Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 6
6 6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Leiðrétting
■ Asía
■ Evrópa
BAGDAD, AP Fyrirhugað er að níu
manna ráð leiði bráðabirgða-
stjórnina í Írak, að sögn banda-
rísks ráðamanns. Jay Garner, um-
boðsmaður bandarískra yfirvalda
í Írak, segir að stefnt sé að því að
kjarni bráðabirgðastjórnarinnar
taki við völdum um miðjan mán-
uðinn.
Garner segist búast við því að
fámennur hópur manna taki við
stjórninni í Bagdad. Í því sam-
bandi hefur hann nefnt Massoud
Barzani, leiðtoga lýðræðisflokks
Kúrdistan, Ahman Chalabi, for-
mann Þjóðþingsflokks Íraka, Jalal
Talabani, sem fer fyrir Þjóðfylk-
ingu Kúrdistan, Lyad Allawi, leið-
toga Íraska sáttarflokksins, og
Abdul Aziz al Hakim, fulltrúa
shíta-múslíma. Einnig hefur kom-
ið til tals að kristnir menn fái full-
trúa í stjórninni.
Í heimsókn sinni til Basra til-
kynnti Garner jafnframt að L.
Paul Bremer, fyrrum yfirmaður
hryðjuverkadeildar bandaríska
utanríkisráðuneytisins, væri
væntanlegur til Íraks í næstu viku
til að taka þátt í að byggja upp
nýja stjórnskipun í landinu. „Ég
sé um þetta allt saman sem stend-
ur en ég vil ekki hafa það þannig“
sagði Garner. ■
VIÐ VATNSTANKA Í BASRA
Mikil áhersla er lögð á að mynduð verði
bráðabirgðastjórn í Írak eins fljótt og auðið
er til þess að auðvelda uppbyggingarstarf í
landinu og stuðla að friði.
Bráðabirgðarstjórn í Írak á næsta leyti:
Níu manna stjórn
íraskra áhrifamanna
BLÓÐUG ÁTÖK Á HÁSKÓLALÓÐ
Að minnsta kosti 20 manns særð-
ust þegar til harðra átaka kom á
milli tveggja hópa á háskólalóð í
Istanbúl í Tyrklandi. Háskóla-
nemarnir börðust með kylfum og
grjóti og notaði lögreglan táragas
til þess að dreifa óeirðaseggjun-
um. Átökin mátti rekja til ólíkra
stjórnmálaskoðanna.
ALVARLEGUM GLÆPUM FÆKKAR
Alvarlegir glæpir á Írlandi voru
níu prósent færri á fyrstu þremur
mánuðum ársins en á sama tíma í
fyrra. Morðum fækkaði um 19 pró-
sent, kynferðisglæpum um 43 pró-
sent og alvarlegum líkamsárásum
um 37 prósent. Á hinn bóginn
fjölgaði glæpum á borð við hjóla-
stuldi og vasaþjófnaði verulega.
IÐNAÐUR Um 60 til 70 manns gætu
fengið vinnu við nýja efnaverk-
smiðju á Húsavík innan fárra ára.
Þetta kom fram í
máli Valgerðar
Sverrisdóttur iðn-
aðarráðherra á
kynningarfundi um
staðsetningu svo-
kallaðrar pólýol-
verksmiðju á Húsavík.
Pólýol er lífrænt efni sem not-
að er sem grunnefni í margs kon-
ar efnaiðnaði t.d. frostlög og
pólýester-plastframleiðslu. Hefð-
bundið hráefni fyrir þessa fram-
leiðslu er olía, en sú framleiðslu-
aðferð sem til skoðunar hefur ver-
ið fyrir Ísland byggir á notkun
sykurs sem hráefni.
„Það sem er einna áhugaverð-
ast við þessa framleiðslu er að við
hvert tonn af pólýoli bindast um 6
tonn af koltvísýringi við ræktun
sykursins fyrir framleiðsluna,“
sagði Valgerður. „Framleiðslan er
því sérstaklega umhverfisvæn og
má því hiklaust kalla framleiðslu-
ferlið í heild sinni, þ.e. ræktun
hráefnisins og iðnaðarframleiðsl-
una, grænan iðnað.“
Valgerður sagði að í kjölfar
sölu ríkisins á 51% hlut í kísilgúr-
verksmiðjunni við Mývatn árið
2001 hafi ríkisstjórnin samþykkt
að söluandvirðið skyldi renna til
atvinnuuppbyggingar í sveitarfé-
laginu.
„Í þrjú ár hafa margir iðnaðar-
kostir komið til athugunar í ráðu-
neytinu. Fljótlega var ákveðið að
leggja 10 m.kr. til uppbyggingar
baðlóns við Mývatn sem hagnýtti
affallsvatn Bjarnarflagsvirkjun-
ar, en beðið hefur verið með aðrar
fjárfestingar. Þetta verkefni, um
byggingu pólýolverksmiðju á
Húsavík, er langöflugasta verk-
efnið sem ráðuneytið hefur skoð-
að og er líklegast til að skila var-
anlegum árangri í atvinnuupp-
byggingu og styrkingu byggðar í
héraðinu.“
Framleiðsla á pólýoli þarfnast
mikillar jarðgufu. Vegna nálægð-
ar Húsavíkur við háhitasvæðið
við Þeistareyki, auk landrýmis og
hafnar, þykir staðurinn vera mjög
álitlegur staður fyrir verksmiðj-
una. Hagkvæmnisathuganir eru í
gangi, en reiknað er með að þær
taki um 18 mánuði.
trausti@frettabladid.is
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR IÐNAÐARRÁÐHERRA
„Þetta verkefni, um byggingu pólýolverksmiðju á Húsavík, er langöflugasta verkefnið sem
ráðuneytið hefur skoðað og er líklegast til að skila varanlegum árangri í atvinnuuppbygg-
ingu og styrkingu byggðar í héraðinu,“ sagði Valgerður.
Efnaverksmiðja
reist á Húsvík
Ráðherra bindur vonir við nýja pólýolverksmiðju á Húsavík. Gæti
veitt 60 til 70 manns atvinnu. Framleiðsluferlið þykir umhverfisvænt.
Hagkvæmnisathugun lýkur eftir 18 mánuði.
RANNSÓKN Umfangsmikil rann-
sókn á sýkingum, tíðni ónæmrar
lungnabólgubakteríu og sýkla-
lyfjanotkun barna stendur yfir á
fjórum stöðum á landinu um þess-
ar mundir.
Vilhjálmur Ari Arason, einn
rannsóknarmanna, segir rann-
sóknina fara fram í Hafnarfirði,
Vestmannaeyjum, Egilsstöðum og
Bolungarvík. Hún er framhald
rannsókna sem voru gerðar á
sömu stöðum 1993 og 1998. Á
næstu tveimur vikum verður 400
barna úrtaki barna boðin þátttaka
í Hafnarfirði. Þegar hefur rann-
sóknin verið gerð í Vestmannaeyj-
um og Egilsstöðum, þar sem öll-
um börnum á aldrinum 1-6 ára var
boðin þátttaka og var þátttaka
yfir 80%. Alls munu um 1.000
börn taka þátt í rannsókninni, sem
er svipaður fjöldi og í fyrri skipti.
Niðurstöðurnar gera heilbrigðis-
yfirvöldum hér á landi sem og
annars staðar kleift að gera ráð-
stafanir til að sporna frekar gegn
þróun ónæmis meðal helstu sýk-
ingarvalda og til að stuðla að
skynsamlegri notkun sýklalyfja í
framtíðinni. ■
■
Framleiðsla á
pólyoli þarfnast
mikillar jarð-
gufu
MARKMIÐ RANNSÓKNARINNAR
Vonast er til að stuðla að skynsamlegri notkun sýklalyfja meðal barna í framtíðinni.
Sýkingar barna:
Um þúsund börn í rannsókn
Mistök urðu við gerð töflu um
þingmenn Suðurkjördæmis sam-
kvæmt nýjustu könnunum Frétta-
blaðsins. Guðni Ágústsson var
merktur sem Sjálfstæðismaður
og Ísólfur Gylfi Pálmason sem
Samfylkingarmaður, en báðir eru
í Framsókn. Sjálfstæðismaðurinn
Guðjón Hjörleifsson var merktur
sem Framsóknarmaður.
EYÐILEGGING AF JARÐSKJÁLFTA
Snarpur jarðskjálfti skók norð-
vesturhéruð Kína með þeim af-
leiðingum að yfir 1.300 hús voru
jöfnuð við jörðu og maður á átt-
ræðisaldri fékk hjartastopp. Á
annað þúsund húsdýr drápust, að-
allega kindur. Ekki hefur verið
tilkynnt um frekari slys á fólki.
MANNSKÆÐUR STORMUR Að
minnsta kosti nítján manns létu
lífið og tugir slösuðust þegar
hitabeltisstormur gekk yfir þorp
í austanverðu Bangladesh.
Hundruð kofa hrundu til grunna
og uppskera eyðilagðist. Fjölda
manna er saknað og leita björg-
unarmenn að lífsmarki í rústum
húsa.
FERÐAMENN ÓTTAST HABL
Ferðamönnum í Singapúr hefur
fækkað gífurlega að undanförnu
vegna faraldurs bráðalungna-
bólgu. Aðeins 38.200 heimsóttu
landið á tímabilinu 22.-28.apríl en
það er um 74 prósent færri en á
sama tíma á síðasta ári. Áætlað
er að HABL muni kosta þjóðarbú-
ið að minnsta kosti 63 milljarða
íslenskra króna á þessu ári.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
33.240 kr.
Topptilbo›
til Alicante
Frábært
vikutilbo›
ogbíll
í plús
21. maí
46.340 kr. .
Mallorca 22. maí
Innifalið: Flug í F flokki og
bíll í A flokki í Plús í 1 viku
og allir flugvallarskattar.
Miðað við að 2 fullorðnir og 2
börn 2ja-11 ára ferðist saman.
Ef 2 ferðast saman 36.630 kr.
36.440 kr.
21. maí
Innifalið: Flug í F flokki
og bíll í A flokki í 2 vikur,
en þú greiðir bara fyrir 1 viku
og allir flugvallarskattar.
Miðað við að 2 fullorðnir og 2
börn 2ja-11 ára ferðist saman.
Ef 2 ferðast saman 43.030 kr.
Innifalið: Flug, gisting á
Pil Lari Playa í 1 viku, ferðir til
og frá flugvelli erlendis,
flugvallarskattar og
bíll í A flokki í 3 daga.
Miðað við að 2 fullorðnir og 2
börn 2ja-11 ára ferðist saman.
Ef 2 ferðast saman 49.830 kr
Anna›
frábært
vikutilbo›
29.950 kr.
Benidorm 22. maí
Innifalið: Flug, gisting í íbúð
í 1 viku, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og
flugvallarskattar.
Miðað við að 2 fullorðnir og 2
börn 2ja-11 ára ferðist saman.
Ef 2 ferðast saman 39.990 kr
á mann
á mann
á mann
á mann
Slys á Reykjanesbraut:
Haldið
sofandi
SLYS Manninum sem slasaðist al-
varlega í umferðarslysi á Reykja-
nesbraut aðfaranótt laugardags-
ins er haldið sofandi í öndunarvél.
Að sögn vakthafandi læknis á
gjörgæsludeild hlaut maðurinn al-
varlega höfuðáverka.
Maðurinn var ásamt þremur
öðrum í bíl og slösuðust þeir
minna. Slysið varð á Strandar-
heiði og virðist sem ökumaður
hafi misst stjórn á bílnum með
þeim afleiðingum að hann fór út
af og endastakkst. Mennirnir eru
allir varnarliðsmenn af Keflavík-
urflugvelli. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI