Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 4
4 6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR Á Reykjavíkurborg að auka fram- lag sitt til Leikfélags Reykjavíkur? Spurning dagsins í dag: Verða stjórnarskipti eftir kosningar? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 46% 54% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Landhelgisgæslan LANDHELGISGÆSLAN „Landhelgis- gæslan hefur verið hornreka, hvað hefur ríkisstjórnin verið að gera síðustu fjögur ár?“ sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, á kosninga- fundi sem var haldinn um mál Landhelgisgæslunnar. Margt var rætt en fjárskort Landhelgis- gæslunnar bar hæst og hvert hlutverk hennar eigi vera. Fækkun herliðs á herstöð Banda- ríkjanna er talið auka verkefni gæslunnar. Íslensk stjórnvöld þurfa að mæta breytingum með eflingu Landhelgisgæslunnar og fylla upp í það hlutverk sem varnarlið- ið hefur gegnt. Fækkun nemenda í Stýrimannaskólanum veldur áhyggjum. Nefnt var hvort bjóða ætti út hluta af starfsemi Land- helgisgæslunnar. Talsmenn flokkanna voru sammála um að Landhelgisgæsl- an væri hornsteinn í íslensku þjóðfélagi og að auka þyrfti styrkleika hennar með auknu fjármagni og skipulagi. „Um- hverfið breytist og það nýjasta er fækkun á herstöð Bandaríkja- manna. Því þarf að skoða nýtt og stærra hlutverk Landhelgis- gæslunnar. Það þarf að sjá til þess að gæslan hafi vel þjálfað lið og góðan tækjakost vegna nýrra krafa og markmiða,“ sagði Björn Bjarnason, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks. Jónína Bjartmarz, Framsókn- arflokki, sagði að metnað þyrfti í forystu þessara mála og að móta þyrfti markvissa stefnu þannig að ljóst yrði hver skipting ráðu- neyta væri. „Hér eru ein gjöfulustu fiski- mið heims og þessi staða er van- virðing við sjómenn. Peningar eru afl til verka og huga verður að nýju og stærra hlutverki Landhelgisgæslunnar eftir fækkun í herliði Bandaríkjanna í Keflavík,“ segir Eyjólfur Ár- mannsson, frambjóðandi Frjáls- lynda flokksins. Jón Magnússon, frambjóðandi Nýs afls, sagði að Ísland þyrfti að taka ákvörðun um að taka sjálft ábyrgð á vörn- um og öryggi þjóðarinnar og þar gegndu Landhelgisgæslan og lögreglan meginhlutverki, ekki gengi að bíða þess að Banda- ríkjaher tæki ákvörðunina. „Erlend skip geta nánast stillt klukkuna, því Fokkervél Land- helgisgæslunnar er bara flogið á dagvinnutíma vegna sparnaðar. Hvað ef okkar flugmenn lenda í neyð? Eldsneytisflugvél Banda- ríkjahers er núna í Írak og huga þarf að aðgangi að eldsneytis- flugvél,” segir Össur Skarphéð- insson. Drífa Snædal, frambjóð- andi Vinstri grænna, lagði áherslu á að herinn færi. Það hefði mikið að gera með sjálf- stæði þjóðarinnar og þá myndi hlutverk Landhelgisgæslunnar stækka enn meira. hrs@frettabladid.is STRANDGATA 14 Fiskvinnsluhús Jóns Erlingssonar eyðilagð- ist í bruna í apríl. Stórbruninn í Sandgerði: Eldsupptökin ekki fundin LÖGREGLUMÁL Rannsókn á stórbrun- anum í fiskvinnsluhúsi Jóns Er- lingssonar í Sandgerði aðfaranótt 11. apríl hefur ekki leitt til niður- stöðu. Í húsinu þar sem bruninn hófst var ekki fiskvinnsla heldur var þar unnið að því að fella net. Mikill eldsmatur var í netunum. Loftur Kristjánsson rannsókn- arlögreglumaður segir engar vís- bendingar komnar fram um elds- upptökin. Svo virðist sem enginn hafi verið þar á ferli frá því snemma dags og þar til eldurinn í húsinu uppgötvaðist eftir mið- nætti. „Við fengum aðstoð frá tækni- deild lögreglunnar í Reykjavík. Rannsókn hennar beinist að upp- tökum eldsins. Mér skilst að von sé á þeim niðurstöðum á næstu dög- um,“ segir Loftur. Húsið sem brann og er talið ónýtt er um 1.120 fermetrar að grunnflatarmáli. Áföst því er 500 fermetra bygging sem hýsir bón- stöð. Hún skemmdist nokkuð í brunanum. Tjónið hefur enn ekki verið metið en giskað er á að það nemi ekki undir 200 milljónum króna. ■ SÓTTU SLASAÐAN SJÓMANN Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, sótti slasaðan sjómann af þýska togaranum Atlantic Peace í fyrrinótt. Skipið var þá statt á karfaveiðum á Reykjaneshrygg 240 sjómílur á hafi úti. Þyrlan fór í loftið klukkan 20.40 og lenti við Landspítala – háskólasjúkra- hús tæplega fjórum klukkutím- um síðar. Avis dagsleiga, helgarleiga, vikuleiga. Eyddu minna í bílinn en meira í sjálfan þig og þína. Kynntu þér tilboð Avis á bílaleigubílum. Hringdu í Avis sími 5914000 Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – www.avis.is Við gerum betur Njóttu þess a ð ferðas t um la ndið á góðu m bíl DÓMSMÁL Í dómsmálaráðuneytinu liggur ekkert fyrir um að breyt- ingar verði gerðar á fyrirkomu- lagi samfélagsþjónustu. Fyrir- komulagið kemur þó til umfjöll- unar hjá tveimur nefndum á veg- um ráðuneytisins. „Menn munu ekki ganga í að breyta því nema að mjög vel grunduðu máli,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, og tekur und- ir orð Helga Gunnlaugssonar af- brotafræðings í Fréttablaðinu í gær um að reynslan af núverandi fyrirkomulagi sé góð. Hérlendis er það svo að Fangelsismálastofn- un tekur ákvörðun um að dæmdir menn gegni samfélagsþjónustu, en annars staðar dæma dómstólar menn til samfélagsþjónustu. Verið er að vinna að heildar- endurskoðun á lögum um fulln- ustu refsinga. Þar er meðal ann- ars komið inn á samfélagsþjónust- una. Þá er gert ráð fyrir því að nefnd sem dómsmálaráðherra skipar að hvatningu Alþingis um beitingu reynslulausna muni ein- nig fjalla um fyrirkomulag samfé- lagsþjónustunnar. ■ Ferðaþjónusta: Menningar- vefur er í smíðum SAMNINGUR Undirritað hefur verið samkomulag um að Snorrastofa geri sérstakan menningarvef ferðaþjónustunnar. Tilgangur vefsins er að gera upplýsingar um menningararf þjóðarinnar og menningarvið- burði á öllu landinu aðgengilegar innlendum og erlendum ferða- mönnum. Höfuðáhersla verður lögð á að upplýsingar séu greinar- góðar og reglulega uppfærðar. Menningarviðburðir á öllu land- inu verða með reglubundnum hætti skráðir og kynntir. Það voru Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, sem undirrituðu samninginn á Hótel Reykholti. ■ LEIKSKÓLADEILA Starfsemi var með eðlilegum hætti í leikskólanum Tjarnarási í gærmorgun og það starfsfólk sem sagt hafði upp störfum var mætt á ný. „Hér er að ganga hlaupabóla og það eru for- föll af þeim sökum. Foreldrar mættu hins vegar allir með þau börn sem voru frísk,“ sagði starf- stúlka við skólann. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á aukafundi á sunnu- dagskvöld að taka yfir rekstur skólans með vísan til 18. greinar samningsins sem kveður svo á að ef velferð barnanna sé í hættu uppfylli Íslensku menntasamtök- in ekki skilyrði samningsins og því sé bænum heimilt að rifta hon- um og yfirtaka reksturinn. Starfsfólk á Tjarnarási hefur ekki viljað gefa upp ástæður þess að það sá sér ekki fært að starfa undir stjórn Íslensku menntasam- takanna áfram. Í samtali við Fréttablaðið í gærmorgun var því hafnað af því starfsfólki sem blað- ið ræddi við að tjá sig um ástæður þess. „Ég býst ekki við að um það verði nokkurn tíma rætt. Þessu er lokið og nú horfum fram á veginn og veltum ekki fyrir okkur því sem er að baki,“ segði starfs- stúlka við skólann. ■ Ökumaður bifhjóls: Var á 170 km hraða LÖGREGLUMÁL Ökumaður bifhjóls var stöðvaður á Reykjanesbraut við Bústaðaveg á 170 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60 km. Ökumaðurinn, sem er nýlega orðinn 21 árs, var ekki einn á hjól- inu þar sem jafnaldri hans var farþegi á hjólinu. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum á staðn- um. Annar var tekinn grunaður um ölvun við akstur og réttindalaus á 148 kílómetra hraða þar sem mest má aka á 60. Sextíu og átta öku- menn voru kærðir fyrir að aka of hratt um helgina. ■ ALLT KOMIÐ Í EÐLILEGT HORF Foreldrar mættu með börn sín að nýju í gærmorgun. Leikskólinn Tjarnarás: Hlaupabóla eini vandinn FANGELSISMÁLASTOFNUN Ólíkt öðrum löndum eru það ekki dóm- stólar heldur Fangelsismálastofnun sem tekur ákvörðun um að brotamenn gegni samfélagsþjónustu. Fyrirkomulag samfélagsþjónustu til skoðunar: Engar ákvarðanir um breytingar FRAMBJÓÐENDUR Í FLUGSKÝLI Allir sammála um nauðsyn öflugrar Landhelgisgæslu. Fokkernum bara flogið í dagvinnu Frambjóðendur allra flokka voru oftast sammála þegar þeir ræddu mál- efni Landhelgisgæslunnar. Meiri peninga vantar. Össur sagði vélinni einungis flogið í dagvinnu og það viti hugsanlegir landhelgisbrjótar. ■ „Hér eru ein gjöfulustu fiski- mið heims og þessi staða er vanvirðing við sjómenn.” FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 74.29 0,12% Sterlingspund 119.25 -0,01% Dönsk króna 11.23 -0,27% Evra 83.41 -0,24% Gengisvístala krónu 119,04 0,08% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 270 Velta 7.006 m ICEX-15 1.412 0,06% Mestu viðskipti Ker hf. 3.106.250.401 Búnaðarbanki Íslands hf. 509.563.204 Íslandsbanki hf. 333.109.322 Mesta hækkun Tryggingamiðstöðin hf. 3,00% Búnaðarbanki Íslands hf. 2,91% Jarðboranir hf. 1,33% Mesta lækkun Vinnslustöðin hf. -2,33% Eimskipafélag Íslands hf. -1,59% Sæplast hf. -1,28% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8561,1 -0,3% Nasdaq*: 1515,5 0,8% FTSE: 3952,6 1,9% DAX: 3009,5 0,8% NIKKEI: 7907,2 0,6% S&P*: 929,7 0,0% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.