Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 19
19ÞRIÐJUDAGUR 6. maí 2003
KÖRFUBOLTI Þjóðverjinn Dirk
Nowitzki skoraði 31 stig og tók 11
fráköst þegar Dallas Mavericks
tryggði sér sæti í undanúrslitum
Vesturdeildar NBA-deildarinnar
með sigri á Portland, 107:95, í sjö-
unda leik liðanna.
Mavericks, sem vann fyrstu
þrjú einvígi sín Portland en tapaði
næstu þremur, mætir Sacramento
Kings í undanúrslitunum.
Detroit Pistons mætir Phila-
delphia 76ers í næstu umferð eft-
ir að liðið sigraði Orlando Magic
með 108 stigum gegn 93.
Chauncey Billups skoraði 37 stig
fyrir Pistons í leiknum.
Aðrir leikir í annarri umferð
úrslitakeppninnar eru á milli
meistara L.A. Lakers og San Ant-
onio Spurs annars vegar og
Boston Celtics og New Jersey
hins vegar. ■
HANDBOLTI Í kvöld hefst úrslita-
viðureign Hauka og ÍR um Ís-
landsmeistaratitilinn í handbolta
karla. Haukar hafa notið velgengi
á síðustu árum en ÍR-ingar urðu
síðast Íslandsmeistarar fyrir 57
árum.
Frjálsíþróttamenn úr ÍR skip-
uðu handknattleikslið félagsins
árið 1946. Þekktastir þeirra eru
Finnbjörn Þorvaldsson og Jóel
Sigurðsson, en þeir kepptu á
Ólympíuleikunum í London árið
1948. Finnbjörn setti Íslandsmet í
100 metra hlaupi árið 1949 (10,5
sek.) og Íslandsmet Jóels í spjót-
kasti, 66,99 metrar, stóð í tæpa
þrjá áratugi.
Aðrir leikmenn Íslandsmeist-
aranna voru Gunnar Sigurjóns-
son, Sigurgísli Sigurðsson, Ingvi
Guðmundsson, Guðmundur
Magnússon og Ingólfur Steinsson.
Gunnar lék 141 leik með meistara-
flokki Vals í fótbolta á árunum
1943 til 1954.
Fréttablaðið bað Finnbjörn að
rifja upp sigur ÍR-inga á Íslands-
mótinu árið 1946. „Leikmennirnir
voru frjálsíþróttamenn en keppni
í frjálsum íþróttum var rétt yfir
sumarið. Við þurftum hreyfingu
yfir veturinn og þótti handboltinn
tilvalinn. Við æfðum í ÍR-húsinu,
jafn lítið og það var, en fyrst var
keppt í íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar, gegnt Þjóðleikhúsinu. Síðar
var keppt í Hálogalandi en það
var langt út úr bænum og var
stórmál að komast þangað.“
„Sami fjöldi var í liðum og nú
þó plássið væri minna en munur-
inn var sá að þá var maður inná
allan tímann. Það var ekki hægt
að skipta inná og sömu leikmenn
léku alla leikina.“
ÍR-ingar gerðu Finnbjörn að
heiðursfélaga árið 1995 fyrir
margvísleg störf í þágu félagsins.
„Ég var í fimleikum, í badminton í
áratugi, körfubolta og á skíðum.
Ég stofnaði körfuboltadeild ÍR
ásamt öðrum árið 1949. Maður var
nánast í öllu sem þá var á boðstól-
um og líka í félagsmálunum.“
ÍR-ingar unnu Hauka 20:19 í
úrslitaleiknum árið 1946. „Það var
framlengt og mig minnir að það
hafi verið tvær framlengingar en
þori ekki að fullyrða um það. Ég
man bara að þegar ég skoraði sig-
urmarkið var orðinn þreyttur. Ég
stóð á línunni og missti boltann,
sem skoppaði tvisvar og lenti í
markinu. Það var úrslitamarkið.“
obh@frettabladid.is
FINNBJÖRN ÞORVALDSSON
Finnbjörn skoraði sigurmark ÍR-inga í úrslitaleiknum gegn Haukum árið 1946.
Finnbjörn Þorvaldsson rifjar upp sigurmark ÍR í úrslitaleiknum
gegn Haukum árið 1946. Í kvöld hefst úrslitaviðureign sömu
félaga um Íslandsmeistaratitilinn.
NOWITZKI
Dirk Nowitzki fangar undir lok leiksins
gegn Detroit Pistons. Kappinn skoraði 31
stig í leiknum.
Úrslitakeppni NBA:
Dallas og
Detroit áfram
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Skoppaði tvisvar
og lenti í markinu
2 fyrir1