnjúkavirkjunar. Virkjunarframkvæmdirnar kosti þjóðina hins vegar marg- falt meira. Hún segir að þegar áhrif tillaganna verði að fullu komin fram muni landsfram- leiðslan hafa hækkað um 3 til 6% á mann. Tillögur Samfylkingarinnar miðast við að auka framlög til framhaldsskóla um 5 milljarða króna, þar af framlög til verk- náms um 1 milljarð á næsta kjörtímabili. Stefna á að því að auka framlög til háskóla um 4 milljarða króna, þar af framlög til rannsókna og kennslu um a.m.k. 3 milljarða. Samfylkingin vill lækka útskriftaraldur í framhaldsskólum um eitt ár og gefa fólki á landsbyggðinni möguleika á að stunda fyrstu eitt til tvö ár námsins heima í héraði. Þá vill flokkurinn að hluti endurgreiðslu námslána verði frádráttarbær frá skatti. trausti@frettablaðið.is MENNTUN ER UNDIRSTAÐA HAGSÆLDAR Tillögur Samfylkingarinnar miðast við að auka framlög til framhaldsskóla um 5 milljarða króna, þar af framlög til verknáms um 1 milljarð á næsta kjörtímabili. Frá vinstri: Einar Már Sigurðsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Össur Skarphéðinsson og Ágúst Ólafur Ágústsson. HLUTFALL ÞEIRRA SEM LOKIÐ HAFA FRAMHALDSSKÓLAPRÓFI EFTIR ALDRI 25-64 25-34 35-44 45-54 55-64 Danmörk 80% 86% 80% 80% 72% Finnland 74% 87% 84% 70% 51% Ísland 57% 61% 60% 56% 46% Noregur 85% 93% 90% 82% 70% Svíþjóð 81% 91% 86% 78% 65% HLUTFALL ÞEIRRA SEM LOKIÐ HAFA HÁSKÓLAPRÓFI EFTIR ALDRI 25-64 25-34 35-44 45-54 55-64 Danmörk 26% 29% 28% 27% 20% Finnland 32% 38% 37% 29% 23% Ísland 25% 27% 29% 24% 15% Noregur 28% 35% 29% 26% 20% Svíþjóð 32% 37% 33% 32% 24% Samfylkingin vill efna til stórsóknar í menntamálum. Menntunarstig Íslendinga lágt miðað við hin Norðurlöndin. Opinber framlög um 30% lægri hér en þar. SAMGÖNGUR Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff, heitkona hans, flugu í fyrsta sinn með lággjaldaflug- félaginu Iceland Express um helgina. Parið hafði verið á menning- arhátíð í Berlín og flaug þaðan til London með lággjaldaflugfé- laginu Ryan Air. Frá London lá síðan leiðin til Íslands á laugar- dagskvöld með Iceland Express. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Haukssonar, upplýsinga- fulltrúa Iceland Express, kostar ríflega níu þúsund krónur að fljúga með félaginu aðra leið til Íslands frá London. ■ ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON OG DORRIT MOUSAIEFF Forsetinn og heitkona hans flugu heim frá London um helgina með Iceland Express. For- ráðamenn flugfélagsins tóku á móti þeim við heimkomuna. Forseti Íslands: Heimferð með lággjaldaflugi RÉÐIST INN Á HEIMILI Drukkinn maður ruddist inn í íbúð í Hveragerði á laugardags- kvöld og hafði í hótunum við heimilisfólk. Lögreglan á Selfossi var kölluð til aðstoðar. Hún hand- tók manninn, sem var vistaður í fangageymslu yfir nóttina. Hann var látinn laus næsta dag eftir að runnið var af honum. RÁÐIST Á MANN Á ÍSAFIRÐI Karlmaður á fimmtugsaldri varð fyrir aðkasti frá tveimur ungum mönnum á veitingastaðnum Krúsinni á Ísafirði á laugardags- kvöld. Segir maðurinn að menn- irnir tveir hafi kýlt hann í andlit- ið. Ekki liggur fyrir hvort maður- inn hyggst kæra árásina. Tólf milljarðar í menntamál Svonaerum við HLUTFALL LAUNÞEGA SEM ERU Í STÉTTARFÉLÖGUM 1997 84,0% 1998 85,5% 1999 83,8% 2000 83,9% 2001 85,1%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.