Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 8
8 6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR MISSOURI, AP Neyðarástandi var lýst yfir í fjölda sýslna í Missouri og Kansas eftir að kröftugir skýstrók- ar gengu yfir miðvesturríki Banda- ríkjanna. Talið er að 29 manns hafi farist af völdum veðurofsans í þessum tveimur ríkjum auk þess sem hundruð húsa voru jöfnuð við jörðu. Einnig varð tölverð eyðilegg- ing í Tennesse, Suður-Dakota og Nebraska. Smábærinn Pierce City í Miss- ouri varð einna versta úti. Að sögn íbúanna setti skýstrókurinn mark sitt á allan bæinn, tré brotnuðu, raf- magnslínur slitnuðu og ekki var þverfótað fyrir glerbrotum og öðru braki á götunum. Bækistöðvar þjóðvarðliðsins í bænum hrundu til grunna og var óttast að níu manns, sem leituðu þar skjóls fyrir veð- urofsanum, hefðu farist. Áætlað er að alls hafi tólf manns látið lífið í Missouri. Í Kansas hefur verið tilkynnt um átta dauðsföll. Öll starfsemi flug- vallarins í Kansas City lá niðri í um hálfa klukkustund., flugstöðvar- byggingin var tæmd og farið með flugfarþega í neðanjarðargöng á meðan skýstrókurinn gekk yfir. Í útjaðri borgarinnar feyktust flutn- ingabílar niður í gljúfur og hús fuku af grunninum. ■ EYÐILEGGING „Ég þurfti á öllum mínum styrk að halda“ sagði íbúi í Northmoor í Missouri þegar skýstrókur hafði gengið yfir bæinn og jafn- að tugi húsa við jörðu. Neyðarástand í tveimur ríkjum í kjölfar skýstróka: Tugir fórust af völdum veðurofsans STJÓRNSÝSLA Niðurstaða stjórn- sýsluúttektar Ríkisendurskoðun- ar á Flugmálastjórn Íslands er í prentun en verður ekki birt fyrr en í næstu viku. Ríkisendurskoð- un hóf stjórnsýslu- úttektina í maí í fyrra að ósk Al- þingis. Beiðnin var meðal annars sett fram vegna um- ræðu um hugsan- lega misnotkun á flugvél Flugmála- stjórnar. Upphaflega var áætlað að út- tektinni yrði lokið um áramótin. Í janúar var sagt að niðurstöðurnar lægju fyrir í febrúar. Þegar komið var fram í miðjan febrúar sagði Ríkisendur- skoðun að von væri á úttektinni innan hálfs mán- aðar. Síðan eru tveir og hálfur mánuður. Sigurður Þórð- arson ríkisendur- skoðandi segir úttektina nú loks tilbúna og vera í prentun. Skýrsl- an verði tilbúin í næstu viku. „Yfirleitt tek- ur þetta lengri tíma en áformað er. Þar kemur einkum til að við leitum umsagnar þeirra aðila sem verið er að skoða. Textavinna og frágangur tekur líka sinn tíma,“ segir Sigurður. Að sögn ríkisendurskoðanda lýtur úttektin í megindráttum að stöðu Flugmálastjórnar um síð- ustu áramót. Einnig hafi sumir einstakir þættir, eins og fjármálin, verið kannaðir fjögur til fimm ár aftur í tímann: „Það er bent á hvernig hlutirnir hafa verið aftur í tímann og sagt hvað við teljum að framtíðin eigi að bera í skauti sér,“ segir Sigurð- ur. Þegar umræðan stóð um áður- greinda meinta misnotkun á flug- vél Flugmálastjórnar sagðist stofnunin ekki geyma farþegalista vélarinnar. Í ljós kom að sam- kvæmt lögum bar stofnuninni að geyma farþegalistana nema hún aflaði sér heimildar til að farga þeim. Það var ekki gert og listarn- ir hafa því verið geymdir síðan. Þegar Fréttablaðið kynnti sér í fyrra hluta farþegalistana sem sagður var vera í flugferðum vegna „prófana“ kom í ljós mis- brestur á skráningu einstakra fluga. Til dæmis var ferð austur á land í maí í fyrra með flugmála- stjóra, fulltrúa samgönguráðu- neytis og nokkra meðlimi flug- ráðs skráð sem prófunarflug. Flugmálastjórn sagði þá að við- komandi flugmaður hlyti að hafa gert mistök við skráningu flugs- ins. gar@frettabladid.is PARÍS, AP Fulltrúar átta helstu iðn- ríkja heims lögðu ágreiningsmál sín til hliðar þegar þeir hittust á fundi í París til þess að ræða al- þjóðlega baráttu gegn hryðju- verkum og skipulagðri glæpa- starfsemi. Á fundinum var ætlunin að fara yfir ýmis málefni, svo sem leiðir til þess að berjast gegn al- þjóðlegum hryðjuverkasamtök- um, vernd gegn tölvuþrjótum, baráttuna gegn barnaklámi og möguleikana á því að frysta bankainnistæður glæpamanna. Leiðtogafundur G-8 verður haldinn í þorpinu Evian í frönsku Ölpunum í byrjun júní. SVERÐIN SLÍÐRUÐ Innanríkisráðherra Frakka, Nicolas Sarkozy, býður John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, velkominn til Parísar. Fundur G-8: Ágreiningsmál lögð til hliðar RÁÐHERRA Á FLUGI Sturla Böðvarsson samgönguráðherra komst í fréttir í október árið 2001 vegna ferðalaga sinna með flugvél Flugmála- stjórnar. Geyma úttekt á Flugmálastjórn Stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Flugmálastjórn er í prentun en verður ekki tilbúin fyrr en í næstu viku. Ár er síðan úttektin hófst eftir umræðu um meinta misnotkun á flugvél Flugmálastjórnar. ■ “Það er bent á hvernig hlutirn- ir hafa verið aftur í tímann og sagt hvað við teljum að framtíðin eigi að bera í skauti sér.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.