Fréttablaðið - 06.05.2003, Page 22
6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR22
CONFESSIONS. bi 14 kl. 8 og 10.30
JUST MARRIED kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
ABRAFAX m/ísl.tali kl. 4 og 6 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
JOHNNY ENGLISH kl. 4, 6, 8 og 10.10
THE QUIET AMERICAN kl. 5.50, 8, 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd í lúxus kl. 6 og 9
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
kl. 6 og 8NÓI ALBINÓI
kl. 5.558 FEMMES
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd í lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
THUNDERPANTS kl. 4
DREAMCATCHER kl. 6, 8 og 10.10
kl. 4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTT...NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4 og 6
RECRUIT bi 16 kl. 8 og 10.30
kl. 6 og 9THE PIANIST
Sýnd kl. 6, 8 og 10
KVIKMYNDIR Þegar það varð orðið
ljóst, fyrir nokkrum árum, að flóð
ofurhetjumynda væri að skella á
runnu á mann tvær grímur. Það
hafði nefnilega verið óskrifuð
regla fram að þessu að myndirnar
gerðu lítið úr myndasögunum frek-
ar en annað. En blessunarlega hef-
ur þessi nýja ofurhetjubylgja
heppnast vel í flestum tilvikum. Í
tilfelli Daredevil var þó illa farið
með góðan dreng.
Nýja X-Men myndin stendur
fyllilega undir væntingum. Hand-
ritshöfundar eiga hrós skilið fyrir
hversu vel þeir fara með persón-
urnar og hversu nýstárlega þeir
tvinna klassískar söguflækjur úr
myndasögublöðunum inn í mynd-
ina.
Leikararhópurinn stendur sig
einnig með prýði. Eins og í fyrri
myndinni stelur Ian McKellen öll-
um senum sem hann birtist í sem
Magneto. Hugh Jackman er af-
bragð sem Jafri, Famke Janssen
stendur sig prýðisvel í hlutverki
Jean Grey og Brian Cox, sem leikur
William Stryker, er frábær viðbót
við hópinn. Það kemur þó á óvart
hversu slöpp Óskarsverðlaunaleik-
konan Halle Berry er sem Storm.
Það eru að verða þáttaskil í gerð
framhaldsmynda í Hollywood. Þær
eru ekki lengur útþynnt klón af
fyrstu myndum. Þær eiga það til,
eins þessi, að stíga skrefinu lengra
í gæðum.
Birgir Örn Steinarsson
X2
Leikstjóri Bryan Singer Aðalhlutverk: Halle
Berry, Hugh Jackman, Ian McKellen, Patrick
Stewart og Famke Janssen
Umfjöllunkvikmyndir
Tvöfalt húrra
TÓNLIST Hljómsveitin American
Nightmare var stofnuð haustið
árið 1999. Hún gaf út eina breið-
skífu, „Background Music“, árið
2001 áður en hún neyddist til þess
að skipta um nafn. Í dag ber hún
því nafnið Give Up the Ghost.
„Við vorum kærðir í fyrra af
annarri hljómsveit í Bandaríkjun-
um sem hét þessu sama nafni og
átti einkaréttinn,“ útskýrir gítar-
leikarinn Tim Cossar þreytulega í
gegnum símann. Eftir að síminn
hringdi var hann vakinn til lífsins í
hljómsveitarútunni á leiðinni á síð-
ustu tónleika sveitarinnar í Bret-
landi. „Við þurftum því að breyta
okkar. Þetta byrjaði í apríl í fyrra
en við skiptum ekki um nafn fyrr
en fyrir tveimur mánuðum.“
Plötufyrirtæki þeirra, Equal
Vision, mun endurútgefa plötuna
frá 2001 undir nýja nafninu. Önnur
breiðskífan, sem er tilbúin, kemur
svo út fyrir sumarlok. Fyrsta smá-
skífa hennar, „Love American“, er
komin út.
Þó svo sveitin sé frá Boston er
vegurinn þeirra heimili og segir
Tim að þeim líði hvergi betur en í
hljómsveitarrútunni. Þeir koma
hingað til lands eftir að þeir klára
sína þriðju Evrópureisu.
„Þetta er síðasta tónleikaferðin
á gömlu plötunni. Næst förum við í
tveggja mánaða tónleikaferð um
Bandaríkin áður en nýja platan
kemur út. Í Evrópu koma flestir á
tónleika í Hollandi, Skandinavíu
og Bretlandi. Við eigum orðið mik-
ið af vinum eftir þessi ferðalög og
höldum sambandi við þá. Við höf-
um verið á tónleikaferðum síðan
2001. Lengsta ferðin var í tíu mán-
uði. Svo þegar nafnaruglið kom
upp á tókum við smá pásu. Við
nýttum hana þó til þess að taka
upp plötu, en það er svo sem hægt
að segja að við höfum látið lítið
fyrir okkur fara síðasta árið. Við
elskum að vera á tónleikaferðum.
Það er nákvæmlega það sem við
viljum gera.“
Við eigum guðföður harð-
kjarnarokksins á Íslandi, Birki
Viðarssyni, söngvara I Adapt, að
þakka Íslandsheimsókn Give Up
the Ghost. „Hann sendi mér tölvu-
póst fyrir ári síðan og bað okkur
um að koma. Ég svaraði bara auð-
vitað „já“ og sagði honum að við
myndum koma næst þegar við
færum til Evrópu. Svo heppnaðist
það ekki en við náðum því í þetta
skiptið. Okkur er sagt að hluti tón-
leikanna sé til þess að hvetja unga
harðkjarnarokkara til þess að fara
og kjósa. Það er gott mál.“
Um upphitun á tónleikunum sjá
Maus, I Adapt og Dys.
biggi@frettabladid.is
Harðir amerískir
draugar
Bandaríska harðkjarnasveitin Give Up the Ghost, sem áður hét American Night-
mare, heldur á morgun tónleika í Iðnó. Sveitin er talin ein af áhrifamestu harð-
kjarnapönksveitum síðari ára.
GIVE UP THE GHOST
Harðkjarnasveitin Give Up the Ghost hefur verið á nær stöðugu tónleikaferðalagi síðan
2001. Hún ætti því að vera vel smurð og þétt.
STEVIE KL. 8
BIGGIE & TUPAC KL. 10
RUTHIE & CONNIE KL. 10.30
HEIMILDA- OG STUTTMYNDAHÁTÍÐ
Óttinn við skotglaða rappara íBretlandi er enn við lýði.
Þessu komust umsjónamenn
MTV-sjónvarpsþáttarins The Lick
að þegar átti að halda af-
mælispartí á skemmtistaðnum
Equinox, sem er við Leicester
Square. Lögreglan hafði samband
og bað umsjónarmenn þáttarins
að fresta partíinu af ótta við skot-
glöð bófagengi.
Noel Gallagher kom Oasis-aðdá-endum skemmtilega á óvart
þegar hann kom
óvænt fram sem
upphitunarat-
riði á tónleik-
um bresku
rokksveitar-
innar The
Stand.
Gallagher
naut stuðn-
ings gítar-
leikarans
Gem Archer
og saman tóku þeir órafmagnaðar
útgáfur af sex Oasis-lögum. Síðar
um kvöldið lék hann svo á gítar í
einu laga The Stand.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára