Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 31
31ÞRIÐJUDAGUR 6. maí 2003 ■ Leiðrétting Verkið Franskar kartöflur ogpekingönd – Frelsis kartöflur og lýðræðisönd eftir Snæbjörn Brynjarsson hlaut fyrstu verð- laun í örleikritasamkeppni fyrir framhaldskólanema sem Fræðslu- deild Þjóðleikhússins og leiklist- ardeild LHÍ stóðu sameiginlega að í vetur. Verðlaunin voru afhent á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins á laugardaginn og verkin sem höfnuðu í þremur efstu sætunum voru leiklesin við það tækifæri. Tveir stólar eftir Helgu Björgu Gylfadóttur varð í öðru sæti en verkið er skrifað fyrir tvo leikara og tvo barstóla og í verkinu er snúið skemmtilega upp á hug- myndina um tvo stóla með því að gera þá að búrum sem persónurnar eru fastar í. Verkið Jón finnur jafnvægi eft- ir Jónu Hildi Sigurðardóttur lenti í þriðja sæti. Alls bárust 25 verk í sam- keppnina og í áliti dómnefndar sem skipuð var Ragnheiði Skúla- dóttur, deildarforseta leiklistar- deildar LHÍ, Vigdísi Jakobsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar Þjóðleikhússins, og Magnúsi Þór Þorbergssyni, dramatúrg leiklist- ardeildar LHÍ, kom meðal annars fram að bæði fjöldi og gæði verk- anna hafi komið skemmtilega á óvart og því hafi reynst hægara sagt en gert að velja verðlauna- verkin þrjú. ■ NÝTUR SÍN Nesstofa á Seltjarnarnesi nýtur sín betur eftir að hreinsað var til í kringum þessi merku hús. Útihús hafa verið rifin sem voru til lítillar prýði. Í sumar á svo að gera gangskör að fegrun svæðisins í kringum Nesstofu. Húsið er ein af merkustu bygg- ingum þjóðarinnar. Þar er nú til húsa lækningaminjasafn. SUNDIÐ HEILLAR Árbæjarlaugin var opin 1. maí. Upp úr pottunum flæddi vegna aðsóknar. Kaldar sturtur SUNDLAUGAR Árbæjarsundlaugin var með opið á frídegi verka- lýðsins 1. maí og kunnu margir vel að meta framtakið. Þyrptust sundlaugargestir á staðinn og um tíma voru pottar svo þéttsetnir að upp úr flæddi. Komust færri ofan í en vildu. Álagið var þvílíkt að heita vatnið í sturtunum gaf sig og þurftu gestir að skola af sér sápu í hálfköldu vatni og kunnu margir því illa. Skýringin á heita- vatnsskortinum var sú að Árbæj- arlaugin notar ekki hitaveituvatn í sturtur sínar heldur venjulegt drykkjarvatn sem hitað er upp með rafmagni. Stóðst hitakerfið ekki álagið og því fór sem fór. Vatnið í sturtunum mun vera upphitað til að hlífa vatns- leiðslum sem þola verr kísil og hitaveituvatn en annað og venju- legra. ■ EGILL HELGASON Reynir að skýra og skilgreina kosningarnar í Silfri sínu sem sent verður út á miðviku- daginn í næstu viku. Egill með kosninga- sjónvarp SJÓNVARP Silfur Egils á Skjá einum verður flutt frá sunnudegi og yfir á miðvikudag í vikunni í tilefni kosninganna. Egill Helgason verður þá með langan kosninga- þátt þar sem tugir viðmælenda koma við sögu; stjórnmálamenn jafnt sem kjósendur. Verður þar spurt og spáð í úrslit kosninganna, tilganginn með þeim, væntanleg- ar breytingar og um væntingar þjóðarinnar á þessum tímamót- um. Egill lofar snörpu og skemmtilegu kosningasjónvarpi á öðrum nótum en fólk á að venjast hjá hinum sjónvarpsstöðvunum. ■ Að gefnu tilefni skal tekið fram að Stalín er ekki hér. Frelsis kartöflur og lýðræðisönd Leikrit ■ Þrjú örleikrit eftir framhaldsskólanema hlutu verðlaun í samkeppni sem haldin var á vegum Fræðsludeildar Þjóðleik- hússins og leiklistardeildar LHÍ. Það kom dómnefnd á óvart hversu margir tóku þátt og ekki síður hversu góð verkin voru VERÐLAUNAAFHENDINGIN Að afhendingu lokinni leiklásu nemendur á öðru ári við leiklistardeild LHÍ verðlaunaverkin og sætir það tíðindum að þau voru nú í fyrsta sinn að leika verk eftir sér yngri höfunda.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.